IV. kafli.Starfsskilyrði í æskulýðsstarfi. 10. gr. Miða skal við að þeir sem starfa með eða hafa umsjón með börnum og ungmennum í æskulýðsstarfi séu lögráða og hafi þjálfun, menntun, þekkingu eða reynslu til starfsins. Í skipulögðu æskulýðsstarfi og í ferðum með börnum og ungmennum er forustufólki, leiðbeinendum, sjálfboðaliðum og öðru starfsfólki óheimilt að neyta áfengis og annarra vímuefna. Óheimilt er að ráða til starfa hjá aðilum, sem 2. gr. tekur til og sinna börnum og ungmennum undir 18 ára aldri í æskulýðsstarfi, einstaklinga sem hlotið hafa refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Sama gildir um þá sem hlotið hafa refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Ákvæði þetta nær einnig til þeirra sem falin er umsjón með börnum og ungmennum undir 18 ára aldri á grundvelli sjálfboðaliðastarfs. Yfirmenn skóla, leikskóla, sumardvalarheimila, íþrótta- og tómstundamiðstöðva og annarra slíkra stofnana eða staða þar sem börn og ungmenni koma saman eða dveljast um lengri eða skemmri tíma, og 2. gr. tekur til, eiga rétt til upplýsinga úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur, sem sótt hefur um störf á þeirra vegum, hefur hlotið dóm vegna brota sem 3. mgr. tekur til, að fengnu samþykki hans. Standi ríki, sveitarfélag eða aðrir aðilar fyrir starfsemi sem fellur undir lög þessi skal þess gætt að hún uppfylli lög og reglur um aðgengi, aðstöðu, hollustuhætti og öryggisþætti.
V. kafli.Stuðningur sveitarfélaga við æskulýðsstarf. 11. gr. Sveitarstjórnir setja sér reglur um á hvern hátt stuðningi við frjálst æskulýðsstarf skuli háttað. Sveitarfélög hafa starfandi æskulýðsnefndir eða sambærilegar nefndir samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar. Sveitarstjórnir hlutast til um að stofnuð séu ungmennaráð. Hlutverk ungmennaráða er m.a. að vera sveitarstjórnum til ráðgjafar um málefni ungs fólks í viðkomandi sveitarfélagi. Sveitarstjórnir setja nánari reglur um hlutverk og val í ungmennaráð.
VI. kafli.Æskulýðsrannsóknir. 12. gr. Ráðherra stuðlar að því að fram fari reglubundnar æskulýðsrannsóknir sem lagðar verði til grundvallar stefnumótun í æskulýðsmálum. Ráðherra skipar fimm manna ráðgjafarnefnd um æskulýðsrannsóknir. Einn fulltrúi skal skipaður samkvæmt tilnefningu Æskulýðsráðs, einn fulltrúi samkvæmt tilnefningu æskulýðssamtaka og einn fulltrúi samkvæmt tilnefningu stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ráðherra skipar tvo fulltrúa án tilnefningar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi nefndarmanna. Skipunartími nefndarinnar er þrjú ár.
VII. kafli.Önnur ákvæði. 13. gr. Ráðherra getur í reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara. 14. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.