Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 15. október 2021. Útgáfa 151c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um gagnkvæma stjórnsýsluaðstoð í skattamálum
1996 nr. 74 5. júní
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 19. júní 1996. Breytt með: L. 135/2011 (tóku gildi 1. okt. 2011).
1. gr.
[Ríkisstjórninni er heimilt að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um gagnkvæma stjórnsýsluaðstoð í skattamálum sem gerður var í Strassborg 25. janúar 1988 og bókun um breytingu á honum sem gerð var í París 27. maí 2010. Samningurinn og bókunin eru prentuð sem fylgiskjal með lögum þessum. 1)] 2)
1)Sjá Stjtíð. A 1996, bls. 226–238, og Stjtíð. A 135/2011. 2)L. 135/2011, 1. gr.
2. gr.
[Þegar samningurinn og bókunin er um ræðir í 1. gr. hafa öðlast gildi að því er Ísland varðar skulu ákvæði þeirra hafa lagagildi hér á landi.] 1)
1)L. 135/2011, 2. gr.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.