26. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 8. desember 2023 kl. 10:10


Mætt:

Bjarni Jónsson (BjarnJ) formaður, kl. 10:10
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG) 1. varaformaður, kl. 10:10
Vilhjálmur Árnason (VilÁ) 2. varaformaður, kl. 10:10
Bergþór Ólason (BergÓ), kl. 10:10
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 10:10
Ingibjörg Isaksen (IÓI), kl. 10:10
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 10:10
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 10:10
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 10:10
Valgerður Árnadóttir (ValÁ), kl. 10:10
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 10:10

Þórunn Sveinbjarnardóttir vék af fundi kl. 11:40.

Nefndarritari: Brynjar Páll Jóhannesson

Bókað:

1) 183. mál - skipulagslög Kl. 10:10
Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að áliti meiri hluta með breytingartillögu standa Bjarni Jónsson, Vilhjálmur Árnason, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Njáll Trausti Friðbertsson, Orri Páll Jóhannsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir.

Valgerður Árnadóttir sat hjá við afgreiðslu.

2) 181. mál - póstþjónusta Kl. 10:14
Tillaga framsögumanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af Bjarna Jónssyni, Vilhjálmi Árnasyni, Höllu Signýju Kristjánsdóttur, Ingibjörgu Isaksen, Njáli Trausta Friðbertssyni og Orra Páli Jóhannssyni.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir og Valgerður Árnadóttir sátu hjá.

Að áliti meiri hluta með breytingartillögu standa Bjarni Jónsson, Vilhjálmur Árnason, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Njáll Trausti Friðbertsson og Orri Páll Jóhannsson.

Valgerður Árnadóttir sat hjá við afgreiðslu.

3) 450. mál - svæðisbundin flutningsjöfnun Kl. 10:20
Nefndin ræddi málið.

4) 234. mál - stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélagi á Íslandi til ársins 2025 Kl. 10:29
Nefndin ræddi málið.

5) 543. mál - viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir Kl. 10:32
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Boga Nils Bogason, Ara Guðjónsson og Heiðu Njólu Guðbrandsdóttur frá Icelandair.

Þá komu á fund nefndar Guðmundur Þór Gunnarsson og Guðmundur Óskarsson frá Samskip og Gestur Pétursson og Finnur Magnússon frá PCC Bakka Silicon.

Einnig komu á fund nefndar Ingólfur Friðriksson, Sigríður Eysteinsdóttir og Hendrik Daði Jónsson frá utanríkisráðuneyti.

Nefndin samþykkti að Orri Páll Jóhannsson yrði framsögumaður málsins.

6) 400. mál - umferðarlög Kl. 12:05
Dagskrárlið frestað.

7) Önnur mál Kl. 12:05
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:05