Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um úrskurðarnefnd velferðarmála1)

2015 nr. 85 10. júlí


    1)Lögunum var breytt með l. 81/2026, 6. gr.; breytingarnar taka gildi 1. júní 2027.
Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. janúar 2016 nema 2. gr. og ákvæði til bráðabirgða I sem tóku gildi 24. júlí 2015. Breytt með: L. 90/2018 (tóku gildi 15. júlí 2018; EES-samningurinn: XI. viðauki reglugerð 2016/679). L. 71/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019). L. 79/2019 (tóku gildi 6. júlí 2019; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í brbákv.). L. 62/2026 (tóku gildi 1. júlí 2026 nema 7. og 9. gr. sem tóku gildi 1. sept. 2026 og 14. og 16. gr. sem taka gildi 1. jan. 2027). L. 77/2026 (tóku gildi 1. sept. 2026; um lagaskil sjá 30. gr. og brbákv.). L. 81/2026 (taka gildi 1. júní 2027).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við félags- og húsnæðismálaráðherra eða félags- og húsnæðismálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

I. kafli. Hlutverk, skipan og starfshættir.
1. gr. Hlutverk.
Úrskurðarnefnd velferðarmála skal úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. [Jafnframt skal nefndin taka ákvarðanir á fyrsta stjórnsýslustigi í málum er varða undanþágu frá banni við beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk, sbr. ákvæði V. kafla laga um réttindavernd fatlaðs fólks.] 1) Úrskurðarnefndin er sjálfstæð og óháð í störfum sínum.
    1)L. 77/2026, 31. gr.
2. gr. Nefndarskipan.
Nefndin skal skipuð [13] 1) nefndarmönnum sem skipaðir skulu þannig:
    1. Ráðherra skipar formann úrskurðarnefndar velferðarmála og þrjá nefndarmenn í fullt starf til fimm ára að undangenginni auglýsingu samkvæmt ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins um embættismenn og að fenginni umsögn matsnefndar skv. 2. tölul. Þeir skulu uppfylla skilyrði um embættisgengi héraðsdómara. Um réttindi þeirra og skyldur fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Laun og starfskjör þeirra skulu ákveðin [skv. 39. gr. a laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins]. 2)
    2. Ráðherra skal skipa þrjá menn í matsnefnd sem meta skal hæfni umsækjenda um embætti nefndarmanna í úrskurðarnefnd velferðarmála. Tveir nefndarmanna í matsnefnd skulu tilnefndir af Hæstarétti og skal annar þeirra vera formaður nefndarinnar. Matsnefndin skal láta ráðherra í té skriflega rökstudda umsögn um umsækjendur.
    3. [Ráðherra skipar níu aðra nefndarmenn og jafnmarga til vara til fjögurra ára í senn. Þrír þeirra skulu hafa embættis- eða meistarapróf í lögfræði, einn skal vera læknir, einn skal hafa sérþekkingu á sviði barnaverndarmála og einn skal hafa sérþekkingu á málefnum fatlaðs fólks.] 1) Þess skal gætt að innan nefndarinnar sé jafnan nauðsynleg sérþekking á þeim sviðum sem fjallað er um í nefndinni. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti og uppfylla sömu hæfisskilyrði og aðalmenn.
    1)L. 77/2026, 31. gr. 2)L. 79/2019, 20. gr.
3. gr. Starfshættir.
Formaður nefndarinnar gegnir jafnframt embætti forstöðumanns úrskurðarnefndarinnar, hefur yfirstjórn hennar með höndum og ber ábyrgð á fjárhag hennar og daglegum rekstri. Hann fer með fyrirsvar nefndarinnar út á við. Forstöðumaður ræður starfsfólk nefndarinnar.
Úrskurðarnefndin skal starfa í fjórum þriggja manna deildum. Ef mál er viðamikið eða fordæmisgefandi getur formaður ákveðið að fimm menn eigi sæti í [deildinni] 1) við umfjöllun um það. Formaður ákvarðar hvernig nefndin er skipuð í hverju máli. Hann skal gæta þess að í nefndinni eigi hverju sinni sæti þeir sem bestu þekkingu hafa til úrlausnar málsins. Formaður eða nefndarmaður sem skipaður er í fullt starf skv. 1. tölul. 2. gr. stýrir störfum nefndarinnar við umfjöllun máls. Þegar nefndarmenn eru ekki sammála ræður meiri hluti niðurstöðu máls.
Nefndinni er heimilt að kveðja sér til ráðgjafar og aðstoðar sérfróða menn við meðferð einstakra mála. Skulu þeir starfa með nefndinni við undirbúning og meðferð máls eftir ákvörðun formanns.
    1)L. 77/2026, 31. gr.
4. gr. Vernd persónuupplýsinga.
Um vinnslu nefndarmanna og starfsmanna og ráðgjafa nefndarinnar á persónuupplýsingum fer samkvæmt lögum um persónuvernd og [vinnslu] 1) persónuupplýsinga.
[Á nefndarmönnum, starfsmönnum og ráðgjöfum nefndarinnar hvílir þagnarskylda skv. X. kafla stjórnsýslulaga.] 2)
    1)L. 90/2018, 54. gr. 2)L. 71/2019, 5. gr.

II. kafli. Málsmeðferð.
5. gr. Kærufrestur.
Stjórnsýslukæra skal berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Kæra telst nógu snemma fram komin ef bréf sem hefur hana að geyma hefur borist nefndinni eða verið póstlagt áður en fresturinn er liðinn.
6. gr. Upplýsingaskylda og gagnaöflun.
Stjórnvöldum er skylt að láta úrskurðarnefnd velferðarmála í té öll gögn máls, svo og þær upplýsingar og skýringar sem hún telur nauðsynlegar vegna úrlausnar máls. Um upplýsingaskyldu og gagnaöflun fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum laga sem stjórnsýslukæra byggist á.
7. gr. Málsmeðferð.
Málsmeðferð fyrir úrskurðarnefndinni skal að jafnaði vera skrifleg. Nefndin getur þó ákveðið að kalla málsaðila eða fulltrúa þeirra á sinn fund.
Úrskurðarnefndin skal tryggja að aðili máls eigi þess kost að tjá sig um efni máls áður en nefndin kveður upp úrskurð sinn, enda telji nefndin að afstaða hans og rök fyrir henni liggi ekki fyrir í gögnum málsins eða slíkt sé augljóslega óþarft.
Úrskurðarnefndin skal kveða upp úrskurð svo fljótt sem kostur er og að jafnaði innan þriggja mánaða eftir að henni berst mál nema sérstakar ástæður hamli, og skal kærandi þá upplýstur um ástæður tafar og hvenær vænta má úrskurðar. Um afgreiðslutíma mála sem kærð eru til nefndarinnar samkvæmt ákvæðum 18. gr. laga um greiðsluaðlögun einstaklinga, nr. 101/2010, fer samkvæmt þeim lögum.
Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir á stjórnsýslustigi og verður ekki skotið til æðra stjórnvalds. [Hið sama á við um ákvarðanir í málum er varða undanþágu frá banni við beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk, sbr. V. kafla laga um réttindavernd fatlaðs fólks.] 1)
Að öðru leyti fer um málsmeðferð hjá nefndinni samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni.
    1)L. 77/2026, 31. gr.
8. gr. Réttaráhrif og aðfararhæfi.
Stjórnsýslukæra frestar ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar nema á annan veg sé mælt í lögum sem kæranleg ákvörðun byggist á. Úrskurðarnefndinni er þó heimilt að fresta réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar meðan kæra er til meðferðar þar sem ástæður mæla með því.
Um aðfararhæfi úrskurða nefndarinnar fer samkvæmt ákvæðum laga sem kæranleg ákvörðun byggist á.

III. kafli. Ýmis ákvæði.
9. gr. Birting úrskurða. Ársskýrsla.
Nefndin skal birta úrskurði sína með aðgengilegum og skipulegum hætti. Þeir skulu birtir án nafna, kennitalna og annarra persónugreinanlegra auðkenna. Heimilt er að undanskilja úrskurði birtingu ef sérstök vandkvæði eru á að tryggja persónuvernd.
Nefndin skal árlega skila ráðherra skýrslu um störf sín og helstu niðurstöður og ályktanir sem draga má af úrskurðum nefndarinnar.
10. gr. Kostnaður.
Kostnaður við starfsemi úrskurðarnefndar velferðarmála greiðist úr ríkissjóði. … 1)
    1)L. 62/2026, 49. gr.
11. gr. Reglugerð.
Ráðherra getur sett nánari ákvæði um úrskurðarnefndina í reglugerð, þ.m.t. um erindi til nefndarinnar, starfshætti, málsmeðferð, birtingu úrskurða og efni ársskýrslu. [Í reglugerðinni er ráðherra heimilt að kveða sérstaklega á um málsmeðferð nefndarinnar við ákvarðanatöku í málum er varða undanþágu frá banni við beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk, sbr. V. kafla laga um réttindavernd fatlaðs fólks.] 1)
Nefndin getur sett sér verklagsreglur þar sem nánar verður kveðið á um störf nefndarinnar. Þær skulu staðfestar af ráðherra.
    1)L. 77/2026, 31. gr.
12. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2016. Ákvæði 2. gr. og ákvæði til bráðabirgða I taka þó þegar gildi.
13. gr. Breytingar á öðrum lögum. …

Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Starfsmönnum úrskurðarnefndar almannatrygginga og þeim starfsmönnum ráðuneytisins sem haft hafa störf fyrir úrskurðar- og kærunefndir að aðalstarfi skal boðið starf hjá úrskurðarnefnd velferðarmála. Ákvæði 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins gilda ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessu ákvæði.
II.
Málum sem við gildistöku laga þessara hafa verið tekin til efnismeðferðar eða ákvörðunar um framsendingu eða frávísun á fundi úrskurðar- eða kærunefndar skal lokið hjá þeirri nefnd sem hefur þau til meðferðar. Kærunefnd greiðsluaðlögunarmála skal þó ljúka öllum málum sem bárust nefndinni fyrir 1. janúar 2015. Ráðherra er heimilt að framlengja skipunartíma nefndar þar til hún hefur lokið öllum málum sem hún hafði tekið til efnismeðferðar, þó aldrei lengur en í sex mánuði eftir gildistöku laga þessara. Heimilt er þó að framlengja skipunartíma kærunefndar greiðsluaðlögunarmála um allt að tólf mánuði frá gildistöku laga þessara.
Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica