Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist

2016 nr. 110 19. október


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. janúar 2017. Falla úr gildi 31. desember 2027 skv. 11. gr., sbr. l. 118/2022, 5. gr. Breytt með: L. 124/2020 (tóku gildi 4. des. 2020). L. 118/2022 (tóku gildi 31. des. 2022).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra eða menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

I. kafli. Markmið og gildissvið.
1. gr. Markmið.
Markmið laga þessara er að efla tónlistariðnað á Íslandi með því að veita útgefendum hljóðrita [og eftir atvikum þjónustuaðila] 1) tímabundinn rétt til endurgreiðslu hluta kostnaðar sem fellur til við hljóðritun tónlistar hér á landi.
    1)L. 118/2022, 1. gr.
2. gr. Gildissvið.
Lög þessi gilda um endurgreiðslu á hluta kostnaðar sem fellur til við hljóðritun tónlistar hér á landi sem gefin hefur verið út og gerð aðgengileg almenningi.
Nú fellur meira en 80% af kostnaði við hljóðritun til á Íslandi og er þá heimilt að endurgreiða 25% af þeim endurgreiðsluhæfa kostnaði sem fellur til á Evrópska efnahagssvæðinu.
3. gr. Orðskýringar.
Í lögum þessum merkir:
    1. Endurgreiðsluhæfur kostnaður: Sá kostnaður sem heimilt er að nota til útreiknings á endurgreiðsluupphæð, sbr. 6. gr.
    2. Tónlist: Listgrein þar sem tónar og hljómar eru skipulega nýttir til ýmislegrar tjáningar í tónverki.
    3. Útgáfa hljóðrita og aðgengi fyrir almenning: Hljóðrit telst gefið út og gert aðgengilegt almenningi þegar það er með réttri heimild boðið opinberlega til sölu, láns eða leigu eða dreift til almennings á annan hátt.
    4. Útgefandi: Sá einstaklingur, hópur eða lögaðili sem er fjárhagslega ábyrgur fyrir útgáfu hljóðrita.
    [5. Þjónustuaðili: Sá aðili sem veitir útgefanda hljóðrita þjónustu og sækir um endurgreiðslu fyrir hans hönd.] 1)
    1)L. 118/2022, 2. gr.

II. kafli. Umsóknarferli o.fl.
4. gr. Umsókn.
Umsókn um endurgreiðslu hluta kostnaðar sem fellur til við hljóðritun hér á landi skal berast ráðuneytinu ásamt fylgigögnum í síðasta lagi sex mánuðum eftir útgáfu nýjasta hljóðritsins sem sótt er um endurgreiðslu vegna.
Sérstök fjögurra manna nefnd fer yfir umsóknir og gerir tillögur til ráðherra um afgreiðslu. Ráðherra skipar nefndina og skulu tveir vera tilnefndir af Sambandi flytjenda og hljómplötuframleiðenda, þ.e. einn úr röðum flytjenda og einn úr röðum hljómplötuframleiðenda, einn tilnefndur af STEF og einn skipaður án tilnefningar og skal hann vera formaður. Varamenn skal skipa á sama hátt. Atkvæði formanns ræður úrslitum falli atkvæði jöfn.
Við mat á umsóknum um endurgreiðslu getur nefndin aflað álits sérfróðra aðila um hvort skilyrði 5. gr. séu uppfyllt.
5. gr. Skilyrði endurgreiðslu fyrir útgáfu hljóðrita.
Til að útgefandi geti hlotið endurgreiðslu vegna hljóðrita sem gefin hafa verið út og gerð aðgengileg almenningi skulu eftirfarandi skilyrði vera uppfyllt:
    a. Samanlagður spilunartími tónlistar hljóðritanna nái [14] 1) mínútum.
    b. Hljóðritin séu gefin út á 18 mánaða tímabili.
    c. Ekki séu liðnir sex mánuðir frá því að nýjasta hljóðritið var gefið út.
    d. Sundurliðað bókhald liggi fyrir um endurgreiðsluhæfan kostnað sem féll til við hljóðritun ásamt afritum reikninga.
    e. Upplýsingar liggi fyrir um þá aðila sem komu að hljóðritun og tónlistarflutningi.
    f. Hljóðritin hafi verið gefin út og gerð aðgengileg almenningi.
    g. ISRC-kóða hafi verið úthlutað fyrir hljóðritin og fullnaðarskráningu hljóðritanna lokið á www.hljodrit.is.
    h. Fullnaðarskráningu hljóðritaðra verka hafi verið lokið hjá viðurkenndum höfundaréttarsamtökum sem og höfundargreiðslu ef við á.
    i. Upplýsingar liggi fyrir um það hvernig hljóðritin hafi verið gerð aðgengileg almenningi.
    j. Útgefandi eigi ekki vangreidda skatta eða gjöld til ríkis eða sveitarfélaga eða aðrar vangoldnar opinberar kröfur.
Hljóðritun tónlistar til kynningar á tiltekinni vöru eða þjónustu eða hljóðritun hljóðbóka nýtur ekki endurgreiðslu samkvæmt lögum þessum.
[Þrátt fyrir skilyrði 1. mgr. 4. gr. og 1. mgr. er þjónustuaðila heimilt að sækja um endurgreiðslu hluta kostnaðar sem fellur til við hljóðritun hér á landi. Í umsókn skal tilgreina áætlaðan útgáfudag og skal hann vera innan hæfilegra marka frá þeim tíma sem sótt er um endurgreiðslu. Nefnd skv. 2. mgr. 4. gr. metur í hverju tilviki fyrir sig hvað teljast hæfileg tímamörk í þessu sambandi.] 2)
    1)L. 124/2020, 1. gr. 2)L. 118/2022, 3. gr.

III. kafli. Endurgreiðsla.
6. gr. Endurgreiðsluhæfur kostnaður.
Heimilt er að endurgreiða hluta af eftirfarandi kostnaði sem fellur til við hljóðritun hljóðrita sem ekki hafa verið gefin út áður og gefin eru út á 18 mánaða tímabili:
    a. Tímagjaldi í hljóðveri fyrir hljóðritun.
    b. Launakostnaði aðkeyptra flytjenda eða tæknimanna sem fellur til við hljóðritun.
    c. Eftirvinnslu (m.a. hljóðblöndun og lokahljóðvinnslu).
    d. Ferða- og flutningskostnaði hljóðfæra og aðalflytjenda.
    e. Eigin vinnu, sbr. 7. gr.
Þegar hljóðritun á sér stað á tónleikum, sýningum eða annars konar viðburðum er einungis heimilt að reikna til þann hluta kostnaðarins sem eingöngu á við í beinum tengslum við hljóðritun, eftirvinnslu og réttindagreiðslur flytjenda.
[Ráðherra er heimilt með reglugerð 1) að kveða nánar á um hvaða kostnaður telst endurgreiðsluhæfur.] 2)
    1)Rg. 1271/2016, sbr. 1131/2023. 2)L. 118/2022, 4. gr.
7. gr. Eigin vinna.
Ef útgefandi og tæknimaður eða flytjandi er sami aðili skal honum heimilt að reikna inn í endurgreiðsluhæfan kostnað eigin laun sem samsvara einum mánaðarlaunum listamanna, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga um listamannalaun.
8. gr. Endurgreiðsla.
Hlutfall endurgreiðslu skal vera 25% af endurgreiðsluhæfum kostnaði sem fellur til við hljóðritun.
Sami útgefandi getur ekki fengið hærri endurgreiðslu en 30.000.000 kr. á þriggja ára tímabili.

IV. kafli. Ýmis ákvæði.
9. gr. Aðrir styrkir.
Hafi umsækjandi hlotið styrk frá opinberum aðilum til útgáfu sömu hljóðrita dregst styrkurinn frá þeirri upphæð sem telst innlendur endurgreiðsluhæfur kostnaður.
10. gr. Reglugerð.
Ráðherra setur reglugerð 1) um framkvæmd laga þessara. Í henni skal m.a. kveðið á um framkvæmd endurgreiðslna, heimildir ráðherra til að fresta endurgreiðslum sem kunna að vera umfram fjárveitingar Alþingis hverju sinni, skilyrði endurgreiðslna, umsóknir, afgreiðslu umsókna og um ákvörðun um endurgreiðslu.
    1)Rg. 1271/2016, sbr. 1131/2023.
11. gr. Gildistaka o.fl.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2017. Lögin falla úr gildi 31. desember [2027]. 1) Endurgreiðslubeiðnir sem mótteknar hafa verið af ráðuneytinu fyrir þann tíma skulu hljóta afgreiðslu.
Einungis er hægt að sækja um endurgreiðslu á hluta kostnaðar vegna hljóðrita sem gefin eru út og gerð aðgengileg almenningi eftir að lög þessi taka gildi.
Fyrir 31. desember [2027] 1) skal ráðherra framkvæma árangursmat á því hvaða áhrif lög þessi hafi haft á hljóðritun tónlistar hér á landi.
    1)L. 118/2022, 5. gr.

Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica