Tilkynningar

Laust starf í veitingadeild á skrifstofu Alþingis

27.10.2023

Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í veitingadeild. Hjá okkur er líf og fjör og verkefnin eru fjölbreytt. Deildin annast alla veitingaþjónustu á starfssvæði þingsins, svo sem rekstur mötuneytis, veitingar á nefndarfundum og viðburðum á vegum þingsins. Við bjóðum upp á fjölbreyttan og hollan mat úr fersku og góðu hráefni. Skrifstofa Alþingis er lifandi og skemmtilegur vinnustaður sem leggur áherslu á fjölskylduvænt og öruggt vinnuumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Matseld, bakstur og annar matarundirbúningur
  • Veitingaþjónusta á fundum og öðrum viðburðum
  • Uppþvottur og þrif
  • Önnur verkefni í mötuneyti

Hæfniskröfur

  • Iðnmenntun í matvælagrein sem nýtist í starfi
  • Marktæk reynsla af sambærilegu starfi, svo sem í mötuneyti
  • Ástríða og góð kunnátta í matargerð og bakstri
  • Þekking og áhugi á grænmetisfæði er kostur
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Snyrtimennska og stundvísi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert.
Sótt er um starfið í gegnum ráðningarkerfi Orra. Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem umsækjandi rökstyður umsókn sína og lýsir hæfni sinni til starfsins.

Tekið er mið af jafnréttisáætlun skrifstofu Alþingis við ráðningar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir um starfið gilda í sex mánuði frá auglýsingu þessari.

Starfshlutfall er 100%.

Umsóknarfrestur er til og með 7.11.2023.

Nánari upplýsingar veitir

Svana Ingibergsdóttir, deildarstjóri – svanai@althingi.is – 563-0500

Sækja um starf