Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um nálgunarbann og brottvísun af heimili

2011 nr. 85 23. júní


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 30. júní 2011. Breytt með: L. 39/2012 (tóku gildi 9. júní 2012). L. 117/2016 (tóku gildi 1. jan. 2018, nema 52., 53., 75., 76. og 79.–81. gr. sem tóku gildi 28. okt. 2016). L. 12/2019 (tóku gildi 1. mars 2019; um lagaskil sjá 4. gr.). L. 76/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019). L. 107/2021 (tóku gildi 1. jan. 2022; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 43. gr.). L. 43/2026 (tóku gildi 16. maí 2026).


I. kafli. Skilgreiningar og aðild.
1. gr.
Með nálgunarbanni samkvæmt lögum þessum er átt við þau tilvik þegar manni er bannað að koma á tiltekinn stað eða svæði, veita eftirför, heimsækja eða setja sig með öðru móti í samband við annan mann.
2. gr.
Með brottvísun af heimili samkvæmt lögum þessum er átt við þau tilvik þegar manni er vísað brott af heimili sínu eða dvalarstað og honum bannað að koma þangað aftur í tiltekinn tíma.
[2. gr. a.
Með rafrænu eftirliti samkvæmt lögum þessum er átt við þau tilvik þegar manni sem sætir ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili er gert að hafa á sér staðsetningarbúnað svo að unnt sé að sannreyna að hann hlíti þeirri ákvörðun.] 1)
    1)L. 43/2026, 1. gr.
3. gr.
Sá maður sem misgert er við, brotaþoli, fjölskylda hans eða annar honum nákominn, getur borið fram beiðni til lögreglu um að maður, sakborningur, sem brotið hefur gegn honum eða raskað friði hans á annan hátt, sæti nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili.
Sömu heimild skv. 1. mgr. hefur lögráðamaður brotaþola og sá sem kemur fram fyrir hönd félagsþjónustu og/eða [barnaverndarþjónustu] 1) í sveitarfélagi þar sem viðkomandi er búsettur.
Lögreglustjóri getur einnig að eigin frumkvæði tekið mál til meðferðar samkvæmt lögum þessum ef hann telur ástæðu til.
    1)L. 107/2021, 44. gr.

II. kafli. Skilyrði.
4. gr.
Heimilt er að beita nálgunarbanni ef:
    a. rökstuddur grunur er um að sakborningur hafi framið refsivert brot eða raskað á annan hátt friði brotaþola, eða
    b. hætta er á að viðkomandi brjóti gegn brotaþola skv. a-lið.
5. gr.
Heimilt er að beita brottvísun af heimili ef:
    a. rökstuddur grunur er um að sakborningur hafi framið refsivert brot gegn ákvæðum XXII.–XXIV. kafla almennra hegningarlaga og/eða 108. gr., 233. gr., 233. gr. b, 253. gr. og/eða 257. gr. sömu laga og verknaður hefur beinst að öðrum sem er honum nákominn og tengsl þeirra þykja hafa aukið á grófleika verknaðarins, enda varði brotið fangelsi allt að sex mánuðum, eða
    b. hætta er á að viðkomandi brjóti gegn brotaþola skv. a-lið.
Heimilt er að beita nálgunarbanni samhliða brottvísun af heimili ef það þykir nauðsynlegt til að tryggja hagsmuni brotaþola.
Lögreglu er heimilt að handtaka sakborning á heimili eða þar sem til hans næst í þágu meðferðar og ákvörðunar vegna nálgunarbanns og/eða brottvísunar af heimili.
[5. gr. a.
Heimilt er að beita rafrænu eftirliti ef grunur er um að sakborningur sem sætir ákvörðun um nálgunarbann skv. 4. gr. og/eða brottvísun af heimili skv. 1. og 2. mgr. 5. gr. muni brjóta gegn slíkri ákvörðun og rafrænt eftirlit telst nauðsynlegt til að tryggja að ákvörðunin verði virt.
Sakborningi er skylt að veita nauðsynlega aðstoð og fylgja fyrirmælum lögreglu svo að rafrænu eftirliti verði komið á, það framkvæmt og því hlítt, þar á meðal að tryggja að búnaðurinn sé hlaðinn og merkjasending berist frá búnaðinum.
Einungis með atbeina lögreglu er heimilt að eiga við búnaðinn þannig að það sé til þess fallið að hann sendi frá sér viðvörun. Viðvera innan þess svæðis sem fellur undir nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili er einungis heimil með leyfi lögreglu.
Hjá embætti ríkislögreglustjóra og lögregluembættum er vinnsla persónuupplýsinga um sakborninga sem sæta rafrænu eftirliti með nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili heimil, þar á meðal þeirra upplýsinga sem viðkvæmar geta talist, að því marki sem slík vinnsla telst nauðsynleg vegna starfsemi viðkomandi stofnana. Um meðferð persónuupplýsinga samkvæmt þessari grein fer eftir lögum um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um rafrænt eftirlit með nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili, þar á meðal um hlutverk embættis ríkislögreglustjóra og annarra lögregluembætta hvað eftirlitið varðar, um tæknilega útfærslu rafræns eftirlits hjá því lögregluembætti sem tekur ákvörðunina, svo sem um ásetningu búnaðar, viðhald og bilanir, um vinnslu persónuupplýsinga hjá embætti ríkislögreglustjóra og öðrum lögregluembættum, skilyrði rafræns eftirlits og skyldur sakbornings sem sætir rafrænu eftirliti.
Ríkislögreglustjóra er heimilt að setja reglur um framkvæmd rafræns eftirlits með nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili.] 1)
    1)L. 43/2026, 2. gr.
6. gr.
Nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili [og rafrænu eftirliti] 1) verður aðeins beitt þegar ekki þykir sennilegt að friðhelgi brotaþola verði vernduð með öðrum og vægari hætti. Skal þess þá gætt að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn ber til.
Við mat skv. 1. mgr. er heimilt að líta til þess hvort sakborningur hafi áður þurft að sæta nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili [og rafrænu eftirliti] 1) sem og þess hvort háttsemi hans á fyrri stigum hafi verið þannig háttað að hætta er talin á að hann muni fremja háttsemi sem lýst er í 4. gr. og 1. mgr. 5. gr.
[Ríkissaksóknari getur gefið út almenn fyrirmæli um vægari úrræði skv. 1. mgr., þar á meðal hver slík úrræði geti verið, hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi og hvernig staðið skuli að framkvæmd þeirra.] 2)
    1)L. 43/2026, 3. gr. 2)L. 12/2019, 1. gr.

III. kafli. Málsmeðferð hjá lögreglustjóra.
7. gr.
Lögreglustjóri, eða löglærður fulltrúi hans, … 1) tekur ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili [og rafrænt eftirlit], 1) á grundvelli beiðni skv. 1. eða 2. mgr. 3. gr., eða ef ríkir almannahagsmunir, einkahagsmunir eða hagsmunir vegna rannsóknar og/eða dómsmeðferðar sakamáls krefjast þess.
[Hraða skal meðferð máls og taka ákvörðun skv. 1. mgr. svo fljótt sem auðið er. Ákvörðun um brottvísun af heimili [og, ef við á, rafrænt eftirlit með brottvísun] 1) skal þó taka eigi síðar en sólarhring eftir að beiðni hefur borist skv. 1. eða 2. mgr. 3. gr. eða mál komið upp með öðrum hætti, en ákvörðun um nálgunarbann [og, ef við á, rafrænt eftirlit með brottvísun] 1) eigi síðar en þremur sólarhringum eftir að beiðni hefur borist eða mál komið upp samkvæmt framangreindu.] 2)
Nálgunarbanni skal markaður ákveðinn tími, þó ekki lengur en eitt ár í senn. Ekki er heimilt að framlengja nálgunarbann nema til komi ný ákvörðun, enda séu skilyrði 4. gr. enn þá fyrir hendi.
Brottvísun af heimili skal markaður ákveðinn tími, þó ekki lengur en fjórar vikur í senn. Ekki er heimilt að framlengja brottvísun af heimili nema til komi ný ákvörðun, enda séu skilyrði 5. gr. enn þá fyrir hendi.
[Rafrænu eftirliti skal markaður ákveðinn tími, þó ekki lengri en kveðið er á um í 3. og 4. mgr. Ákvarðaður tími rafræns eftirlits getur náð yfir hluta eða allan þann tíma sem nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili er ákvarðaður skv. 3. og 4. mgr.] 1)
    1)L. 43/2026, 4. gr. 2)L. 12/2019, 2. gr.
8. gr.
Lögreglustjóra er skylt að tilnefna sakborningi verjanda vegna meðferðar máls samkvæmt lögum þessum og fer um slíka tilnefningu skv. IV. kafla laga um meðferð sakamála. Brotaþola skal jafnframt tilnefndur réttargæslumaður og fer um þá tilnefningu skv. V. kafla laga um meðferð sakamála.
Nú skilur sakborningur eða brotaþoli íslensku ekki nægilega vel og skal þá lögregla, ef þess er talin þörf, kalla til löggiltan dómtúlk eða annan hæfan mann til að annast túlkun þess sem fram fer. Ef sakborningur eða brotaþoli er ekki fær um að eiga orðaskipti á mæltu máli skal á sama hátt kallaður til kunnáttumaður til aðstoðar. Þóknun til handa túlki eða kunnáttumanni og annar kostnaður vegna starfa þeirra greiðist úr ríkissjóði. Um störf þeirra og hæfi gilda að öðru leyti ákvæði 12. gr. laga um meðferð sakamála eftir því sem við á.
9. gr.
Ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili [svo og, ef við á, rafrænt eftirlit] 1) skal vera skrifleg, rökstudd og tilgreina sakborning og brotaþola. Tímamörk, gildissvið og gildistaka nálgunarbanns og/eða brottvísunar [svo og, ef við á, rafræns eftirlits] 1) skulu jafnframt tilgreind í ákvörðun.
Ákvörðun skal birt fyrir sakborningi eða fyrir verjanda hans eða öðrum lögráða manni sem fengið hefur skriflegt umboð frá honum til að taka við birtingu. Réttaráhrif ákvörðunar miðast við birtingu ákvörðunar. Við birtingu skal leiðbeina um réttaráhrif ákvörðunar og málsmeðferð fyrir héraðsdómi skv. IV. kafla þessara laga.
    1)L. 43/2026, 5. gr.
10. gr.
Beiðni skv. 1. eða 2. mgr. 3. gr. skal synjað ef skilyrði II. kafla laga þessara eru ekki talin vera fyrir hendi. Ekki er skylt að gefa þeim sem hlut á að máli kost á að tjá sig áður en slík ákvörðun er tekin.
Nú er beiðni synjað og er lögreglustjóra þá skylt að tilkynna það brotaþola ásamt rökstuðningi. Skal brotaþola jafnframt bent á að honum sé heimilt að kæra ákvörðunina til ríkissaksóknara innan eins mánaðar frá því honum er tilkynnt um hana, eða hann fékk vitneskju um hana með öðrum hætti.
Ríkissaksóknara ber að taka afstöðu til kærunnar innan viku frá því málsgögn vegna hinnar kærðu ákvörðunar berast frá lögreglustjóra. Felli ríkissaksóknari ákvörðun lögreglustjóra úr gildi skal lögreglustjóri leggja málið fyrir héraðsdóm samkvæmt reglum IV. kafla laga þessara nema ríkissaksóknari mæli fyrir um annað.
11. gr.
Þegar ástæður þær sem lágu til grundvallar ákvörðun um beitingu úrræða skv. 4. gr. og/eða 5. gr. [og, ef við á, 1. mgr. 5. gr. a] 1) eru ekki lengur fyrir hendi skal lögreglustjóri fella bannið og/eða brottvísunina [og, ef við á, rafræna eftirlitið] 1) úr gildi með nýrri ákvörðun. Skylt er að gefa þeim sem hlut á að máli kost á að tjá sig áður en slík ákvörðun er tekin.
Nú er ákvörðun um úrræði skv. 4. gr. og/eða 5. gr. [og, ef við á, 1. mgr. 5. gr. a] 1) felld úr gildi og er lögreglu þá skylt að tilkynna það brotaþola og sakborningi ásamt rökstuðningi.
Ákvörðun lögreglu um að fella úr gildi nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili [og, ef við á, rafrænt eftirlit] 1) verður ekki borin undir dómara en heimilt er að kæra hana eftir sömu reglum og gilda um kæru ákvörðunar lögreglu um að fella niður rannsókn sakamáls.
    1)L. 43/2026, 6. gr.

IV. kafli. Málsmeðferð fyrir dómi.
12. gr.
Lögreglustjóri skal bera ákvörðun um beitingu úrræðis skv. … 1) 5. gr. [og, ef við á, rafrænt eftirlit með brottvísun] 2) undir héraðsdóm til staðfestingar svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en þremur sólarhringum eftir að ákvörðun var birt fyrir sakborningi. Hið sama gildir um ákvörðun um framlengingu … 1) brottvísunar [og, ef við á, ákvörðun um framlengingu rafræns eftirlits með brottvísun]. 2)
[Sakborningur getur krafist þess að lögreglustjóri beri ákvörðun sína um beitingu úrræðis skv. 4. gr. [og, ef við á, rafrænt eftirlit með nálgunarbanni] 2) undir dómstóla til staðfestingar. Kröfu um slíkt skal beint skriflega til lögreglustjóra innan tveggja vikna frá birtingu ákvörðunar og skal lögreglustjóri þá bera ákvörðun sína undir héraðsdóm svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en þremur sólarhringum eftir að beiðni sakbornings barst. Hið sama gildir um ákvörðun um framlengingu nálgunarbanns [og, ef við á, ákvörðun um framlengingu rafræns eftirlits með nálgunarbanni]. 2)] 1)
Málsmeðferð fyrir héraðsdómi frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar nema lögreglustjóri hafi ákveðið annað.
    1)L. 12/2019, 3. gr.; um lagaskil sjá 4. gr. s.l. 2)L. 43/2026, 7. gr.
13. gr.
Eftir að héraðsdómi hefur borist krafa lögreglustjóra ákveður dómari stað og stund þinghalds þar sem mál verður tekið fyrir. Þinghald skal háð svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en þremur sólarhringum eftir að gögn málsins hafa borist héraðsdómi.
Dómari gefur út fyrirkall á hendur sakborningi sem greini stað og stund þinghalds ásamt áskorun til hans um að sækja þing. Telji dómari að afstaða sakbornings til kröfunnar liggi nægilega fyrir í gögnum lögreglu er dómara heimilt að taka fram í fyrirkalli að fjarvist sakbornings verði metin til jafns við afstöðu hans við meðferð máls hjá lögreglustjóra og að úrskurður kunni að ganga um málið þótt hann sæki ekki þing. Ella skal þess getið í fyrirkalli að lögregla megi færa sakborning fyrir dóm, með valdi ef með þarf, sinni hann því ekki.
Dómari skal einnig tilkynna brotaþola, eða réttargæslumanni hans, hvenær þing verður háð.
Fyrirkall skal birt fyrir sakborningi eða fyrir lögmanni hans eða öðrum lögráða manni sem fengið hefur skriflegt umboð frá honum til að taka við birtingu.
14. gr.
Sakborningi skal skipaður verjandi vegna meðferðar máls fyrir dómi og fer um þá skipun skv. IV. kafla laga um meðferð sakamála. Brotaþola skal jafnframt skipaður réttargæslumaður og fer um þá skipun skv. V. kafla laga um meðferð sakamála.
15. gr.
Um málsmeðferð fyrir héraðsdómi gilda ákvæði XV. kafla laga um meðferð sakamála eftir því sem við á. Ef sakborningur sækir þing við uppkvaðningu úrskurðar telst úrskurður birtur fyrir honum, enda standi honum þegar til boða endurrit úrskurðarins. Nú verður úrskurður ekki birtur á dómþingi og skal þá birta úrskurð fyrir sakborningi eða fyrir lögmanni hans eða öðrum lögráða manni sem fengið hefur skriflegt umboð frá honum til að taka við birtingu.
Réttaráhrif úrskurðar héraðsdóms miðast við birtingu nema dómari hafi ákveðið annað.
[Kæra má til Landsréttar úrskurð dómara um hvort lagt verði á nálgunarbann eða um brottvísun af heimili [og, ef við á, ákvörðun um rafrænt eftirlit], 1) svo og úrskurð sem gengur í máli um slíka kröfu, ef hann getur sætt kæru eftir almennum reglum 1. mgr. 192. gr. laga um meðferð sakamála. Aðrir úrskurðir Landsréttar en mælt er fyrir um í 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála verða ekki kærðir til Hæstaréttar.] 2)
    1)L. 43/2026, 8. gr. 2)L. 76/2019, 40. gr.

V. kafli. Tengsl við sveitarfélög.
16. gr.
Þegar manni hefur verið vísað brott af heimili sínu samkvæmt lögum þessum skal lögregla tilkynna brottvísunina til félagsþjónustu viðkomandi sveitarfélags. Í því skyni er lögreglu heimil miðlun upplýsinga um nöfn sakbornings og heimilisfólks að því marki sem hún verður talin nauðsynleg vegna vinnslu málsins.
17. gr.
Ef barn býr á heimili þar sem brottvísun manns á sér stað skal lögregla ávallt tilkynna brottvísunina til [barnaverndarþjónustu]. 1) Hið sama gildir þegar manni er gert að sæta nálgunarbanni.
    1)L. 107/2021, 44. gr.

VI. kafli. Gildissvið og gildistaka.
18. gr.
Ákvæði laga um meðferð sakamála gilda um málsmeðferð samkvæmt lögum þessum, eftir því sem við á og ekki er sérstaklega tilgreint í lögum þessum.
19. gr.
Lög þessi öðlast gildi þegar í stað.
…
20. gr. Breytingar á öðrum lögum. …

Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica