Tóku gildi 1. janúar 1997.Breytt meðl. 76/1997 (tóku gildi 1. júlí 1997), l. 83/2000 (tóku gildi 2. júní 2000 nema 1. gr. sem tók gildi 1. jan. 2001), l. 23/2006 (tóku gildi 3. maí 2006; EES-samningurinn: XX. viðauki tilskipun 2003/4/EB), l. 161/2006 (tóku gildi 1. jan. 2007), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 55/2009 (tóku gildi 1. maí 2009), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011) og l. 115/2012 (tóku gildi 2. nóv. 2012).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við forsætisráðherra eða forsætisráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér. I. kafli.Gildissvið laganna. 1. gr.Gildissvið. Lög þessi taka til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Lögin taka enn fremur til starfsemi einkaaðila að því leyti sem þeim hefur verið falið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna. 2. gr.Gildissvið gagnvart öðrum lögum og þjóðréttarsamningum. Lög þessi gilda ekki um þinglýsingu, aðfarargerðir, kyrrsetningu, löggeymslu, lögbann, nauðungarsölu, greiðslustöðvun, nauðasamninga, gjaldþrotaskipti, skipti á dánarbúum eða önnur opinber skipti, né heldur um rannsókn [sakamáls eða saksókn].1) [Lögin gilda ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum. Lögin gilda heldur ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nema óskað sé eftir aðgangi að skjölum eða öðrum gögnum sem 2. mgr. 3. gr. laga þessara tekur til. Þá gilda lögin heldur ekki ef á annan veg er mælt í þjóðréttarsamningum sem Ísland á aðild að.]2) Ákvæði annarra laga, sem heimila víðtækari aðgang að upplýsingum, halda gildi sínu. Almenn ákvæði laga um þagnarskyldu takmarka ekki rétt til aðgangs að gögnum samkvæmt lögum þessum. 1)L. 88/2008, 234. gr.2)L. 83/2000, 1. gr.
III. kafli.Aðgangur aðila að upplýsingum um hann sjálfan. 9. gr.Upplýsingaréttur aðila. Stjórnvöldum er skylt, sé þess óskað, að veita aðila sjálfum aðgang að skjölum og öðrum gögnum sem varða tiltekið mál ef þau hafa að geyma upplýsingar um hann sjálfan. Ákvæði 1. mgr. gilda þó ekki:
1. um þau gögn sem talin eru í 4. gr.; 2. um gögn sem hafa að geyma upplýsingar um mikilvæga almannahagsmuni er leynt eiga að fara skv. 6. gr. Heimilt er að takmarka aðgang aðila að gögnum ef þau hafa jafnframt að geyma upplýsingar um einkamálefni annarra, enda vegi þeir hagsmunir, sem mæla með því að upplýsingunum sé haldið leyndum, þyngra en hagsmunir þess sem fer fram á aðgang að gögnunum. [Um aðgang sjúklings að upplýsingum úr sjúkraskrá fer eftir ákvæðum laga um [sjúkraskrár].1)]2) Ákvæði 3., 7. og 8. gr. gilda, eftir því sem við getur átt, um aðgang aðila að gögnum. 1)L. 55/2009, 26. gr.2)L. 76/1997, 5. gr.
IV. kafli.Málsmeðferð. 10. gr.Beiðni um aðgang að upplýsingum. [Sá sem fer fram á aðgang að gögnum skal tilgreina þau gögn máls sem hann óskar að kynna sér. Þá getur hann óskað eftir að fá að kynna sér öll gögn um tiltekið mál án þess að tilgreina einstök gögn sem málið varða.]1) Stjórnvald getur sett það skilyrði að beiðni um aðgang að gögnum sé skrifleg og komi jafnframt fram á eyðublaði sem það leggur til.2) Þegar farið er fram á aðgang að gögnum um mál þar sem taka á eða tekin hefur verið ákvörðun um rétt eða skyldu manna skal beiðni beint til þess stjórnvalds sem tekið hefur eða taka mun ákvörðun í málinu. Annars skal beiðni beint til þess stjórnvalds sem hefur gögnin í sínum vörslum. 1)L. 161/2006, 2. gr.2)Rg. 674/1996. 11. gr.Málshraði og málsmeðferð. Stjórnvald skal taka ákvörðun um hvort það verður við beiðni um aðgang að gögnum svo fljótt sem verða má. Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar skal skýra aðila frá ástæðum tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta. [Þegar veittur er aðgangur að gögnum, sem þriðji maður á lögvarin réttindi yfir samkvæmt höfundalögum, skal veita upplýsingar um nafn rétthafa, liggi þær fyrir.]1) Um málsmeðferð fer að öðru leyti eftir stjórnsýslulögum. 1)L. 161/2006, 3. gr. 12. gr.[Ljósrit eða afrit af gögnum. Stjórnvöld taka ákvörðun um hvort gögn, sem heimilt er að veita aðgang að, skuli sýnd eða veitt af þeim ljósrit eða afrit. Eftir því sem við verður komið er stjórnvöldum þó skylt, sé þess óskað, að láta í té ljósrit eða afrit af gögnum á því formi eða sniði og á þeim tungumálum, sem þau eru varðveitt á, nema þau séu þegar aðgengileg almenningi á rafrænu formi. Þegar skjöl eru eingöngu varðveitt á rafrænu formi getur aðili krafist þess að fá þau prentuð á pappír, nema 3. mgr. eigi við. Þegar fjöldi skjala er mikill getur stjórnvald ákveðið að fela öðrum að sjá um ljósritun þeirra. Hið sama á við hafi stjórnvald ekki aðstöðu til að ljósrita skjöl. Aðili skal þá greiða þann kostnað sem hlýst af ljósritun skjalanna. Hið sama gildir um afrit af öðrum gögnum en skjölum eftir því sem við á. [Ráðherra]1) ákveður með gjaldskrá2) hvað greiða skuli fyrir ljósrit og afrit gagna sem veitt eru samkvæmt lögum þessum. Heimilt er að mæta öllum þeim kostnaði sem af því hlýst.]3) 1)L. 126/2011, 221. gr.2)Gjaldskrá 306/2009. 3)L. 161/2006, 4. gr. 13. gr.Tilkynning ákvörðunar. Ákvörðun stjórnvalds um að synja beiðni um aðgang að gögnum eða um ljósrit eða afrit af þeim skal tilkynnt skriflega ef beiðni hefur verið skrifleg.
V. kafli.Úrskurðarnefnd um upplýsingamál. 14. gr.Kæruheimild. Heimilt er að bera synjun stjórnvalds um að veita aðgang að gögnum samkvæmt lögum þessum undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál sem úrskurðar um ágreininginn. Hið sama gildir um synjun stjórnvalds um að veita ljósrit af skjölum eða afrit af öðrum gögnum. Nefndin er sjálfstæð í störfum sínum og verður úrskurðum hennar samkvæmt lögum þessum ekki skotið til annarra stjórnvalda. 15. gr.Úrskurðarnefnd um upplýsingamál. [Ráðherra]1) skipar þrjá menn í úrskurðarnefnd um upplýsingamál til fjögurra ára og jafnmarga til vara. Skulu tveir nefndarmenn og varamenn þeirra uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara. Skal annar þeirra vera formaður nefndarinnar en hinn varaformaður. Nefndarmenn mega ekki vera fastráðnir starfsmenn í Stjórnarráði Íslands. Nefndinni er heimilt að kalla sér til ráðgjafar og aðstoðar sérfróða aðila ef hún telur þörf á. [Nefndarmenn eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem fram kemur í gögnum er nefndinni eru látin í té. Sama gildir um þá sem hún kann að kveðja sér til aðstoðar.]2) 1)L. 126/2011, 221. gr.2)L. 83/2000, 2. gr. 16. gr.Málsmeðferð. Mál skv. 1. mgr. 14. gr. skal borið skriflega undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál innan 30 daga frá því að þeim sem fór fram á aðgang að gögnum var tilkynnt um ákvörðun. Nefndin getur veitt hlutaðeigandi stjórnvaldi stuttan frest til þess að láta í té rökstutt álit á málinu áður en því er ráðið til lykta. [Stjórnvaldi er skylt að láta nefndinni í té afrit af þeim gögnum er kæra lýtur að.]1) Þegar nefndarmenn eru ekki sammála ræður meiri hluti niðurstöðu máls. Ef atkvæði eru jöfn ræður atkvæði formanns. Um meðferð mála hjá úrskurðarnefndinni fer að öðru leyti eftir VII. kafla stjórnsýslulaga. 1)L. 83/2000, 3. gr. 17. gr.[Birting og aðfararhæfi úrskurðar.]1) Úrskurðarnefnd um upplýsingamál skal birta úrskurð þeim sem fór fram á aðgang að gögnum og því stjórnvaldi sem í hlut á svo fljótt sem verða má. Ef nefndin hefur tekið til greina beiðni um aðgang að gögnum ber stjórnvaldi að veita aðgang að þeim jafnskjótt og úrskurður hefur verið birtur, nema þess sé krafist að réttaráhrifum hans verði frestað skv. 18. gr. [Úrskurður samkvæmt lögum þessum um aðgang að gögnum eða afrit af þeim er aðfararhæfur, nema réttaráhrifum hans hafi verið frestað.]1) 1)L. 83/2000, 4. gr. 18. gr.Frestun á réttaráhrifum úrskurðar. Að kröfu stjórnvalds getur úrskurðarnefnd um upplýsingamál ákveðið að fresta réttaráhrifum úrskurðar telji hún sérstaka ástæðu til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en þremur dögum frá birtingu úrskurðar. …1) [Skal frestun á réttaráhrifum bundin því skilyrði að stjórnvald beri málið undir dómstóla innan sjö daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað.]1) 1)L. 83/2000, 5. gr. 19. gr.Útgáfa úrskurða. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál skal árlega gefa út úrskurði sína eða útdrætti úr þeim.
VI. kafli.Aðgangur að gögnum hjá Þjóðskjalasafni Íslands og öðrum opinberum skjalasöfnum. 20. gr.Aðgangur að gögnum eftir að þau hafa verið afhent söfnum. Þegar gögn þau sem lög þessi taka til hafa verið afhent Þjóðskjalasafni Íslands eða öðru opinberu skjalasafni skal hlutaðeigandi safn taka ákvörðun um hvort umbeðin gögn skuli sýnd eða hvort ljósrit skuli veitt af skjölum eða afrit af öðrum gögnum sé þess kostur. Ef vafi er um rétt til aðgangs að gögnum getur safnið aflað rökstuddrar umsagnar þess stjórnvalds sem afhenti safninu gögnin áður en ákvörðun er tekin. 21. gr.Kæruheimild. Heimilt er að bera synjun um að veita aðgang að gögnum, ljósrit af skjölum eða afrit af gögnum skv. 20. gr. undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál skv. 14. gr.
VII. kafli.Skráning mála o.fl. 22. gr.Skráning mála. Stjórnvöldum er skylt að skrá mál, sem koma til meðferðar hjá þeim, á kerfisbundinn hátt og varðveita málsgögn þannig að þau séu aðgengileg. [Ráðherra]1) er heimilt, að fengnu áliti þjóðskjalavarðar, að gefa út reglugerð þar sem mælt er fyrir um hvernig skjalastjórn skuli hagað í stjórnsýslu ríkisins, þar með talið hvers konar tölvuhugbúnað skuli nota. 1)L. 126/2011, 221. gr. 23. gr.Skráning upplýsinga um málsatvik. Við meðferð mála, þar sem taka á ákvörðun um rétt eða skyldu manna skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, ber stjórnvaldi að skrá upplýsingar um málsatvik sem því eru veittar munnlega ef þær hafa verulega þýðingu fyrir úrlausn málsins og þær er ekki að finna í öðrum gögnum þess.
[IX. kafli.]1)Gildistaka o.fl. 1)L. 161/2006, 5. gr. [29. gr.]1)Gildistaka laganna. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1997. Ákvæði laganna gilda um öll gögn án tillits til þess hvenær þau urðu til eða hvenær þau hafa borist stjórnvöldum. 1)L. 161/2006, 5. gr. [30. gr.]1) 1)L. 161/2006, 5. gr. [Ákvæði til bráðabirgða. Sérleyfissamningar um endurnot opinberra upplýsinga sem ekki uppfylla skilyrði 2. mgr. 28. gr. skulu renna út eigi síðar en 31. desember 2008.]1) 1)L. 161/2006, 6. gr.