Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2018. Útgáfa 148c. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um vinnslu afla um borð í skipum]1)
1992 nr. 54 16. maí
1)L. 154/2002, 7. gr.
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 22. júní 1992. Breytt með l. 109/1993 (tóku gildi 3. nóv. 1993), l. 7/1996 (tóku gildi 1. okt. 1996), l. 58/1996 (tóku gildi 11. júní 1996), l. 34/2000 (tóku gildi 26. maí 2000), l. 154/2002 (tóku gildi 30. des. 2002), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 59/2013 (tóku gildi 1. júlí 2013) og l. 67/2015 (tóku gildi 1. jan. 2016).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
[Lög þessi gilda um alla frekari vinnslu afla um borð í skipum en blóðgun, slægingu og flokkun.
Vinnsla samkvæmt ákvæðum laga þessara er háð sérstöku leyfi Fiskistofu.] 1)
1)L. 154/2002, 1. gr.
2. gr.
[Ráðherra skal setja reglugerð 1) um nýtingarstuðla sem gildir um útreikning á nýtingu aflaheimilda einstakra skipa eða skipaflokka sem vinna afla um borð. Um nýtingu afla þeirra skipa gilda að öðru leyti ákvæði laga nr. 57 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.] 2)
1)Rg. 54/2003. 2)L. 154/2002, 2. gr.
3. gr.
[Um borð í [skipi sem leyfi hefur til vinnslu afla] 1) skal vera aðstaða til móttöku, geymslu, vinnslu og frágangs aflans þannig að gæði framleiðslunnar verði tryggð.
Ráðherra er heimilt að ákveða í reglugerð að um borð í [skipum sem leyfi hafa til vinnslu afla] 1) skuli vera sjálfvirkur tækjabúnaður sem tryggi nákvæma vigtun og skráningu innvegins afla og afurða. Setja skal með reglugerð 2) nánari ákvæði um nauðsynlegan búnað í þessu skyni og önnur atriði varðandi framkvæmd laganna.] 3)
1)L. 154/2002, 3. gr. 2)Rg. 55/2003, sbr. 1035/2015. 3)L. 58/1996, 2. gr.
4. gr.
Það er skilyrði fyrir leyfisveitingu, sbr. 1. gr., að fjöldi í áhöfn sé nægilegur til að vinna afla á fullnægjandi hátt miðað við veiðar, vinnslu og gerð skips, að teknu tilliti til áskilins hvíldartíma og að fyrir hendi sé tilskilin aðstaða fyrir þá áhöfn og eftirlitsmenn, sbr. 6. gr.
Í áhöfn skal vera maður með sérþekkingu á viðkomandi framleiðslu er hafa skal umsjón með allri vinnslu ásamt nauðsynlegu gæðaeftirliti. Skal með reglugerð kveða á um menntunarkröfur og starfssvið hans.
5. gr.
Áður en [leyfi til vinnslu afla] 1) er veitt skal liggja fyrir álit [Fiskistofu] 2) á því hvort búnaður sé fullnægjandi með hliðsjón af ákvæðum laga þessara og reglugerða settra með stoð í þeim. Þá skal liggja fyrir mat [Samgöngustofu] 3) á því hvort reglum um öryggisbúnað varðandi fiskvinnslu og aðbúnað áhafnar sé fullnægt. [Framangreint álit Fiskistofu byggist á úttekt Fiskistofu og skal greitt fyrir slíka úttekt samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu, sbr. 5. gr. laga nr. 36/1992, um Fiskistofu, með síðari breytingum.] 4)
1)L. 154/2002, 4. gr. 2)L. 58/1996, 3. gr. 3)L. 59/2013, 7. gr. 4)L. 67/2015, 12. gr.
6. gr.
[Eftirlitsmaður eða eftirlitsmenn skulu vera um borð í fiskiskipi, sem leyfi hefur til [vinnslu afla] 1) um borð, fyrst eftir að leyfi er veitt, svo lengi sem Fiskistofa metur nauðsynlegt með hliðsjón af framkvæmd vinnslunnar. Sama gildir verði það mikil breyting í áhöfn [skips], 1) útgerðarháttum þess eða búnaði að ástæða sé til að ætla að það hafi veruleg áhrif á vinnslu um borð í skipinu. Í annan tíma er veiðieftirliti Fiskistofu heimilt að setja eftirlitsmann eða eftirlitsmenn um borð í [skip sem vinnur afla um borð] 1) eftir því sem ástæða er talin til.
… 2)] 3)
1)L. 154/2002, 5. gr. 2)L. 34/2000, 11. gr. 3)L. 58/1996, 4. gr.
[7. gr.
Brot gegn ákvæðum laga þessara eða reglum settum samkvæmt þeim varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
… 1)
[Fiskistofu er enn fremur heimilt vegna brota gegn ákvæðum laga þessara, reglna settra samkvæmt þeim og leyfisbréfa að svipta skip leyfi til vinnslu afla um borð.] 2)] 3)
1)L. 88/2008, 233. gr. 2)L. 154/2002, 6. gr. 3)L. 58/1996, 5. gr.
[8. gr.]1)
Lög þessi öðlast þegar gildi.
1)L. 58/1996, 5. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. … 1)
1)L. 58/1996, 6. gr.