Tóku gildi 1. júlí 1997.Breytt meðl. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998), l. 82/2002 (tóku gildi 1. júní 2002), l. 76/2005 (tóku gildi 1. jan. 2006), l. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 143/2009 (tóku gildi 1. mars 2010 nema II.–IV. kafli sem tóku gildi 1. nóv. 2011 (utan 43. gr. í IV. kafla sem tók gildi 1. mars 2010) og 54. og 55. gr. og 9. efnismgr. 63. gr. sem tóku gildi 1. mars 2011; EES-samningurinn: I. og II. viðauki reglugerð 178/2002) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
II. kafli.Útbúnaður sláturhúsa og kjötvinnslustöðva. 5. gr. Sláturdýrum, sem slátra á til að flytja afurðirnar á erlendan markað eða til dreifingar og neyslu innan lands, skal slátra í löggiltum sláturhúsum. Kæling og frysting afurðanna skal fara fram í viðurkenndum kælum og frystum og geymsla þeirra í viðurkenndum kæligeymslum og frystigeymslum. [Ráðherra]1) löggildir sláturhús, kjötgeymslur og kjötvinnslustöðvar, að fengnum meðmælum [Matvælastofnunar],2) ef húsin eru svo fullkomin að gerð og öllum útbúnaði að hægt sé þess vegna að fullnægja öllum kröfum um gæði, heilnæmi og hollustu afurðanna. Í löggildingu sláturhúss skal tilgreina hámarksdagsslátrun. Í sláturhúsum og kjötvinnslustöðvum skulu vera löggiltar vogir. [Ráðherra]1) setur reglugerð3) um gerð og búnað sláturhúsa og kjötvinnslustöðva, lágmarkskröfur varðandi fyrirkomulag, hreinlæti og útbúnað þeirra, rekstur rannsóknastofa, reglur um notkun hreinsi- og sótthreinsiefna og eftirlit með heilsufari starfsfólks. Eigendum lögbýla er heimilt að slátra búfé sínu á sjálfu býlinu til eigin neyslu. [Ráðherra]1) getur sett reglur um töku og sendingu sýna til rannsókna úr þessum sláturdýrum og afurðum samkvæmt tillögum [Matvælastofnunar].2) 1)L. 126/2011, 252. gr.2)L. 167/2007, 65. gr.3)Rg. 260/1980, sbr. 417/2002, 688/2002 og 783/2011. Rg. 461/2003. Rg. 637/2005, sbr. 655/2011. Rg. 489/2009. 6. gr. Hver sá sem hyggst slátra dýrum sem lög þessi taka til í þeim tilgangi að dreifa afurðum skal senda [ráðuneytinu]1) umsókn um löggildingu aðstöðu til slátrunar, kælingar, frystingar, vinnslu og geymslu sláturafurða. Hver sá sem hyggst byggja hús til slátrunar, úrvinnslu eða geymslu sláturafurða eða gera meiri háttar breytingar og endurbætur á slíkum húsum skal senda [ráðuneytinu]1) teikningar af húsunum og fá samþykki þess á þeim áður en framkvæmdir hefjast. Leita skal umsagnar [Matvælastofnunar]2) um teikningarnar og fyrirhugaðar breytingar og endurbætur. Eftir löggildingu skulu kjötskoðunarlæknar annast árlega skoðun á sláturhúsum, kjötgeymslum og kjötvinnslustöðvum undir stjórn [Matvælastofnunar]2) og samkvæmt reglum sem [stofnunin]3) setur. Ráðherra setur með reglugerð ákvæði um þekkingu og verkkunnáttu verkstjóra og slátrara, en í hverju sláturhúsi skal að öðru jöfnu starfa maður með slátraramenntun. 1)L. 126/2011, 252. gr.2)L. 167/2007, 65. gr.3)L. 76/2005, 14. gr. 7. gr. Nú fullnægir sláturhús, kjötgeymsla eða kjötvinnslustöð eigi lengur skilyrðum fyrir löggildingu, og ber þá kjötskoðunarlækni sem eftirlitið hefur annast að skýra þeim sem sláturleyfi hefur og [Matvælastofnun]1) samstundis frá því. [Matvælastofnun]1) setur umráðamönnum hússins hæfilegan frest til að lagfæra það sem ábótavant er. Löggildingin fellur niður um stundarsakir ef eigi er bætt úr göllum innan frestsins. [Matvælastofnun]1) tilkynnir þá jafnframt ráðherra að slátrun á þeim stað skuli þá þegar stöðvuð uns úr hefur verið bætt. 1)L. 167/2007, 65. gr. 8. gr. [Ráðherra]1) setur með reglugerð2) ákvæði um flutning sláturafurða á markað, útbúnað flutningatækja og meðferð afurðanna í flutningi. 1)L. 126/2011, 252. gr.2)Rg. 461/2003. 9. gr. Slösuðum dýrum má slátra utan sláturhúsa í samræmi við nánari reglur sem [ráðherra]1) setur að fengnum tillögum [Matvælastofnunar]2) og í samráði við [þann ráðherra er fer með málefni dýraverndar].1) Ekki má koma með sýnilega sjúk dýr í sláturhús til förgunar, nema sérstakur klefi sé til þeirra nota einna í sláturhúsinu. Sjálfdauðar skepnur eða afurðir af þeim má aldrei flytja í sláturhús, kjötgeymslur eða kjötvinnslustöðvar. Sláturdýr, sem komin eru í sláturhúsrétt, má eigi flytja þaðan til lífs heldur skal þeim slátrað, nema til komi leyfi [Matvælastofnunar].2) 1)L. 126/2011, 252. gr.2)L. 167/2007, 65. gr.
IV. kafli.Meðhöndlun og heilbrigði sláturafurða. 14. gr. Sláturafurðir og unnar kjötvörur má ekki framleiða, selja eða afhenda ef afurðirnar eru óhreinar, mengaðar, skemmdar eða með annarlegri lykt eða útliti og hætta er á sýkingum eða eitrunum við venjulega neyslu þeirra. Sláturafurðum, sem reynast spilltar eða sýktar svo að hætta getur stafað af til manneldis eða fóðurgerðar samkvæmt ákvörðun kjötskoðunarlæknis, skal þegar í stað eytt samkvæmt reglum1) sem [ráðherra]2) setur. [Ráðherra]2) getur fyrirskipað dreifingarbann, upptöku og eyðingu á vörum sem ekki uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í lögunum eða reglum, settum samkvæmt þeim. [Ráðherra]2) setur reglugerð3) um slátrun, kælingu, frystingu, hlutun, brytjun, pökkun, flutning og aðra meðferð sláturafurða. 1)Rg. 820/2007, sbr. 679/2008, 930/2008, 881/2010 og 1268/2011. 2)L. 126/2011, 252. gr.3)Rg. 653/2001, sbr. 866/2002, 580/2003, 639/2003, 480/2004, 578/2005, 91/2007, 798/2007, 965/2007, 1218/2007, 196/2008, 443/2008, 569/2008, 35/2009, 329/2009, 381/2009 og 677/2009. Rg. 461/2003. Rg. 489/2009. Rg. 882/2010.
V. kafli.Gæðamat sláturafurða. 15. gr. Kjötmatsmenn skulu meta allar sláturafurðir sem fluttar eru á erlendan markað eða til sölu innan lands og flokka og merkja eftir tegundum og gæðum. Þá gæta kjötmatsmenn þess, í samvinnu við kjötskoðunarlækni, að reglum um slátrun og sláturhús sé fylgt, einkum að því er varðar hreinlega og góða meðferð sláturafurða. Um störf og skyldur kjötmatsmanna skal ákveðið með reglugerð sem [ráðherra]1) setur. Sláturleyfishafar greiða allan kostnað af starfi kjötmatsmanna. Heimilt er að óska eftir yfirmati á sláturafurðum og skal rökstudd beiðni þar um send [Matvælastofnun].2) [Ráðherra]1) setur reglugerð um gæðamat, flokkun og merkingu á sláturafurðum að fengnum tillögum [Matvælastofnunar]2) er hafi samráð við helstu hagsmunaaðila. 1)L. 126/2011, 252. gr.2)L. 167/2007, 65. gr. 16. gr. [[Matvælastofnun]1) samræmir mat og flokkun á sláturafurðum samkvæmt reglugerðum sem settar eru um þau efni. [Matvælastofnun]1) getur einnig, eftir því sem þörf er á, gert athugun á sláturafurðum sem ætlaðar eru til dreifingar innan lands eða á erlendan markað.]2) Til að standa straum af kostnaði við yfirmat samkvæmt lögum þessum skal innheimta sérstakt gjald. Gjald þetta, sem sláturleyfishafar greiða, skal vera 0,55 kr. á hvert kíló kjöts sem innvegið er í sláturhúsi. [Ráðherra]3) er heimilt að kveða nánar á um innheimtu gjaldsins með reglugerð. 1)L. 167/2007, 65. gr.2)L. 76/2005, 17. gr.3)L. 126/2011, 252. gr.
VI. kafli.Ýmis ákvæði. 17. gr. Ráðherra setur, að fengnum tillögum [Matvælastofnunar],1) gjaldskrá2) þar sem kveðið er á um leyfisgjöld fyrir kjötvinnslustöðvar og uppruna- og heilbrigðisvottorð fyrir sláturafurðir sem seldar eru innan lands eða fluttar á erlendan markað. Við ákvörðun gjalda skal miða við að tekjur standi undir nauðsynlegum kostnaði við úttekt á kjötvinnslustöð og útgáfu heilbrigðisvottorða. 1)L. 167/2007, 65. gr.2)Rg. 168/1970, sbr. 630/1982, 399/1987, 597/1994, 466/1996 og 461/2003. Rg. 234/2010, sbr. 50/2011. [17. gr. a. Ráðherra setur með reglugerð1) ákvæði um meðferð aukaafurða úr sláturdýrum sem skal vera í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002, frá 3. október 2002, um heilbrigðisreglur um aukaafurðir úr dýrum sem ekki eru ætlaðar til manneldis.]2) 1)Rg. 108/2010. Rg. 120/2010. Rg. 121/2010. Rg. 122/2010. Rg. 123/2010. Rg. 124/2010. Rg. 125/2010. Rg. 126/2010. Rg. 127/2010. Rg. 489/2010. Rg. 564/2010. Rg. 565/2010. Rg. 606/2010. Rg. 169/2011. Rg. 261/2011. Rg. 820/2010. 2)L. 143/2009, 45. gr. 18. gr. [Matvælastofnun]1) og kjötskoðunarlæknum skal hvenær sem er vera heimill aðgangur að húsnæði og fyrirtækjum þar sem sláturdýr eða afurðir þeirra eru geymd og skulu þeim veittar allar nauðsynlegar upplýsingar vegna eftirlits og rannsókna sem óskað er á grundvelli laga þessara. 1)L. 167/2007, 65. gr. 19. gr. Óheimilt er að flytja úr landi sláturafurðir sem ekki uppfylla kröfur innflutningslandsins um heilbrigði, gæði, umbúðir og merkingar. 20. gr. Ráðherra er heimilt að afturkalla löggildingu ef sláturleyfishafi brýtur gegn ákvæðum laga þessara eða reglugerða, settra samkvæmt þeim, m.a. ef sláturleyfishafi stendur ekki skil á gjöldum skv. 11., 16. og 17. gr.
VII. kafli.Refsiákvæði og gildistaka. 21. gr. Brot gegn lögum þessum, reglugerðum og fyrirmælum, settum samkvæmt þeim, varða sektum eða [fangelsi allt að 2 árum]1) ef sakir eru miklar. …2) 1)L. 82/1998, 240. gr.2)L. 88/2008, 233. gr. 22. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1997.
Ákvæði til bráðabirgða. I. Reglugerðir, auglýsingar og önnur fyrirmæli sett samkvæmt lögum nr. 30/1966, með síðari breytingum, skulu halda gildi sínu að svo miklu leyti sem þau stangast ekki á við lög þessi þar til nýjar reglugerðir, auglýsingar eða önnur fyrirmæli hafa öðlast gildi. II.