72. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 23. maí 2019 kl. 09:14


Mættir:

Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 1. varaformaður, kl. 09:14
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 09:14
Bergþór Ólason (BergÓ), kl. 10:07
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:14
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:35
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 09:14
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:14

Jón Gunnarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Karl Gauti Hjaltason boðuðu forföll.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Vilhjálmur Árnason tók þátt í fundinum í gegnum síma.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:15
Fundargerðir 69. - 71. fundar samþykktar.

2) 542. mál - hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. Kl. 09:15
Nefndin ræddi málið.

3) 219. mál - umferðarlög Kl. 09:52
Nefndin ræddi málið.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti standa Ari Trausti Guðmundsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Helga Vala Helgadóttir, Hanna Katrín Friðriksson og Bergþór Ólason.
Að auki skrifa undir álitið Vilhjálmur Árnason, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Jón Gunnarsson samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis. Karl Gauti Hjaltason skrifar undir álitið með fyrirvara samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

4) Önnur mál Kl. 10:16
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:17