Niðurstaða dómnefndar í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu á Alþingisreit
Formaður dómnefndar í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu á Alþingisreit, Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi forseti Alþingis, tilkynnti í dag um niðurstöðu dómnefndar í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu á Alþingisreit.
Arkitektar Studio Granda áttu verðlaunatillöguna. Allar tillögurnar sem bárust má sjá í dómnefndaráliti. T.ark arkitektar áttu tillöguna í öðru sæti og PKdM arkitektar tillöguna í þriðja sæti.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, formaður dómnefndar og fyrrverandi forseti Alþingis, ásamt verðlaunahöfum; Arkitektar Studio Granda, Steve Christer, Margrét Harðardóttir og höfundur listskreytingar Kristinn E. Hrafnsson.
Sýning á öllum tillögum sem nefndinni bárust verður opin á 1. hæð Landssímahúss (gengið inn frá Austurvelli) kl. 14–17 sunnudaginn 18. desember og á virkum dögum kl. 16–18 fram að áramótum.