Tóku gildi 6. júní 2000.EES-samningurinn: XX. viðauki tilskipun 85/337/EBE. Breytt meðl. 74/2005 (tóku gildi 1. okt. 2005), l. 166/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009), l. 72/2010 (tóku gildi 25. júní 2010), l. 123/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 131/2011 (tóku gildi 1. jan. 2012) og l. 60/2013 (taka gildi 1. jan. 2014).
II. kafli.Stjórnsýsla. 4. gr.Yfirstjórn og framkvæmd. [Ráðherra]1) fer með yfirstjórn þeirra mála sem lög þessi taka til. Á varnarsvæðum fer [ráðherra varnarmála]1) með lögsögu samkvæmt lögum um yfirstjórn mála á varnarsvæðum. Skipulagsstofnun er ráðherra til ráðgjafar og annast eftirlit með framkvæmd laga þessara og veitir leiðbeiningar samkvæmt þeim. [Skipulagsstofnun tekur ákvörðun um hvort framkvæmd skv. 6. gr. skuli háð mati á umhverfisáhrifum og gefur álit um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar og starfsemi sem henni fylgir.]2) 1)L. 126/2011, 311. gr.2)L. 74/2005, 4. gr.
III. kafli.Matsskylda. 5. gr.Matsskyldar framkvæmdir. Þær framkvæmdir sem tilgreindar eru í 1. viðauka við lög þessi skulu ávallt háðar mati á umhverfisáhrifum. [Í þeim tilvikum þegar fleiri en ein matsskyld framkvæmd eru fyrirhugaðar á sama svæði eða framkvæmdirnar eru háðar hver annarri getur Skipulagsstofnun að höfðu samráði við viðkomandi framkvæmdaraðila og leyfisveitendur ákveðið að umhverfisáhrif þeirra skuli metin sameiginlega.]1) Heimilt er ráðherra í sérstökum undantekningartilvikum, að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar, að ákveða að tiltekin framkvæmd, eða hluti hennar, sem varðar almannaheill og/eða öryggi landsins sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum þessum. Í slíkum tilvikum skal ráðherra kveða á um hvaða gögnum skuli safnað um umhverfisáhrif hennar og aðgang almennings að þeim og kynna framkvæmdaraðila, leyfisveitendum og almenningi ástæður fyrir undanþágunni. Ráðherra ber áður en undanþága er veitt að tilkynna sameiginlegu EES-nefndinni á hvaða forsendu hún er veitt og einnig að láta sameiginlegu EES-nefndinni í té þær upplýsingar sem almenningur hefur aðgang að. Ráðherra getur heimilað í sérstökum undantekningartilvikum, að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar og leyfisveitenda, að mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar, eða hluta hennar, samkvæmt þessari grein og 6. gr. fari fram með öðrum hætti en kveðið er á um í lögum þessum. Málsmeðferð slíks mats skal vera jafngild þeirri málsmeðferð sem mælt er fyrir um í IV. kafla. 1)L. 74/2005, 5. gr. 6. gr.Framkvæmdir sem kunna að vera háðar mati á umhverfisáhrifum. Framkvæmdir sem tilgreindar eru í 2. viðauka við lög þessi skulu háðar mati á umhverfisáhrifum þegar þær geta haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif vegna umfangs, eðlis eða staðsetningar. Nú er fyrirhuguð framkvæmd meðal þeirra sem taldar eru í 2. viðauka við lög þessi og ber framkvæmdaraðila þá að tilkynna Skipulagsstofnun um hana. Ráðherra setur í reglugerð ákvæði um hvaða gögn skuli lögð fram til Skipulagsstofnunar. Innan fjögurra vikna frá því að gögn um framkvæmdina berast skal stofnunin tilkynna hvort framkvæmdin skuli háð mati samkvæmt lögum þessum. Við ákvörðun um matsskyldu skal Skipulagsstofnun fara eftir viðmiðum í 3. viðauka við lög þessi. Áður skal stofnunin leita álits leyfisveitenda, framkvæmdaraðila og annarra eftir eðli máls hverju sinni. Skipulagsstofnun skal gera hlutaðeigandi grein fyrir niðurstöðu sinni og kynna hana almenningi. Almenningi skal heimilt að tilkynna framkvæmd eða bera fram fyrirspurn um matsskyldu framkvæmda sem taldar eru upp í 2. viðauka til Skipulagsstofnunar og skal stofnunin þá leita upplýsinga um framkvæmdina hjá framkvæmdaraðila og leyfisveitanda og taka ákvörðun um hvort hún eigi undir grein þessa. …1) 1)L. 74/2005, 6. gr. 7. gr.Aðrar framkvæmdir sem hugsanlega eru matsskyldar. [Ráðherra]1) er heimilt, að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar, að mæla svo um í reglugerð að framkvæmd sem ekki er talin upp í 1. og 2. viðauka við lög þessi skuli háð mati ef sýnt þykir að hún geti haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Sama gildir um framkvæmd sem varðar alþjóðasamninga sem Ísland er aðili að. Við ákvörðunina skal ráðherra fylgja viðmiðunum í 3. viðauka við lög þessi og leita álits Skipulagsstofnunar, leyfisveitenda, framkvæmdaraðila og annarra eftir eðli máls hverju sinni. 1)L. 126/2011, 311. gr.
IV. kafli.Málsmeðferð vegna matsskyldra framkvæmda. 8. gr.Matsáætlun. Nú er fyrirhuguð framkvæmd háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum þessum og skal framkvæmdaraðili þá gera tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar eins snemma á undirbúningsstigi framkvæmdar og kostur er. Í tillögu framkvæmdaraðila skal lýsa framkvæmdinni, framkvæmdasvæði og öðrum möguleikum sem til greina koma og gefa upplýsingar um skipulag á framkvæmdasvæði og hvernig framkvæmd samræmist skipulagsáætlunum. Þar skal og vera áætlun um á hvaða þætti framkvæmdarinnar og umhverfis lögð verði áhersla, hvaða gögn liggi fyrir og áætlun um kynningu og samráð. Framkvæmdaraðili skal kynna tillögu að matsáætlun umsagnaraðilum og almenningi og hafa samráð við Skipulagsstofnun. Skipulagsstofnun skal taka ákvörðun um tillögu framkvæmdaraðila innan fjögurra vikna frá því að tillaga berst, að fenginni umsögn leyfisveitenda og eftir atvikum annarra aðila. [Skipulagsstofnun getur fallist á tillögu að matsáætlun með eða án athugasemda. Geri stofnunin athugasemdir skulu þær verða hluti af matsáætlun.]1) Fallist Skipulagsstofnun ekki á tillögu að matsáætlun skal stofnunin rökstyðja ákvörðun sína, gera grein fyrir því sem hún telur ábótavant og leiðbeina framkvæmdaraðila um frekari vinnslu tillögu að matsáætlun. Fallist Skipulagsstofnun á tillögu að matsáætlun skal hún kynnt leyfisveitendum og öðrum umsagnaraðilum. Ef sérstakar ástæður mæla með getur Skipulagsstofnun á síðari stigum, sbr. 9. og 10. gr., farið fram á að framkvæmdaraðili leggi fram frekari gögn, enda rökstyðji stofnunin beiðnina sérstaklega. 1)L. 74/2005, 7. gr. 9. gr.[Frummatsskýrsla. Ef framkvæmdaraðili hyggur á framkvæmd eða starfsemi sem háð er mati á umhverfisáhrifum skal að lokinni málsmeðferð skv. 8. gr. unnin skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hinnar fyrirhuguðu framkvæmdar. Skýrslan er nefnist frummatsskýrsla skal unnin af framkvæmdaraðila og skal gerð og efni hennar vera í samræmi við matsáætlun, sbr. 8. gr. Í skýrslunni skal tilgreina þau áhrif, uppsöfnuð og samvirk, bein og óbein, sem fyrirhuguð framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir kunna að hafa á umhverfi og samspil einstakra þátta í umhverfinu. Þá skal gera grein fyrir því hvaða forsendur liggi til grundvallar matinu. Lýsa skal þeim þáttum fyrirhugaðrar framkvæmdar sem líklegast er talið að geti valdið áhrifum á umhverfið, þar á meðal umfangi, hönnun og staðsetningu, samræmi við skipulagsáætlanir, fyrirhuguðum mótvægisaðgerðum og tillögum um umhverfisvöktun þar sem það á við. Ávallt skal gera grein fyrir helstu möguleikum sem til greina koma og umhverfisáhrifum þeirra og bera þá saman. Loks skal gera stutta og skýra samantekt um skýrsluna og niðurstöðu hennar. Í niðurstöðu skýrslunnar skal geta um flokkun og viðmið umhverfisáhrifa einstakra þátta framkvæmdar á grundvelli leiðbeininga sem Skipulagsstofnun gefur út, sbr. 20. gr.]1) 1)L. 74/2005, 8. gr. 10. gr.[Athugun Skipulagsstofnunar og matsskýrsla.]1) [Innan tveggja vikna frá því að Skipulagsstofnun tekur á móti frummatsskýrslu skal stofnunin meta hvort skýrslan uppfylli þær kröfur sem gerðar eru í 9. gr. og sé í samræmi við matsáætlun skv. 8. gr. Heimilt er Skipulagsstofnun að hafna því að taka frummatsskýrslu til athugunar í þeim tilvikum þegar hún uppfyllir ekki framangreind skilyrði. Skipulagsstofnun skal þá leiðbeina framkvæmdaraðila um frekari vinnslu frummatsskýrslu.]1) Skipulagsstofnun kynnir hina fyrirhuguðu framkvæmd og [frummatsskýrslu].1) Skal það gert með auglýsingu í Lögbirtingablaðinu, dagblaði sem gefið er út á landsvísu og eftir því sem við á í fjölmiðli sem ætla má að nái til þeirra sem búa nærri framkvæmdasvæði. Framkvæmdaraðili skal kynna framkvæmd og [frummatsskýrslu]1) í samráði við Skipulagsstofnun eftir að skýrslan hefur verið auglýst. Skipulagsstofnun getur vikið frá þeirri kröfu ef sýnt þykir að framkvæmd og [frummatsskýrsla]1) hafi hlotið fullnægjandi kynningu. [Frummatsskýrslan]1) skal liggja frammi á aðgengilegum stað nærri framkvæmdasvæði og hjá Skipulagsstofnun í sex vikur sem jafnframt er sá frestur sem gefst til að koma skriflegum athugasemdum á framfæri við Skipulagsstofnun. Öllum er heimilt að gera athugasemdir við framlagða [frummatsskýrslu].1) Skipulagsstofnun skal leita umsagnar leyfisveitenda og annarra aðila eftir því sem við á. Umsagnaraðilar skulu gefa álit á því hvort fjallað sé á fullnægjandi hátt í [frummatsskýrslu]1) um það sem er á starfssviði þeirra og jafnframt hvort fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir séu fullnægjandi. Þeir skulu, ef tilefni er til, tilgreina hvað þarf að kanna frekar og benda á mögulegar mótvægisaðgerðir. [Skipulagsstofnun skal senda framkvæmdaraðila umsagnir og athugasemdir sem henni berast. Þegar umsagnir og athugasemdir hafa borist framkvæmdaraðila skal hann vinna endanlega matsskýrslu á grundvelli frummatsskýrslu. Í matsskýrslu skal framkvæmdaraðili gera grein fyrir framkomnum athugasemdum og umsögnum og taka afstöðu til þeirra og senda hana síðan til Skipulagsstofnunar.]1) 1)L. 74/2005, 9. gr. 11. gr.[Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum. Innan fjögurra vikna frá því að Skipulagsstofnun tekur á móti matsskýrslu skal stofnunin gefa rökstutt álit sitt á því hvort skýrslan uppfylli skilyrði laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim og að umhverfisáhrifum sé lýst á fullnægjandi hátt. Í áliti Skipulagsstofnunar skal gera grein fyrir helstu forsendum matsins, þ.m.t. gildi þeirra gagna sem liggja til grundvallar matinu, og niðurstöðum þess. Jafnframt skal í álitinu fjalla um afgreiðslu framkvæmdaraðila á þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust við kynningu á frummatsskýrslu. Telji Skipulagsstofnun að setja þurfi frekari skilyrði fyrir framkvæmdinni eða gera þurfi aðrar eða frekari mótvægisaðgerðir en fram koma í matsskýrslu skal stofnunin tilgreina skilyrðin og mótvægisaðgerðirnar og færa rök fyrir þeim. Telji Skipulagsstofnun að matsskýrsla framkvæmdaraðila víki frá frummatsskýrslu hvað varðar mikilvæga þætti málsins skal hún auglýst að nýju skv. 10. gr. Þegar álit Skipulagsstofnunar liggur fyrir skal það kynnt [ráðherra],1) framkvæmdaraðila, leyfisveitendum og öðrum umsagnaraðilum, svo og þeim sem gert hafa athugasemdir við frummatsskýrslu á kynningartíma. Almenningur skal eiga greiðan aðgang að áliti Skipulagsstofnunar og matsskýrslu og skal stofnunin auglýsa í dagblaði sem gefið er út á landsvísu að álitið og matsskýrslan liggi fyrir.]2)1)L. 126/2011, 311. gr.2)L. 74/2005, 10. gr. [12. gr.Endurskoðun matsskýrslu. Ef framkvæmdir hefjast ekki innan tíu ára frá því að álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir skal viðkomandi leyfisveitandi óska ákvörðunar Skipulagsstofnunar um hvort endurskoða þurfi að hluta eða í heild matsskýrslu framkvæmdaraðila áður en leyfi til framkvæmda er veitt. Skipulagsstofnun getur ákveðið að endurskoða skuli matsskýrslu framkvæmdaraðila skv. 1. mgr. ef forsendur hafa breyst verulega frá því að álitið lá fyrir, svo sem vegna breytinga á náttúrufari eða landnotkun á áhrifasvæði framkvæmdarinnar, breytinga á löggjöf um umhverfismál, breytinga á alþjóðlegum skuldbindingum eða vegna tækniþróunar varðandi framkvæmdina. Verði niðurstaðan sú að endurskoða skuli matsskýrslu að hluta eða í heild skal fara með málið skv. 8.–11. gr. eftir því sem við á. Ákvörðun Skipulagsstofnunar um endurskoðun matsskýrslu skal auglýst í Lögbirtingablaði og dagblaði sem gefið er út á landsvísu innan tveggja vikna frá því að ákvörðun liggur fyrir. Í auglýsingu skal tilgreina kæruheimildir og kærufresti.]1) 1)L. 74/2005, 11. gr. [13. gr.]1)Leyfi til framkvæmda. [Óheimilt er að gefa út leyfi til framkvæmdar skv. 5. eða 6. gr. fyrr en álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir eða ákvörðun um að framkvæmd skv. 6. gr. sé ekki matsskyld. Við útgáfu leyfis til framkvæmdar skv. 1. mgr. skal leyfisveitandi kynna sér matsskýrslu framkvæmdaraðila um framkvæmdina og taka rökstudda afstöðu til álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum hennar. Leyfisveitandi skal birta opinberlega ákvörðun sína um útgáfu leyfis og niðurstöðu álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum innan tveggja vikna frá útgáfu leyfis. Í ákvörðun skal tilgreina kæruheimild og kærufrest þegar það á við.]1) 1)L. 74/2005, 13. gr. [14. gr.[Málskot.]1) [Ákvarðanir Skipulagsstofnunar skv. 6. gr. um hvort framkvæmd sem tilgreind er í 2. viðauka sé matsskyld og ákvarðanir skv. 2. mgr. 5. gr. sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála; sömuleiðis ákvarðanir stofnunarinnar skv. 12. gr. um endurskoðun matsskýrslu. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.]1) …1) Enn fremur getur framkvæmdaraðili kært til [úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála]1) ákvörðun Skipulagsstofnunar skv. 2. mgr. 8. gr. um synjun matsáætlunar eða breytingar á henni og ákvörðun stofnunarinnar skv. 1. mgr. 10. gr. um að frummatsskýrsla uppfylli ekki þær kröfur sem gerðar eru í 9. gr. eða sé ekki í samræmi við matsáætlun skv. 8. gr. …1) Úrskurður ráðherra er fullnaðarúrskurður á stjórnsýslustigi.]2) 1)L. 131/2011, 25. gr.2)L. 74/2005, 12. gr. [15. gr. …1)]2) 1)L. 131/2011, 26. gr.2)L. 74/2005, 12. gr.
V. kafli.Ýmis ákvæði. [16. gr.]1)Ábyrgð framkvæmdaraðila og kostnaður við mat á umhverfisáhrifum. Framkvæmdaraðili er ábyrgur fyrir mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum þessum. Framkvæmdaraðili ber kostnað af mati á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar framkvæmdar og af auglýsingum og kynningu á henni. [Ráðherra]2) setur, að fenginni tillögu Skipulagsstofnunar, gjaldskrá vegna kostnaðar stofnunarinnar við framkvæmd laganna varðandi mat á umhverfisáhrifum einstakra framkvæmda. 1)L. 74/2005, 12. gr.2)L. 126/2011, 311. gr. [17. gr.]1)Skipulagsáætlanir og starfsleyfi. Um umfjöllun í skipulagsáætlun um mat á umhverfisáhrifum og matsskyldar framkvæmdir samkvæmt lögum þessum fer samkvæmt [skipulagslögum]2) og skipulagsreglugerð. Þegar um framkvæmd vegna starfsleyfisskylds atvinnureksturs er að ræða samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem jafnframt er matsskyld samkvæmt lögum þessum er framkvæmdaraðila heimilt, að fengnu samþykki Skipulagsstofnunar, að vinna matsáætlun í samráði við starfsleyfisveitanda þannig að á sama tíma verði unnið að matsskýrslu og starfsleyfi. 1)L. 74/2005, 12. gr.2)L. 123/2010, 57. gr. [18. gr.Eftirlit framkvæmda. Leyfisveitandi eða aðrir sem falið er með lögum eftirlit með framkvæmdum hafa eftirlit með því að matsskyldri framkvæmd sé hagað í samræmi við leyfi og fer um eftirlitið samkvæmt hlutaðeigandi lögum.]1) 1)L. 74/2005, 14. gr. [19. gr.]1)Mat á umhverfisáhrifum yfir landamæri. Ef líklegt þykir að framkvæmd muni hafa umtalsverð umhverfisáhrif í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins ber Skipulagsstofnun að senda því ríki lýsingu á framkvæmdinni ásamt tiltækum upplýsingum um hugsanleg áhrif hennar yfir landamæri. Skipulagsstofnun getur krafist þess að framkvæmdaraðili taki saman upplýsingar um hugsanleg áhrif í viðkomandi ríki á tungumáli þess. Þegar líklegt þykir að framkvæmd hér á landi muni hafa umtalsverð áhrif á umhverfi annars ríkis innan Evrópska efnahagssvæðisins skal gefa því tækifæri til að fjalla um málið. 1)L. 74/2005, 15. gr. [20. gr.]1)[Reglugerð og leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum.]1) [Ráðherra]2) setur í reglugerð,3) að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar, nánari ákvæði um framkvæmd laganna, þar með talið um:
a. tilkynningar um framkvæmdir skv. 2. viðauka, b. framsetningu matsáætlunar, matsskýrslu og gögn, c. samráðsferlið, d. annars konar mat, e. aðgang almennings að gögnum, f. kynningu á framkvæmd og [álitum],1) g. framlagningu frekari gagna, h. …1) i. samtengingu vinnu við mat á umhverfisáhrifum og starfsleyfis, j. eftirlit. [Skipulagsstofnun gefur út leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum, m.a. um:
a. undirbúning og málsmeðferð vegna ákvarðana um matsskyldu framkvæmda, b. undirbúning og málsmeðferð vegna matsáætlana, c. undirbúning og málsmeðferð vegna matsskýrslna, d. flokkun og viðmið umhverfisáhrifa, e. nauðsynleg leyfi vegna matsskyldra framkvæmda.]1) 1)L. 74/2005, 15. gr.2)L. 126/2011, 311. gr.3)Rg. 1123/2005, sbr. 338/2010. [21. gr.Undanþága frá frestum. Skipulagsstofnun er í samráði við framkvæmdaraðila heimilt í viðamiklum málum að víkja frá frestum þeim sem mælt er fyrir um í lögum þessum.]1) 1)L. 74/2005, 16. gr. [22. gr.]1)Gildistaka. Lög þessi öðlast þegar gildi. 1)L. 74/2005, 16. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. I. Þrátt fyrir ákvæði III. kafla laga þessara eru framkvæmdir samkvæmt leyfum útgefnum fyrir 1. maí 1994 ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögunum séu þær hafnar fyrir árslok 2002. Ágreiningur um hvort framkvæmd sé hafin samkvæmt þessu ákvæði til bráðabirgða á undir úrskurð [ráðherra].1) 1)L. 126/2011, 311. gr. II. [Þegar matsskýrsla hefur verið send Skipulagsstofnun fyrir gildistöku laga þessara er heimilt að ljúka mati á umhverfisáhrifum samkvæmt þeirri málsmeðferð sem gildir samkvæmt eldri lögum. Í þeim tilvikum þegar matsferli framkvæmdar sem undir lög þessi fellur hefur verið lokið samkvæmt eldri lögum en ekki hafa verið veitt öll leyfi vegna hennar skal við leyfisveitingu fara samkvæmt þeim lögum.]1) 1)L. 74/2005, 17. gr. III. Lög þessi skulu endurskoðuð fyrir 1. janúar 2003. Við endurskoðunina skal sérstaklega kanna hvort ástæða sé til að sameina og samræma mat, sbr. 11.–13. gr., við leyfisveitingar fyrir einstökum framkvæmdum, í hvaða mæli skipulagsáætlanir geti komið í stað mats á umhverfisáhrifum framkvæmdar og hvort færa beri ábyrgð á mati til framkvæmdaraðila í ríkari mæli en gert er í lögum þessum. IV. Reglugerð um mat á umhverfisáhrifum skv. 19. gr. skal sett eins fljótt og auðið er og skal hún hafa öðlast gildi eigi síðar en 1. október 2000.