Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Diljá Mist Einarsdóttir
6. þm. RN, S, DME
Diljá Mist Einarsdóttir

   
Dagný Jónsdóttir

Dagný Jónsdóttir

Fædd í Reykjavík 16. janúar 1976. Foreldrar: Jón Ingi Einarsson (fæddur 20. ágúst 1948) skólastjóri og kona hans Olga Aðalbjörg Björnsdóttir (fædd 12. júlí 1946) húsmóðir og ræstitæknir.

Stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1996.

Au pair í Þýskalandi sumrin 1994 og 1995. Vann með skóla hjá Heilsugæslunni í Reykjavík 1996-1998 og Landsvirkjun 1998-2000. Framkvæmdastjóri stúdentaráðs HÍ 2001-2002. Starfaði á skrifstofu Framsóknarflokksins 2002-2003.

Í stjórn Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík 1993-2001, formaður þess 1999-2000. Í miðstjórn Framsóknarflokksins og Sambands ungra framsóknarmanna síðan 1993. Í samráðsnefnd um Reykjavíkurlista 1998. Í stúdentaráði og háskólaráði HÍ 2000-2002. Í kennslumálanefnd HÍ, formaður menntamálanefndar stúdentaráðs HÍ 2000-2001. Í húsnæðis- og skipulagsnefnd HÍ og byggingarnefnd Náttúrufræðahúss HÍ 2001-2002. Formaður Sambands ungra framsóknarmanna 2002-2003. Í framkvæmdastjórn og landsstjórn Framsóknarflokksins 2002-2003. Varaformaður félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar 2002-2003.

Alþingismaður Norðausturkjördæmis 2003-2007 (Framsóknarflokkur).

Efnahags- og viðskiptanefnd 2003-2007, heilbrigðis- og trygginganefnd 2003-2004, landbúnaðarnefnd 2003-2006, menntamálanefnd 2003-2007, umhverfisnefnd 2003-2004, félagsmálanefnd 2006-2007 (formaður).

Íslandsdeild ÖSE-þingsins 2003-2006, Íslandsdeild NATO-þingsins 2006-2007, Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2007.



Síðast breytt 24.09.2019.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.