Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Inga Sæland
7. þm. RS, Flf, IngS
Inga Sæland

   
Illugi Gunnarsson

Illugi Gunnarsson

Fæddur á Siglufirði 26. ágúst 1967. Foreldrar: Gunnar Rafn Sigurbjörnsson (fæddur 22. nóvember 1943) forstöðumaður fjölskyldusviðs hjá Hafnarfjarðarbæ og Guðrún Ína Illugadóttir (fædd 5. september 1945) hafnarfulltrúi hjá Hafnarfjarðarhöfn. Maki: Brynhildur Einarsdóttir (fædd 1. janúar 1973) sagnfræðingur. Foreldrar: Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður og Sigrún Gerða Gísladóttir. Dóttir: Guðrún Ína (2012).

Stúdentspróf MR 1987. BS-próf í hagfræði HÍ 1995. MBA-próf frá London Business School 2000.

Fiskvinna á sumrin hjá Hjálmi hf. Flateyri 1983-1993. Leiðbeinandi við Grunnskóla Flateyrar 1987-1988. Organisti Flateyrarkirkju 1995-1996. Skrifstofumaður hjá Vestfirskum skelfiski á Flateyri 1995-1997. Stundaði rannsóknir í fiskihagfræði við HÍ 1997-1998. Aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar forsætisráðherra 2000-2005. Mennta- og menningarmálaráðherra 23. maí 2013 til 11. janúar 2017.

Í stjórn Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta við Háskóla Íslands, 1989-1990, oddviti 1993-1994. Í stúdentaráði HÍ 1993-1995. Fulltrúi stúdenta í háskólaráði 1993-1995. Formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna, 1997-1998. Í nefnd um eflingu græna hagkerfisins 2010-2013.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2007-2009, alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður 2009-2016 (Sjálfstæðisflokkur).

Mennta- og menningarmálaráðherra 2013-2017.

Formaður þingflokks sjálfstæðismanna 2009-2010 og 2012-2013.

Efnahags- og skattanefnd 2007, fjárlaganefnd 2007-2009 og 2011-2012, menntamálanefnd 2007-2009, umhverfisnefnd 2007-2009, viðskiptanefnd 2010-2011, allsherjarnefnd 2010-2011.

Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2007-2009, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2009-2010 og 2011-2013.



Síðast breytt 11.01.2017.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.