33. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 18. febrúar 2015
kl. 09:45
Mættir:
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 09:45Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 09:45
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:45
Guðbjartur Hannesson (GuðbH) fyrir Katrínu Júlíusdóttur (KaJúl), kl. 09:55
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) fyrir Svandísi Svavarsdóttur (SSv), kl. 09:45
Róbert Marshall (RM), kl. 09:45
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:45
Elín Hirst var fjarverandi vegna veikinda.
Jón Þór Ólafsson var fjarverandi.
Haraldur Einarsson vék af fundi kl. 10:55.
Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson
Bókað:
1) Fundargerð. Kl. 09:45
Samþykkt fundargerða var frestað.
2) Kynning nýs innanríkisráðherra Kl. 09:45
Á fund nefndarinnar kom nýr innanríkisráðherra, Ólöf Nordal. Ásamt ráðherra komu á fundinn Ragnhildur Hjaltadóttir, Hermann Sæmundsson og Sigurbergur Björnsson frá innanríkisráðuneyti og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir aðstoðarmaður ráðherra.
3) 427. mál - uppbygging innviða fyrir ferðamenn til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum Kl. 10:35
Nefndin tók til umfjöllunar 427. mál og fékk á sinn fund Jón Geir Pétursson og Sigríði Svönu Helgadóttur frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Kynntu þau efni frumvarpsins og svöruðu spurningum nefndarmanna.
4) 424. mál - loftslagsmál Kl. 11:25
Umfjöllun var frestað.
5) 503. mál - farmflutningar á landi Kl. 11:25
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 6. mars.
6) 504. mál - farþegaflutningar á landi í atvinnuskyni Kl. 11:25
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 6. mars.
7) Önnur mál Kl. 11:30
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:30