61. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, fimmtudaginn 2. júní 2016
kl. 16:00
Mættir:
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 16:00Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) 1. varaformaður, kl. 16:00
Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 16:00
Ásta Guðrún Helgadóttir (ÁstaH), kl. 16:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 16:00
Elín Hirst (ElH), kl. 16:00
Róbert Marshall (RM), kl. 16:00
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 16:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 16:00
Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson
Bókað:
1) 160. mál - aðgerðaáætlun gegn súrnun sjávar á norðurslóðum Kl. 16:00
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt sem var samþykkt af allri nefndinni sem stendur öll að nefndaráliti.
2) 150. mál - uppbygging áningarstaða Vegagerðarinnar við þjóðvegi Kl. 16:02
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt sem var samþykkt af allri nefndinni sem stendur öll að nefndaráliti.
3) Önnur mál Kl. 16:05
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 16:05