Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2017. Útgáfa 146b. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um happdrætti fyrir Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga]1)
1959 nr. 18 22. apríl
1)L. 94/1999, 3. gr.
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 31. júlí 1959. Breytt með l. 32/1969 (tóku gildi 10. júní 1969), l. 52/1976 (tóku gildi 11. júní 1976), l. 78/1978 (tóku gildi 1. júní 1978), l. 115/1984 (tóku gildi 31. des. 1984), l. 24/1989 (tóku gildi 23. maí 1989), l. 94/1999 (tóku gildi 27. des. 1999), l. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005), l. 146/2007 (tóku gildi 29. des. 2007), l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 167/2011 (tóku gildi 30. des. 2011) og l. 126/2015 (tóku gildi 31. des. 2015).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við dómsmálaráðherra eða dómsmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. Heimilt skal [Sambandi íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga] 1) að reka vöruhappdrætti með eftirfarandi skilyrðum:
a. [Hlutatalan má ekki fara fram úr [80.000]. 2) Draga skal í 12 flokkum á ári hverju og skal dráttur fara fram fyrir einn flokk í mánuði hverjum, í fyrsta sinn í janúarmánuði.] 3)
b. Hlutina má selja í heilu og hálfu lagi. Iðgjöld fyrir hvern hlut ákveður [ráðherra] 4) að fengnum tillögum frá stjórn [Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga]. 1)
c. Vinningar skulu vera að verðmæti samtals að minnsta kosti 50% af iðgjöldunum samantöldum í öllum tólf flokkum.
d. [Dráttur skal fara fram í Reykjavík undir eftirliti nefndar, sem [ráðherra] 5) skipar til þess. Nefndin leggur fullnaðarúrskurð á allan ágreining um lögmæti eða gildi dráttar, bæði meðan dráttur fer fram og eftir að honum er lokið. Kostnað af þessu ber happdrættið.] 6)
1)L. 94/1999, 1. gr. 2)L. 167/2011, 1. gr. 3)L. 115/1984, 1. gr. 4)L. 126/2011, 29. gr. 5)L. 162/2010, 93. gr. 6)L. 52/1976, 1. gr.
2. gr. Vinningar í vöruhappdrætti fyrir [Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga] 1) skulu undanþegnir hvers konar opinberum gjöldum, … 2) á því ári, sem þeir falla til útborgunar.
1)L. 94/1999, 1. gr. 2)L. 129/2004, 34. gr.
3. gr. [[Heimild þessi gildir til 1. janúar 2034.] 1) Ágóða af happdrættinu skal varið til að greiða stofnkostnað við byggingarframkvæmdir Reykjalundar, endurhæfingarmiðstöðvar, til byggingar og rekstrar vinnustofu fyrir öryrkja og til annarrar félagsmálastarfsemi Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga sem viðurkennd er af ríkisstjórninni.] 2)
1)L. 126/2015, 2. gr. 2)L. 94/1999, 2. gr.
4. gr. Ráðherra setur með reglugerð 1) nánari ákvæði um starfsemi happdrættisins, að fengnum tillögum frá stjórn [Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga]. 2)
1)Rg. 923/2001, sbr. 915/2003, 998/2006, 1002/2010, 1046/2012, 1081/2013 og 1066/2015. 2)L. 94/1999, 1. gr.