54. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, fimmtudaginn 7. maí 2020 kl. 09:01


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:01
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:01
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:01
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:01
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:01
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:01
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:12
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:01
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:01
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:01

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:01
Fundargerð 53. fundar var samþykkt.

2) 436. mál - hollustuhættir og mengunarvarnir Kl. 09:03
Nefndin ræddi við Kjartan Ingvarsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneytingu í gegnum fjarfundarbúnað. Gerði hann grein fyrir sjónarmiðum ráðuneytisins og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 434. mál - fimm ára samgönguáætlun 2020-2024 Kl. 09:30
Nefndin samþykkti að Vilhjálmur Árnason yrði framsögumaður málsins.

4) 435. mál - samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034 Kl. 09:30
Nefndin samþykkti að Vilhjálmur Árnason yrði framsögumaður málsins.

5) 612. mál - íslensk landshöfuðlén Kl. 09:31
Nefndin samþykkti að Líneik Anna Sævarsdóttir yrði framsögumaður málsins.

6) 718. mál - loftslagsmál Kl. 09:31
Nefndin samþykkti að Kolbeinn Óttarsson Proppé yrði framsögumaður málsins.

7) 720. mál - hollustuhættir og mengunarvarnir Kl. 09:31
Nefndin samþykkti að Ari Trausti Guðmundsson yrði framsögumaður málsins.

8) 734. mál - svæðisbundin flutningsjöfnun Kl. 09:31
Nefndin samþykkti að Líneik Anna Sævarsdóttir yrði framsögumaður málsins.

9) 662. mál - samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir Kl. 09:32
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með 2 vikna fresti.

10) Önnur mál Kl. 09:36
Nefndin ræddi stöðu mála í nefndinni og starfið framundan.

Fundi slitið kl. 09:40