Tóku gildi 29. apríl 1997.EES-samningurinn: XIX. viðauki tilskipun 94/47/EB. Breytt meðl. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998), l. 57/2007 (tóku gildi 3. apríl 2007), l. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010), l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
I. kafli.Gildissvið og skilgreiningar. 1. gr. Lög þessi gilda um samninga um hlutdeild í afnotarétti af fasteignum og hafa það markmið að tryggja neytendavernd við gerð slíkra samninga. Afnotaréttur sem varir skemur en þrjú ár fellur utan gildissviðs laganna. Kaupandi að hlutdeild í afnotarétti af fasteign sem staðsett er á Evrópska efnahagssvæðinu nýtur verndar í samræmi við ákvæði þessara laga þótt um samninginn fari eftir löggjöf lands utan svæðisins. 2. gr. Í lögum þessum hafa eftirfarandi orð merkingu sem hér segir: Samningur: Samkomulag um hlutdeild í afnotarétti af fasteign eða hluta hennar, í eina viku eða meira, á hverju almanaksári gegn greiðslu ákveðins heildarverðs. Fasteign: Orlofshúsnæði sem samningur tekur til, eða hluti þess. Kaupandi: Einstaklingur sem keypt hefur hlutdeild í afnotarétti af fasteign og kaupin eru ekki liður í atvinnurekstri hans. Seljandi: Einstaklingur eða lögaðili sem í atvinnuskyni selur og ábyrgist viðskipti með hlutdeild í afnotarétti af fasteignum sem lög þessi taka til.
III. kafli.Ýmis ákvæði. 9. gr. [Ráðherra]1) fer með framkvæmd laga þessara. Honum er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd þeirra með reglugerð. 1)L. 126/2011, 231. gr. [10. gr. Neytendastofa annast eftirlit með ákvæðum laga þessara. Ákvæði laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins gilda um úrræði Neytendastofu og málsmeðferð. Ákvörðunum sem Neytendastofa tekur á grundvelli laga þessara verður skotið til áfrýjunarnefndar neytendamála sem starfar á grundvelli 4. gr. laga um Neytendastofu og talsmann neytenda.]1) 1)L. 57/2007, 3. gr. [11. gr. Neytendastofa getur lagt bann við athöfnum sem brjóta í bága við ákvæði laga þessara. Neytendastofa getur lagt dagsektir á aðila sem brýtur gegn ákvörðun sem stofnunin tekur á grundvelli 1. mgr. Dagsektir geta numið frá 10.000 kr. til 100.000 kr. á dag.]1) 1)L. 57/2007, 3. gr. [12. gr.]1) Brot gegn lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim varða fésektum eða [fangelsi allt að 2 árum]2) nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. 1)L. 57/2007, 3. gr.2)L. 82/1998, 233. gr. [13. gr.]1) Lög þessi öðlast gildi 29. apríl 1997. 1)L. 57/2007, 3. gr.