Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Sigmar Guðmundsson
7. þm. SV, V, SGuðm
Sigmar Guðmundsson

   
Sighvatur Árnason

Sighvatur Árnason

Fæddur í Ysta-Skála undir Eyjafjöllum 29. nóvember 1823, dáinn 20. júlí 1911. Foreldrar: Árni Sveinsson (fæddur 1. september 1780, dáinn 26. júní 1853) bóndi þar og kona hans Jórunn Sighvatsdóttir (fædd 19. október 1792, dáin 6. febrúar 1885) húsmóðir. Maki 1 (30. apríl 1843): Steinunn Ísleifsdóttir (fædd 17. september 1805, dáin 7. nóvember 1883) húsmóðir. Foreldrar: Ísleifur Gizurarson og kona hans Ingibjörg Sigurðardóttir. Maki 2 (26. apríl 1885): Anna Þorvarðsdóttir (fædd 31. maí 1853, dáin 12. febrúar 1915) húsmóðir. Foreldrar: Þorvarður Jónsson og 2. kona hans Sigríður Pálsdóttir. Börn Sighvats og Steinunnar: Jórunn (1843), Sigurður (1844), Arnleif (1845), Sæmundur (1848). Börn Sighvats og Önnu: Sigríður (1874), Árni (1885), Björn (1887), Steinunn (1890), Sighvatur (1893). Sonur Sighvats og Guðnýjar Brynjólfsdóttur: Jón (1856).

Bóndi í Eyvindarholti 1843—1901. Fluttist þá til Reykjavíkur og átti þar heima til æviloka. Bókavörður við Alþýðubókasafnið þar um skeið.

Hreppstjóri í 34 ár.

Alþingismaður Rangæinga 1864—1869, 1874—1899 og 1902 (Heimastjórnarflokkurinn).



Síðast breytt 17.03.2016.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.