69. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 31. maí 2023 kl. 11:30


Mætt:

Bryndís Haraldsdóttir (BHar) formaður, kl. 11:30
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF) 2. varaformaður, kl. 11:30
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 11:30
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 11:30
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 11:30
Sigmar Guðmundsson (SGuðm), kl. 11:30
Tómas A. Tómasson (TAT) fyrir (SigurjÞ), kl. 11:35

Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson og Helga Vala Helgadóttir voru fjarverandi.

Nefndarritari: Inga Valgerður Stefánsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 11:30
Fundargerð 67. fundar var samþykkt.

2) 597. mál - íþrótta- og æskulýðsstarf Kl. 11:34
Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta standa Bryndís Haraldsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Jódís Skúladóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Tómas A. Tómasson.
Birgir Þórarinsson og Helga Vala Helgadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álitið skv. heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Helga Vala Helgadóttir ritar undir álitið með fyrirvara.

3) 741. mál - safnalög o.fl. Kl. 11:44
Tillaga framsögumanns um að afgreiða málið til 3. umræðu, án nefndarálits, var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

4) Önnur mál Kl. 11:45
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:45