53. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 28. mars 2019 kl. 08:42


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 08:42
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 08:42
Bergþór Ólason (BergÓ), kl. 08:42
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 08:42
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 08:42
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 08:53
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:02
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 08:52

Ari Trausti boðaði forföll vegna þingstarfa erlendis.
Hanna Katrín Friðriksson boðaði forföll.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 08:42
Frestað.

2) 416. mál - öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða Kl. 08:43
Á fund nefndarinnar mættu Hrafnkell V. Gíslason, Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir, Björn Geirsson, Þorleifur Jónasson og Kristján Valur Jónsson frá Póst- og fjarskiptastofnun. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 403. mál - fimm ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2019--2023 Kl. 10:12
Frestað.

4) 404. mál - stefna í fjarskiptum fyrir árin 2019--2033 Kl. 10:12
Frestað.

5) Önnur mál Kl. 10:13
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:13