41. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 5. júní 2018 kl. 19:13


Mættir:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 19:13
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 19:13
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 19:13
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 19:13
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 19:13
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 19:38
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 19:13
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 19:17
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ), kl. 19:13

Vilhjálmur Árnason boðaði forföll.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 19:13
Dagskrárlið frestað.

2) 389. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála Kl. 19:14
Tillaga um að afgreiða málið til 3. umræðu var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

3) 480. mál - stefnumótandi byggðaáætlun 2018--2024 Kl. 19:17
Líneik Anna Sævarsdóttir, framsögumaður málsins, kynnti drög að nefndaráliti.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að áliti meiri hluti standa Bergþór Ólason, Líneik Anna Sævarsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Hanna Katrín Friðriksson, Helga Vala Helgadóttir, Jón Gunnarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Vilhjálmur Árnason.

Karl Gauti Hjaltason skilar minni hluta áliti.

4) 481. mál - köfun Kl. 19:44
Málinu var bætt á dagskrá að beiðni framsögumanns, Ara Trausta Guðmundssonar.

Framsögumaður kynnti drög að nefndaráliti.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Allir viðstaddir nefndarmenn standa að áliti.

5) Önnur mál Kl. 19:56
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 19:56