Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Unnur Brá Konráðsdóttir
4. þm. SU, S, UBK
Unnur Brá Konráðsdóttir

   
Svandís Svavarsdóttir

Svandís Svavarsdóttir

      F. á Selfossi 24. ágúst 1964. For.: Svavar Gestsson (f. 26. júní 1944) alþm., ráðherra og sendiherra og Jónína Benediktsdóttir (f. 5. okt. 1943, d. 29. maí 2005) skrifstofumaður. M. 1. Ástráður Haraldsson (f. 27. ágúst 1961) lögmaður. Þau skildu. For.: Haraldur Þorsteinsson og Aðalheiður Sigurðardóttir. M. 2. Torfi Hjartarson (f. 26. maí 1961) lektor. For.: Hjörtur Torfason og Nanna Þorláksdóttir. Börn Svandísar og Ástráðs: Oddur (1984), Auður (1986). Börn Svandísar og Torfa: Tumi (1996), Una (2000).
      Stúdentspróf MH 1983. BA-próf í almennum málvísindum og íslensku frá HÍ 1989. Stundaði framhaldsnám í íslenskri málfræði við HÍ 1989-1993.
      Stundakennari í almennum málvísindum og íslensku við Háskóla Íslands 1990-1994. Starfaði hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra við rannsóknir á íslenska táknmálinu 1992-1994 og við rannsóknir, ráðgjöf og stjórnun 1998-2005. Kennslustjóri í táknmálsfræði og táknmálstúlkun við Háskóla Íslands 1994-1998. Framkvæmdastjóri Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs 2005-2006. Borgarfulltrúi í Reykjavík 2006-2009. Umhverfisráðherra 10. maí 2009 til 1. september 2012. Fór með menntamálaráðuneytið í fæðingarorlofi Katrínar Jakobsdóttur 31. maí - 31. október 2011. Umhverfis- og auðlindaráðherra síðan 1. september 2012.
      Formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík 2003-2005. Varafulltrúi í menntaráði Reykjavíkurborgar 2004-2006. Í stjórn ÍTR 2005-2006. Í menntaráði og leikskólaráði Reykjavíkur 2006-2007. Í skipulagsráði Reykjavíkur 2006-2009. Fulltrúi í Jafnréttisráði 2007-2009. Varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga 2007-2009. Í borgarráði Reykjavíkur 2007-2009. Í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og í stjórnkerfisnefnd Reykjavíkur 2007-2009.

      Alþm. Reykv. s. síðan 2009 (Vg.).
      Umhverfisráðherra 2009-2012. Umhverfis- og auðlindaráðherra síðan 2012.


Síðast breytt 06.09.2012. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Facebook

Símanúmer
Á lögheimili: 551-0007
Farsími: 845-5558

Þingstörf
5. þm. RS , Vinstri-gr., SSv

Embætti:
Umhverfis- og auðlindaráðherra

Umhverfisráðuneyti

Hagsmunaskráning

Curriculum Vitae in English




Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.