Tóku gildi 1. janúar 2000.Breytt meðl. 87/2009 (tóku gildi 20. ágúst 2009), l. 123/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
II. kafli.Starfsemi. 7. gr.Byggðaáætlun. [Ráðherra]1) leggur fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir fjögurra ára tímabil. Áætlunin skal lýsa markmiðum og stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum, áætlunum um aðgerðir og tengsl byggðastefnu við almenna stefnu í efnahags- og atvinnumálum og áætlunum á sviði opinberrar þjónustu í landinu. Í byggðaáætlun skal gerð grein fyrir ástandi og horfum í þróun byggðar í landinu. [Ráðherra]1) skal vinna að byggðaáætlun í samvinnu við Byggðastofnun. Við gerð byggðaáætlunar hafi [ráðherra]1) samráð við önnur ráðuneyti, sveitarfélög og aðra aðila eftir þörfum. Byggðaáætlun skal endurskoða á tveggja ára fresti. 1)L. 126/2011, 291. gr. 8. gr.Rannsóknir á atvinnu- og byggðaþróun. Byggðastofnun vinnur að gagnasöfnun og rannsóknum og fylgist með atvinnu- og byggðaþróun og helstu áhrifaþáttum hennar og árangri opinberra stuðningsaðgerða á sviði atvinnumála og byggðaþróunar, jafnt á Íslandi sem í löndum þar sem svipaðar aðstæður eru. Stofnunin getur tekið þátt í alþjóðlegum rannsóknarverkefnum og gert samninga við háskóla, rannsóknastofnanir og aðra um rannsóknir á þessu sviði. 9. gr.Atvinnuráðgjöf. Byggðastofnun skipuleggur og vinnur að ráðgjöf við atvinnulífið á landsbyggðinni í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra. Stofnunin skal í samstarfi við þá aðila sem sinna atvinnuráðgjöf vinna að bættu skipulagi atvinnuráðgjafar og aukinni þekkingu ráðgjafa, m.a. í því skyni að gera ráðgjöfina markvissa og stuðla að betri nýtingu fjármuna. Stofnunin getur gert samninga við atvinnuþróunarfélög, stofnanir, sveitarfélög, sjálfstætt starfandi ráðgjafa eða aðra um að annast atvinnuráðgjöf á tilteknu sviði, atvinnugrein eða landsvæði. 10. gr.Fjármögnun verkefna. Byggðastofnun veitir framlög til verkefna á sviði atvinnuuppbyggingar og nýsköpunar. Stjórn stofnunarinnar ákveður verkefnin og leitar eftir samstarfsaðilum um þau. Við umfjöllun um einstök verkefni getur stjórnin, ásamt samstarfsaðilum, sett á fót verkefnanefndir til ráðgjafar. Einnig er heimilt að fela atvinnuþróunarfélögum úthlutun fjár til einstakra verkefna. 11. gr.Veiting lána og ábyrgða. Byggðastofnun veitir lán eða ábyrgðir í samræmi við hlutverk sitt, sbr. 2. gr. Stjórn stofnunarinnar getur falið forstjóra að ákveða einstakar lánveitingar samkvæmt reglum sem stjórn setur, sbr. 10. tölul. 4. gr. Reikningslegur aðskilnaður skal vera á milli lánastarfsemi stofnunarinnar og annarrar starfsemi. Fjárhagslegt markmið lánastarfsemi stofnunarinnar samkvæmt þessari grein skal vera að varðveita eigið fé hennar að raungildi. Stjórn Byggðastofnunar getur tekið ákvörðun um að gera samninga um að fela fjármálastofnunum afgreiðslu og innheimtu lána, sem og aðra fjármálaumsýslu stofnunarinnar. 12. gr.Fjármögnun þróunarverkefna. Byggðastofnun er heimilt að fjármagna áhættusöm verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar samkvæmt nánari reglum sem [ráðherra]1) setur að fengnum tillögum stjórnar. Þessi starfsemi skal einkum fjármögnuð með sérstökum framlögum úr ríkissjóði. 1)L. 126/2011, 291. gr.
III. kafli.Önnur ákvæði. 13. gr.Upplýsingar um starfsemi. [Ráðherra]1) skal gefa Alþingi árlega skýrslu um starfsemi Byggðastofnunar og framvindu byggðaáætlunar. Ársreikningum skal fylgja skrá yfir verkefni stofnunarinnar og fjármögnun þeirra. 1)L. 126/2011, 291. gr. 14. gr.Tekjur. Tekjur Byggðastofnunar eru:
1. Framlag úr ríkissjóði eins og ákveðið er í fjárlögum hverju sinni. 2. Fjármagnstekjur. 15. gr.Lántaka. Byggðastofnun er heimilt innan ramma fjárlaga að taka lán til starfsemi sinnar innan lands eða erlendis, annaðhvort í eigin nafni eða fyrir milligöngu annarra aðila. 16. gr.Fjárvarsla. Handbært fé Byggðastofnunar skal geyma á reikningum í bönkum og sparisjóðum eða tryggum verðbréfum. 17. gr.Undanþága frá gjöldum og sköttum. Byggðastofnun er undanþegin öllum opinberum gjöldum og sköttum til ríkissjóðs. 18. gr.Þagnarskylda. Stjórnarmenn og allir starfsmenn Byggðastofnunar eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli málsins. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi. 19. gr.Reglugerð. Nánari ákvæði um skipulag og starfsemi Byggðastofnunar og framkvæmd laga þessara má setja með reglugerð.1) 1)Rg. 347/2000. 20. gr.Gildistaka. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2000. Ákvæði til bráðabirgða. Við gildistöku laga þessara skipar iðnaðarráðherra stjórn Byggðastofnunar skv. 3. gr. fram að fyrsta ársfundi sem halda skal fyrir 1. júlí 2000.