Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn 2008-2009
Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn hefur lokið störfum og úthlutað íbúðinni frá september 2008 til ágústloka 2009.
Í nefndinni eiga sæti Anna Agnarsdóttir prófessor við Háskóla Íslands, formaður, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst og Kristinn Ólason, rektor Skálholtsskóla. Ritari nefndarinnar er Þorsteinn Magnússon, aðstoðarskrifstofustjóri (stjórnsýsla).
Alls bárust nefndinni að þessu sinni 24 umsóknir.
Ellefu fræðimenn fá afnot af íbúðinni, sem hér segir:
Anna Soffía Hauksdóttir til að vinna að verkefni sem nefnist „lausnir diffurjafna til hönnunar stýringa“.
Ellen Mooney til að vinna að samnorrænu verkefni sem lýtur að því að greina smásjársýni í gegnum veraldarvefinn með skönnuðum sýnum.
Guðjón Friðriksson til að vinna að riti um sögu Kaupmannahafnar sem höfuðborgar Íslands.
Jón Torfason til að rannsaka feril Íslendinga sem dvöldu við iðnnám í Danmörku á 18. og 19. öld.
Kristín G. Guðnadóttir til að rannsaka tengsl Svavars Guðnasonar við danskt listalíf.
Kristján Árnason til að vinna að hljóðfræðilegum rannsóknum á færeysku.
Lára G. Oddsdóttir til að rannsaka hlutverk og stöðu prestsins í verkum Gunnars Gunnarssonar.
Már Jónsson til að vinna að bók á ensku um Árna Magnússon handritasafnara.
Sveinn Einarsson til að rannsaka feril Guðmundar Kambans í Danmörku.
Vilhjálmur Árnason til að vinna að rannsóknum á vísindalæsi í lýðræðisþjóðfélagi.
Þóra Kristjánsdóttir til að afla upplýsinga um Íslendinga í listnámi í Kaupmannahöfn á 17. og 18. öld.
Fræðimannsíbúðin í Kaupmannahöfn, tengd nafni Jóns Sigurðssonar, er skammt frá Jónshúsi, í Sankt Pauls Gade 70. Fræðimaður hefur vinnustofu í Jónshúsi.