Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um Þjóðminjasafn Íslands

2011 nr. 140 28. september


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. janúar 2013. Breytt með: L. 21/2012 (tóku gildi 16. mars 2012). L. 57/2013 (tóku gildi 12. apríl 2013). L. 50/2023 (tóku gildi 28. júní 2023).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra eða menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

I. kafli. Stjórnsýsla.
1. gr. Höfuðsafn.
Þjóðminjasafn Íslands er eign íslenska ríkisins og fer [ráðherra] 1) með yfirstjórn þess. Safnið er höfuðsafn á sviði menningarminja.
[Þjóðminjasafnið er háskólastofnun með sjálfstæðan fjárhag.] 2)
Kostnaður af rekstri Þjóðminjasafnsins greiðist úr ríkissjóði eftir því sem ákveðið er í fjárlögum.
    1)L. 21/2012, 4. gr. 2)L. 57/2013, 1. gr.
2. gr. Skipulag og yfirstjórn.
Ráðherra skipar forstöðumann Þjóðminjasafns Íslands, þjóðminjavörð, til fimm ára í senn. [Viðkomandi skal hafa háskólamenntun og góða þekkingu á starfssviði safnsins. Endurnýja má skipun forstöðumanns einu sinni til næstu fimm ára.] 1)
Forstöðumaður Þjóðminjasafns Íslands, þjóðminjavörður, stjórnar starfsemi og rekstri safnsins. Hann ræður [starfsfólk] 1) og er í fyrirsvari fyrir safnið.
    1)L. 50/2023, 2. gr.

II. kafli. Hlutverk og starfsemi.
3. gr. Hlutverk.
Hlutverk Þjóðminjasafns Íslands er að stuðla sem best að varðveislu íslenskra menningarminja og miðla sögu þjóðarinnar.
Hlutverk sitt rækir safnið einkum með því að:
    a. safna, skrá og varðveita menningar- og þjóðminjar,
    b. taka við og varðveita fornmuni, sýni og önnur rannsóknargögn úr fornleifarannsóknum,
    c. rannsaka og annast kynningu á menningarminjum með sýningum, útgáfu á fræðilegum ritum og annarri fræðslustarfsemi til að veita sem víðtækasta sýn á íslenska sögu og setja hana í alþjóðlegt samhengi,
    d. miðla þekkingu um íslenska menningu til skóla, fjölmiðla og almennings,
    e. annast minjavörslu í nánu samstarfi við Minjastofnun Íslands og eiga í samstarfi við önnur höfuðsöfn,
    f. móta stefnu um söfnun, skráningu, rannsóknir og miðlun menningar- og þjóðminja,
    g. stuðla að samvinnu menningarminjasafna,
    h. veita öðrum menningarminjasöfnum ráðgjöf,
    i. halda skrá yfir lausamuni í einkaeigu er teljast til þjóðarverðmæta,
    j. annast önnur verkefni samkvæmt ákvörðun ráðherra.
[Stofnunin á samstarf við aðrar stofnanir á háskólastigi samkvæmt sérstökum samningum.
Samstarf Þjóðminjasafns Íslands og Háskóla Íslands skal byggjast á sérstökum samstarfs- og þjónustusamningi um starfstengsl, fjárhagsleg samskipti og skipan sameiginlegra starfa.
Safninu er heimilt að veita öðrum háskólum landsins þjónustu eftir því sem nánar er ákveðið í gagnkvæmum þjónustusamningum við einstaka háskóla.] 1)
    1)L. 57/2013, 2. gr.
[3. gr. a. Rannsóknarstaða tengd nafni dr. Kristjáns Eldjárns.
Við Þjóðminjasafn Íslands skal vera sérstök rannsóknarstaða kennd við dr. Kristján Eldjárn.] 1)
    1)L. 57/2013, 3. gr.
4. gr. Gjaldtökuheimild.
Þjóðminjasafni Íslands er heimilt að taka aðgangseyri. Þá er safninu heimilt að taka gjald fyrir þjónustu sína, svo sem lán á munum, ljósmyndun muna, afrit af ljósmyndum, sérunnar munaskrár og úttak tölvugagna, sérfræðilega heimildaþjónustu, fjölföldun og hvers konar aðra þjónustu til að standa straum af kostnaði. Safnið setur gjaldskrá um framangreinda gjaldtöku.
5. gr. Varðveisla og lán safngripa.
Þjóðminjasafni Íslands er heimilt að fela viðurkenndu safni varðveislu gripa sem því eru afhentir.
Safninu er heimilt að fela öðrum stofnunum á sviði minjavörslu eftirlit með minjum sem eru hluti af safnkosti þess.
Safninu er einnig heimilt að lána viðurkenndum söfnum eða öðrum stofnunum safngripi tímabundið á sýningar eða til rannsókna.
Öll lán á safngripum þurfa að uppfylla skilyrði Þjóðminjasafns Íslands um útlán safngripa.

III. kafli. Kirkjugripir.
6. gr. Friðun kirkjugripa.
Þjóðminjasafn Íslands ákveður, að höfðu samráði við biskup Íslands eða forstöðumenn trúfélaga, friðun kirkjugripa sem varðveittir eru í kirkjum landsins og taldir eru friðunarverðir vegna sögulegs eða listræns gildis.
Safnið skal halda skrá yfir friðaða kirkjugripi og láta biskupsstofu, forstöðumanni viðeigandi trúfélags og hlutaðeigandi kirkju í té upplýsingar úr skránni.
7. gr. Friðaðir kirkjugripir.
Friðaðir kirkjugripir skv. 6. gr. eru friðhelgir. Óheimilt er að raska þeim eða spilla. Ekki má heldur flytja þá frá kirkju nema með leyfi Þjóðminjasafns Íslands.
Forráðamönnum kirkna ber að vernda skráða kirkjugripi og skal Þjóðminjasafn Íslands vera þeim innan handar með nauðsynlegar öryggisráðstafanir.
8. gr. Aflagðir, friðaðir kirkjugripir.
Þjóðminjasafn Íslands varðveitir aflagða, friðaða kirkjugripi og þá gripi sem safnið og forráðamenn kirkna eru sammála um að eigi sé ástæða til að hafa í kirkju lengur.
Þjóðminjasafni Íslands er heimilt að fela viðurkenndu safni varðveislu aflagðra, friðaðra kirkjugripa.
9. gr. Kirkjugripir í einkaeign.
Þjóðminjasafn Íslands skal eiga forkaupsrétt að kirkjugripum í einkaeign ef seldir verða.

IV. kafli. Önnur ákvæði.
10. gr. Setning reglugerða.
Ráðherra er heimilt að setja með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laganna í heild eða einstakra kafla þeirra.
11. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2013. …
Ákvæði til bráðabirgða.
Fram til 1. janúar 2013 er ráðherra heimilt að undirbúa gildistöku laganna.
Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica