Tóku gildi 30. desember 2005.Breytt meðl. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011) og l. 179/2011 (tóku gildi 30. des. 2011).
1. gr.Fjarskiptasjóður. Stofna skal sérstakan sjóð, fjarskiptasjóð, sem hefur það hlutverk að stuðla að uppbyggingu á sviði fjarskiptamála á grundvelli fjarskiptaáætlunar. Sjóðurinn er eign ríkisins. Varsla hans og dagleg umsýsla heyrir undir [ráðuneytið].1) 1)L. 126/2011, 411. gr. 2. gr.Hlutverk. Hlutverk sjóðsins er að úthluta fjármagni til verkefna sem miða að uppbyggingu stofnkerfa fjarskipta, verkefna sem stuðla að öryggi og samkeppnishæfni þjóðfélagsins á sviði fjarskipta og annarra verkefna, enda sé kveðið á um þau í fjarskiptaáætlun, og ætla má að ekki verði í þau ráðist á markaðsforsendum. 3. gr.Stjórn. [Ráðherra skipar þrjá menn í stjórn fjarskiptasjóðs, þar af formann og varaformann, auk varamanna. Skipunin gildir til þriggja ára í senn.]1) Stjórn sjóðsins skal hafa yfirumsjón með fjármálum fjarskiptasjóðs í samræmi við hlutverk sjóðsins. Stjórn sjóðsins er jafnframt verkefnastjórn fjarskiptaáætlunar og skal hún skila skýrslu um starfsemi sjóðsins til [ráðherra]2) sem leggur hana fyrir Alþingi til upplýsingar. 1)L. 179/2011, 1. gr.2)L. 162/2010, 245. gr. 4. gr.Fjármögnun verkefna. Stjórnin ákveður framlög úr sjóðnum í samræmi við hlutverk sitt og fjarskiptaáætlun og semur greiðsluáætlun þar um innan heimilda fjárlaga. Stjórnin getur sett nánari reglur um framkvæmd einstakra verkefna, þar á meðal um faglegt eftirlit með verkefnum og framvindu þeirra. Stjórnin getur ákveðið tilfærslu fjármuna milli ára og/eða einstakra verkefna ef nauðsyn krefur. 5. gr.Umsýsla og eftirlit. Þeir sem fá úthlutað fé úr fjarskiptasjóði skulu gera grein fyrir framvindu verkefna og ráðstöfun fjár samkvæmt nánari reglum sjóðstjórnar. [Ríkisendurskoðun annast árlega endurskoðun reikninga sjóðsins.]1) 1)L. 179/2011, 2. gr. 6. gr.Tekjur. Tekjur fjarskiptasjóðs eru framlag úr ríkissjóði samkvæmt ákvörðun Alþingis og tekjur af ávöxtun fjármuna sjóðsins. [Tekjur ríkissjóðs sem til eru komnar vegna gjalda fyrir afnot af tíðnum, sem lögð eru á samkvæmt heimild í lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, skulu renna í fjarskiptasjóð.]1) 1)L. 179/2011, 3. gr. 7. gr.Kostnaður af rekstri. Fjarskiptasjóður ber allan kostnað af starfsemi sinni …1) 1)L. 179/2011, 4. gr. 8. gr.Reglugerðarheimild. [Ráðherra]1) er heimilt að kveða nánar á um skipulag sjóðsins og framkvæmd laga þessara með reglugerð.2) 1)L. 162/2010, 245. gr.2)Rg. 588/2006. 9. gr.Gildistaka. Lög þessi öðlast þegar gildi. [Lög þessi falla úr gildi í árslok árið 2016, inneign sjóðsins eftir uppgjör verkefna við þau tímamót rennur í ríkissjóð.]1) 1)L. 179/2011, 5. gr.