Tilkynningar

Hátíð Jóns Sigurðssonar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn

23.4.2008

Hátíð Jóns Sigurðssonar verður haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn 24. apríl 2008, á sumardaginn fyrsta. Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, heldur hátíðarræðu og afhendir í fyrsta sinn Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á loft verkum hans og hugsjónum.

Stjórn húss Jóns Sigurðssonar hefur frumkvæði að hátíðinni með fulltingi forseta Alþingis og forsætisnefndar. Hátíð Jóns Sigurðssonar í Jónshúsi verður árlegur viðburður á sumardaginn fyrsta héðan í frá.

Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta eru veitt af Alþingi í minningu starfa Jóns Sigurðssonar í þágu Íslands og Íslendinga þeim einstaklingi sem hefur unnið verk sem tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þessi verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.

Í ár tekur forsætisnefnd Alþingis ákvörðun um hvaða einstaklingur hlýtur þau en í framtíðinni mun úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn gera tillögur til forsætisnefndar. Árið 2008 nemur verðlaunafjárhæðin 500 þúsundum króna.