Tilkynningar

Erling Blöndal Bengtsson hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2013

25.4.2013

Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í dag, 25. apríl, á sumardaginn fyrsta. Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, setti hátíðina og afhenti verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta. Verðlaunin féllu að þessu sinni í hlut Erlings Blöndals Bengtssonar sellóleikara. Erling á að baki langan og farsælan tónlistarferil og hefur lagt mikið af mörkum við að efla tengsl Íslands og Danmerkur á sviði tónlistar. Stefán, sonur Erlings, tók við verðlaununum fyrir hönd föður síns sem búsettur er í Bandaríkjunum.
Aðalræðumaður á hátíðinni var Uffe Elleman-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, og gerði hann að umfjöllunarefni stöðu vestnorrænu ríkjanna við nýjar aðstæður.

Verðlaunin hafa áður hlotið:

2012: Pétur M. Jónasson, vatnalíffræðingur og prófessor emeritus.
2011: Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.
2010: Søren Langvad byggingarverkfræðingur.
2009: Erik Skyum-Nielsen bókmenntafræðingur.
2008: Guðjón Friðriksson sagnfræðingur.

Alþingi veitir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þau verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.

Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar er að finna á vef Jónshúss.