Tilkynningar

Laust starf fræðslu- og upplýsingafulltrúa í afleysingu

24.4.2023

Við leitum að öflugum fræðslu- og upplýsingafulltrúa til starfa í almannatengsladeild skrifstofu Alþingis í tímabundna afleysingu frá 15. ágúst nk. til ársloka 2024. Í starfinu felst meðal annars leiðsögn skólahópa um Alþingishúsið og umsjón með Skólaþingi, vinnsla efnis fyrir vefi og samfélagsmiðla, upplýsingagjöf til almennings og fjölmiðla ásamt aðstoð við viðburðahald. Starfsfólk deildarinnar tekur þátt í teymisvinnu þvert á starfseiningar og í starfinu felst frábært tækifæri til að kynnast líflegu og skemmtilegu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiðsögn skólahópa um Alþingishúsið
  • Umsjón með Skólaþingi og móttaka gesta
  • Þátttaka í samfélagsmiðlateymi
  • Gerð fræðslu- og kynningarefnis
  • Aðstoð við viðburðahald
  • Upplýsingagjöf til almennings

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, kennsluréttindi kostur
  • Reynsla af sambærilegu starfi
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Önnur tungumálakunnátta er kostur
  • Reynsla af ljósmyndun, myndbandagerð og grafískri hönnun ákjósanleg
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Skipulags- og samskiptahæfni
  • Jákvæðni og sveigjanleiki

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína í starfið auk staðfestingar á prófgráðum og upplýsingum um meðmælendur. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum í gegnum ráðningarkerfi Orra.

Tekið er mið af jafnréttisáætlun skrifstofu Alþingis við ráðningar, starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um. Skrifstofa Alþingis hefur hlotið jafnlaunavottun og starfar í samræmi við betri vinnutíma. Gildin okkar eru fagmennska, virðing og framsækni.

Nánari upplýsingar um starfsemi Alþingis og skrifstofu þingsins er að finna á vef Alþingis.

Starfshlutfall er 100%.

Umsóknarfrestur er til og með 08.05.2023

Nánari upplýsingar veitir

Margrét Sveinbjörnsdóttir deildarstjóri –  margrets@althingi.is – 563-0500

Smelltu hér til að sækja um starfið