26.9.2016

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) 26. september

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) fara fram kl. 19.40 mánudaginn 26. september 2016 og verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur síðustu umferð.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur, Björt framtíð, Píratar

Ræðumenn flokkanna verða:

Fyrir Samfylkinguna tala Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri þriðju Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Ólöf Nordal innanríkisráðherra í annarri umferð, en í þriðju umferð Haraldur Benediktsson, 4. þm. Norðvesturkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Svandís Svavarsdóttir, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri, en í þriðju umferð Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 9. þm. Norðausturkjördæmis.

Ræðumenn Framsóknarflokksins eru í fyrstu umferð Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra, Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, í annarri, og Karl Garðarsson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Björt Ólafsdóttir, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, en í þriðju umferð Páll Valur Björnsson, 10. þm. Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Pírata eru Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ásta Guðrún Helgadóttir, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri, en í þriðju umferð Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fróðleikur um eldhúsdag.

Ræðumenn á eldhúsdegi í september 2016