Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Vilhjálmur Árnason
4. þm. SU, S, VilÁ
Vilhjálmur Árnason

   
Valgerður Sverrisdóttir

Valgerður Sverrisdóttir

Fædd á Lómatjörn í Grýtubakkahreppi 23. mars 1950. Foreldrar: Sverrir Guðmundsson (fæddur 10. ágúst 1912, dáinn 6. janúar 1992) oddviti og bóndi þar og kona hans Jórlaug Guðrún Guðnadóttir (fædd 9. maí 1910, dáin 15. apríl 1960) húsmóðir. Maki (29. júní 1974): Arvid Kro (fæddur 13. september 1952) bóndi á Lómatjörn. Foreldrar: Magne Kro og kona hans Ingrid Kro. Dætur: Anna Valdís (1978), Ingunn Agnes (1982), Lilja Sólveig (1989).

Próf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1967. Þýskunám við Berlitz-skóla í Hamborg 1968-1969, enskunám við Richmond-skóla í London 1971-1972.

Ritari hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins 1967-1968. Ritari kaupfélagsstjóra KEA 1969-1970. Læknaritari á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 1970-1971. Kennari við Grenivíkurskóla 1972-1976, í hlutastarfi 1977-1982. Húsmóðir og bóndi á Lómatjörn síðan 1974. Skipuð 31. desember 1999 iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lausn 23. maí 2003. Skipuð 23. maí 2003 iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lausn 15. júní 2006. Skipuð 24. september 2004 samstarfsráðherra Norðurlanda, lausn 27. september 2005. Skipuð 15. júní 2006 utanríkisráðherra, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí.

Í stjórn Kaupfélags Eyfirðinga 1981-1992. Í stjórn Sambands íslenskra samvinnufélaga 1985-1992. Í stjórn Kjördæmissambands framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra 1983-1987, formaður stjórnar 1985-1986. Í stjórn Slippstöðvarinnar á Akureyri 1989-1991. Í miðstjórn Framsóknarflokksins síðan 1983, vararitari flokksins 1990-1992. Varaformaður Framsóknarflokksins 2007-2008, formaður 2008-2009. Í skólanefnd Samvinnuháskólans 1990-1996, formaður 1995-1996. Í stjórn Norræna menningarmálasjóðsins 1991-1993 og 1995-1998, formaður 1995.

Alþingismaður Norðurlands eystra 1987-2003, alþingismaður Norðausturkjördæmis 2003-2009 (Framsóknarflokkur).

Varaþingmaður Norðurlands eystra apríl 1984 (Framsóknarflokkur).

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra 1999-2006, samstarfsráðherra Norðurlanda 2004-2005, utanríkisráðherra 2006-2007.

2. varaforseti sameinaðs þings 1988-1989 og 1990-1991, 1. varaforseti Alþingis 1992-1995.

Formaður þingflokks Framsóknarflokksins 1995-1999.

Umhverfisnefnd 1991-1992, menntamálanefnd 1991-1995, efnahags- og viðskiptanefnd 1995-1999, allsherjarnefnd 1995-1999, kjörbréfanefnd 1995-2000, utanríkismálanefnd 1999 og 2009-, sérnefnd um stjórnarskrármál 1999 og 2009 (fyrri) og sérnefnd um stjórnarskrármál (seinni) 2009, landbúnaðarnefnd 1999, heilbrigðis- og trygginganefnd 1999 (form.), félagsmálanefnd 1999, heilbrigðisnefnd 2007-2008, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd 2007-2009.

Íslandsdeild Norðurlandaráðs 1995-1999 (formaður), Íslandsdeild ÖSE-þingsins 1999 og 2007-2009.



Síðast breytt 07.10.2019. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.