Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1490, 145. löggjafarþing 786. mál: stjórn fiskveiða (byggðakvóti og framlenging bráðabirgðaákvæða).
Lög nr. 72 16. júní 2016.
Byggðastofnun hefur til ráðstöfunar aflaheimildir sem ráðherra ákvarðar samkvæmt heimild í 5. mgr. 8. gr. til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Byggðastofnun getur gert samninga við fiskvinnslur eða útgerðarfélög til allt að sex ára í senn. Byggðastofnun skal hafa samráð við sveitarstjórn viðkomandi sveitarfélags áður en samningur er undirritaður. Aflaheimildir skulu vera í þorski, ýsu, steinbít, ufsa, löngu, keilu og gullkarfa í hlutfalli við leyfðan heildarafla af þessum tegundum. Aflaheimildir þessar miðast við þorskígildi og skulu þær dregnar frá með sama hætti og greinir í 3. mgr. 8. gr. laganna, sbr. 5. mgr. sömu greinar. Ráðherra er heimilt, að fengnum tillögum Byggðastofnunar, að setja nánari ákvæði um framkvæmd þessa ákvæðis í reglugerð, svo sem efni samnings, skilyrði og tímalengd.
Ráðherra er heimilt að draga allt að 5,3% frá viðmiðun leyfilegs heildarafla í makríl vegna makrílveiða íslenskra skipa árið 2017 og ráðstafa til aðgerða sem tilgreindar eru í 5. mgr. 8. gr. laganna á fiskveiðiárinu 2016/2017. Ráðherra er heimilt að skipta þessu aflamagni makríls í aðrar tegundir til að leitast við að tryggja tegundasamsetningu aflamagns í samræmi við 6. mgr. 8. gr.
Þingskjal 1490, 145. löggjafarþing 786. mál: stjórn fiskveiða (byggðakvóti og framlenging bráðabirgðaákvæða).
Lög nr. 72 16. júní 2016.
Lög um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, með síðari breytingum (byggðakvóti og framlenging bráðabirgðaákvæða).
1. gr.
4. mgr. 8. gr. laganna fellur brott.2. gr.
1. málsl. 2. mgr. 10. gr. laganna orðast svo: Aflaheimildir samkvæmt þessari grein skulu dregnar frá leyfðum heildarafla þessara tegunda áður en honum er skipt á grundvelli aflahlutdeilda.3. gr.
Á eftir 10. gr. laganna kemur ný grein, 10. gr. a, svohljóðandi:Byggðastofnun hefur til ráðstöfunar aflaheimildir sem ráðherra ákvarðar samkvæmt heimild í 5. mgr. 8. gr. til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Byggðastofnun getur gert samninga við fiskvinnslur eða útgerðarfélög til allt að sex ára í senn. Byggðastofnun skal hafa samráð við sveitarstjórn viðkomandi sveitarfélags áður en samningur er undirritaður. Aflaheimildir skulu vera í þorski, ýsu, steinbít, ufsa, löngu, keilu og gullkarfa í hlutfalli við leyfðan heildarafla af þessum tegundum. Aflaheimildir þessar miðast við þorskígildi og skulu þær dregnar frá með sama hætti og greinir í 3. mgr. 8. gr. laganna, sbr. 5. mgr. sömu greinar. Ráðherra er heimilt, að fengnum tillögum Byggðastofnunar, að setja nánari ákvæði um framkvæmd þessa ákvæðis í reglugerð, svo sem efni samnings, skilyrði og tímalengd.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. mgr. 11. gr. laganna:- Í stað orðanna „þorski, ýsu og steinbít“ í 1. og 2. málsl. kemur: þorski, ýsu, steinbít, löngu, keilu og gullkarfa.
- Í stað orðanna „Línuívilnun í þorski“ í 5. málsl. kemur: Línuívilnun í þorski, ýsu, steinbít, löngu, keilu og gullkarfa.
5. gr.
Ákvæði til bráðabirgða V, XIII, XIV og XV í lögunum falla brott.6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða VII í lögunum:- Í stað ártalanna „2014/2015“ í 1. málsl., sbr. 10. gr. laga nr. 48/2014, kemur: 2016/2017.
- Í stað orðanna „innan mánaðar“ í 2. málsl., sbr. 2. gr. laga nr. 74/2010, kemur: mánuði.
7. gr.
Í stað ártalanna „2015/2016“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða VIII í lögunum kemur: 2016/2017.8. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Ráðherra er heimilt að draga allt að 5,3% frá viðmiðun leyfilegs heildarafla í makríl vegna makrílveiða íslenskra skipa árið 2017 og ráðstafa til aðgerða sem tilgreindar eru í 5. mgr. 8. gr. laganna á fiskveiðiárinu 2016/2017. Ráðherra er heimilt að skipta þessu aflamagni makríls í aðrar tegundir til að leitast við að tryggja tegundasamsetningu aflamagns í samræmi við 6. mgr. 8. gr.
9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 2. júní 2016.