Tilkynningar

Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir lögfræðingi í starf nefndarritara

29.8.2014

Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir lögfræðingi í starf nefndarritara á nefndasvið skrifstofunnar.

Nefndasvið Alþingis annast fjölbreytt verkefni, m.a. þjónustu við fastanefndir og alþjóðanefndir þingsins, þingmálagerð og útgáfu þingskjala. Á nefndasviði eru 30 starfsmenn, þar af 9 lögfræðingar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Lögfræðileg ráðgjöf.
  • Umsjón með fastanefnd.
  • Gerð lagafrumvarpa og annarra þingmála.
  • Önnur verkefni.

Hæfnikröfur:

 

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
  • Fullt vald á íslensku og færni í að tjá sig í ræðu og riti.
  • Sjálfstæði og öguð vinnubrögð.
  • Færni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Geta til að vinna undir álagi.
  • Góð tungumálakunnátta, einkum í Norðurlandamálum og ensku.
  • Reynsla úr stjórnsýslunni eða af sambærilegu starfi æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið:


Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags starfsmanna Alþingis. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um stöðuna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir gilda í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Starfshlutfall er 100%.


Umsóknarfrestur er til og með 08.09.2014.

Nánari upplýsingar veita Sigrún Brynja Einarsdóttir, sbe@althingi.is, og Elín Valdís Þorsteinsdóttir, elinvaldis@althingi.is, í síma 563-0500.
Smelltu hér til að sækja um starfið