Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 20. september 2019. Útgáfa 149c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara
1994 nr. 103 20. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. september 1994. Breytt með: L. 62/2005 (tóku gildi 1. júlí 2005). L. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 131/2013 (tóku gildi 1. jan. 2014). L. 47/2018 (tóku gildi 26. maí 2018). L. 142/2018 (tóku gildi 1. jan. 2019; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 48. gr., sbr. einnig brbákv. í s.l.).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eða samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
Flutningskostnaður á olíuvörum innan lands skal jafnaður eins og nánar greinir í lögum þessum.
Jöfnun á flutningskostnaði nær til flutninga á bifreiðabensíni, gasolíu, öðrum olíum og blöndum til brennslu, flugvélabensíni og flugsteinolíu (þotueldsneyti) til innanlandsflugs, þó ekki á olíum ætluðum til útflutnings, svo sem til millilandasiglinga, millilandaflugs, erlendra skipa og erlendra flugvéla.
Jöfnun flutningskostnaðar samkvæmt lögum þessum nær til flutnings á bensíni og öðrum olíuvörum sjóleiðis frá innflutningshöfnum til annarra hafna á landinu sem geta tekið við bensíni og olíuvörum með leiðslu úr tankskipi. Jafnframt nær jöfnun flutningskostnaðar til landflutninga á bensíni og dísilolíu með tankbifreið til allra útsölustaða í byggð, þ.e. utan hálendis, frá næstu innflutningshöfn eða næstu höfn sem getur tekið við bensíni og dísilolíu frá tankskipi úr olíuleiðslu.
2. gr.
Leggja skal flutningsjöfnunargjald á allar olíuvörur, sem fluttar eru til landsins og ætlaðar eru til nota innan lands, sbr. 1. gr., og rennur gjaldið í [ríkissjóð]. 1) [Á grundvelli fjárheimildar í fjárlögum skal ráðherra ákvarða fjárveitingu í sérstakan sjóð, flutningsjöfnunarsjóð olíuvara, sem nemur að lágmarki áætlun fjárlaga um innheimtu tekna af gjaldi skv. 1. málsl.] 1)
[Byggðastofnun], 2) að fenginni tillögu stjórnar flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara, ákveður gjald á olíuvörum skv. 1. mgr. fyrir minnst þrjá mánuði í senn og skal fjárhæð flutningsjöfnunargjalds hvers flokks, sbr. 4. gr., við það miðuð að tekjur af gjaldinu nægi til að greiða flutningskostnað á því magni af framangreindum olíuvörum sem flytja þarf frá næstu innflutningshöfn eða olíuhöfn til þeirra olíuhafna eða útsölustaða sem jöfnun flutningskostnaðar nær til svo að fullnægt verði eftirspurn eftir þeim olíuvörum sem dreift er þaðan.
1)L. 47/2018, 43. gr. 2)L. 131/2013, 1. gr.
3. gr.
Innflytjendur, sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, sbr. 1. gr., skulu reikna og greiða flutningsjöfnunargjaldið … 1) af sölu í hverjum mánuði eigi síðar en á síðasta virkum degi að þremur mánuðum liðnum frá lokum sölumánaðar.
Aðrir innflytjendur bensíns og olíu, sbr. 1. gr., skulu greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn.
[Innheimtumenn ríkissjóðs] 2) annast innheimtu gjaldsins og skulu þeir skila því til [ríkissjóðs]. 1)
1)L. 47/2018, 44. gr. 2)L. 142/2018, 47. gr.
4. gr.
Greiða skal úr flutningsjöfnunarsjóði olíuvara kostnað við flutning olíu frá innflutningshöfn eða olíuhöfn til þeirra olíuhafna og útsölustaða sem jöfnun flutningskostnaðar nær til samkvæmt lögum þessum.
Mynda skal innan flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara sérstaka reikninga fyrir eftirfarandi flokka: 1) bifreiðabensín, 2) gasolíu, 3) aðrar olíur og blöndur til brennslu og 4) flugsteinolíu (þotueldsneyti). Færa skal tekjur af flutningsjöfnunargjaldi hvers flokks á sérstakan reikning og sömuleiðis útgjöld vegna jöfnunar flutningskostnaðar. Stefnt skal að því að ná jafnvægi milli álagðra flutningsjöfnunargjalda og útgjalda vegna flutningsjöfnunar hvers flokks innan almanaksársins.
5. gr.
Ekki má leggja flutningsjöfnunargjald á einn flokk til að greiða flutningskostnað á öðrum flokki skv. 4. gr. Verði tekjuafgangur á reikningum flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara í árslok skal hann yfirfærast til næsta árs. Ef tekjur sjóðsins á almanaksári hrökkva ekki fyrir útgjöldum skal greiða það sem á vantar af fyrstu tekjum sjóðsins næsta ár.
Nú hrekkur flutningsjöfnunargjald af einum flokki ekki til greiðslu á kröfum þess flokks og skulu þá innstæður á reikningum annarra flokka notaðar til greiðslu þessara krafna til bráðabirgða. Slíkar bráðabirgðagreiðslur skulu endurgreiddar af hækkuðu flutningsjöfnunargjaldi af umræddum flokki á næsta flutningsjöfnunartímabili.
6. gr.
Stjórn flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara skal skipuð þremur mönnum sem [ráðherra] 1) skipar til tveggja ára í senn. Einnig skal skipa varamenn. Forstjóri [Byggðastofnunar] 2) eða staðgengill hans er formaður stjórnarinnar, ráðherra skipar einn stjórnarmann án tilnefningar en jafnframt situr í henni einn stjórnarmaður, tilnefndur sameiginlega af þeim olíufélögum, sem annast olíudreifingu í öllum landshlutum, eða meiri hluta félaganna. Þó má [ráðherra] 1) ákveða að í stað eins sameiginlegs fulltrúa sitji í stjórninni einn fulltrúi frá hverju slíku olíufélagi. Olíufélögin sameiginlega eða meiri hluti þeirra fer saman með eitt atkvæði við ákvarðanatöku í stjórn sjóðsins. [Ekki eru greidd laun fyrir setu í stjórn sjóðsins.] 3)
1)L. 126/2011, 198. gr. 2)L. 131/2013, 1. gr. 3)L. 131/2013, 2. gr.
7. gr.
Stjórn flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara og [Byggðastofnun] 1) sjá um daglegan rekstur og greiðslur á kostnaði við flutningsjöfnun í samræmi við lög þessi, reglur og ákvarðanir stjórnar sjóðsins.
1)L. 131/2013, 1. gr.
8. gr.
Stjórn flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara úrskurðar hvað teljast skuli flutningskostnaður. Er stjórninni skylt að ákveða að jöfnun flutningskostnaðar milli innflutningshafnar, olíuhafnar og útsölustaða skuli takmörkuð við kostnað af þeim flutningsháttum sem ódýrastir eru á hverjum tíma. Enn fremur skal stjórninni heimilt að synja um greiðslu tiltekins kostnaðar úr sjóðnum að hluta til eða að fullu ef stjórnin telur að um misnotkun á jöfnunarkerfinu sé að ræða.
9. gr.
Allur kostnaður af starfsemi flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara greiðist af tekjum sjóðsins og skal tekið tillit til þess við ákvörðun flutningsjöfnunargjalds.
Fé það, sem á hverjum tíma er í flutningsjöfnunarsjóði, skal ávaxtað í banka á sérstökum reikningi.
10. gr.
Að undanteknum fyrirmælum um jöfnun flutningskostnaðar samkvæmt lögum þessum skal um verðlagningu á olíuvörum fara eftir samkeppnislögum … 1) og reglugerðum settum samkvæmt þeim.
1)L. 62/2005, 13. gr.
11. gr.
[Ráðherra] 1) getur með reglugerð sett nánari reglur um framkvæmd laga þessara. Þar er m.a. heimilt að fella niður flutningsjöfnunargjald af olíuvörum í sérstökum tilvikum sem byggjast á samningum um rekstur olíufrekra iðjuvera hér á landi. Flutningsjöfnunarsjóður jafnar ekki flutningskostnað í slíkum tilvikum. Það er jafnframt heimilt að ákveða að fjölga eða fækka útsölustöðum sem jöfnun flutningskostnaðar með tankbifreið nær til að fenginni tillögu þar um frá stjórn flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara.
1)L. 126/2011, 198. gr.
12. gr.
Lög þessi öðlast gildi fyrsta dag næsta mánaðar að þremur mánuðum liðnum frá samþykkt þeirra. …
Ákvæði til bráðabirgða. …