27. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, mánudaginn 11. desember 2023 kl. 12:49


Mætt:

Bjarni Jónsson (BjarnJ) formaður, kl. 12:49
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG) 1. varaformaður, kl. 12:49
Vilhjálmur Árnason (VilÁ) 2. varaformaður, kl. 12:49
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 12:49
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 12:49
Ingibjörg Isaksen (IÓI), kl. 12:49
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 12:49
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 12:49
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 12:53
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 12:49

Nefndarritari: Brynjar Páll Jóhannesson

Bókað:

1) 234. mál - stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélagi á Íslandi til ársins 2025 Kl. 12:49
Nefndin afgreiddi umsögn um málið til allsherjar- og menntamálanefndar, sbr. 3. mgr. 23. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.

Allir viðstaddir nefndarmenn studdu umsögnina.

2) 450. mál - svæðisbundin flutningsjöfnun Kl. 12:53
Tillaga framsögumanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af Bjarna Jónssyni, Vilhjálmi Árnasyni, Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur, Höllu Signýju Kristjánsdóttur, Ingibjörgu Isaksen, Njáli Trausta Friðbertssyni, Orra Páli Jóhannssyni og Þórunni Sveinbjarnardóttur. Andrés Ingi Jónsson sat hjá.

Að áliti meiri hluta með breytingartillögu standa Bjarni Jónsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Njáll Trausti Friðbertsson, Orri Páll Jóhannsson, Vilhjálmur Árnason og Þórunn Sveinbjarnardóttir.

3) Önnur mál Kl. 12:56
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:00