3. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 18. október 2011 kl. 09:20


Mættir:

Björgvin G. Sigurðsson (BjörgvS) formaður, kl. 09:20
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ), kl. 09:20
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:20
Siv Friðleifsdóttir (SF) fyrir EyH, kl. 09:20
Tryggvi Þór Herbertsson (TÞH) fyrir RR, kl. 09:20
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:20
Þráinn Bertelsson (ÞrB), kl. 09:20

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerðir síðustu tveggja funda. Kl. 09:27
Fundargerðir 1. og 2. fundar nefndarinnar voru staðfestar.

2) 12. mál - úttekt á neytendavernd á fjármálamarkaði Kl. 09:28
Oddný G. Harðardóttir var valin framsögumaður málsins.

3) 15. mál - grundvallarskilgreiningar löggæslu á Íslandi og gerð löggæsluáætlunar fyrir Ísland Kl. 09:35
Rætt var um málsmeðferð.

4) 8. mál - meðferð sakamála og meðferð einkamála Kl. 09:40
Rætt var um málsmeðferð.

5) 26. mál - forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu Kl. 09:45
Rætt var um málsmeðferð.

6) 42. mál - íslenskur ríkisborgararéttur Kl. 09:50
Rætt var um málsmeðferð.

7) 53. mál - skipan sannleiksnefndar til rannsóknar á málsmeðferð Guðmundar- og Geirfinnsmála Kl. 09:55
Björgvin G. Sigurðsson var valinn framsögumaður málsins.

8) 72. mál - uppstokkun réttarkerfisins og millidómstig Kl. 10:00
Rætt var um málsmeðferð.

9) Önnur mál. Kl. 10:05
ÞKG spurði um hvort nefndin hefði í hyggju að fara í vettvangsferðir, s.s. til stofnana eða samtaka.

Fleira var ekki gert.

ÞBack boðaði forföll.
SkH boðaði forföll.


Fundi slitið kl. 10:12