18. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 28. nóvember 2023 kl. 09:10


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 09:10
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 09:10
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:25
Eva Sjöfn Helgadóttir (ESH), kl. 09:10
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:10

Teitur Björn Einarsson, formaður vék af fundi kl. 09:48 og tók þá Ágúst Bjarni Garðarsson, 1. varaformaður við stjórn fundarins. Formaður tók aftur við fundarstjórn kl. 09:54.

Diljá Mist Einarsdóttir var fjarverandi vegna annarra þingstarfa

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 17. fundar var samþykkt.

2) 468. mál - skattar og gjöld Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Gyðu Guðmundsdóttur frá AECO - Samtökum leiðangursskipa á norðurslóðum, sem tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.

Þá fékk nefndin á sinn fund Oddvar Hauk Árnason og Gunnar Inga Hjartason frá Farfuglum ses.

3) 507. mál - kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða Kl. 09:53
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Árna Finnsson frá Náttúruverndarsamtökum Íslands.

4) Efnahagsmál á Reykjanesskaga Kl. 10:12
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Jón Ólaf Halldórsson, Ólaf Sigurðsson og Þórey S. Þórðardóttur frá Landssamtökum lífeyrissjóða.

5) Önnur mál Kl. 10:58
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:58