Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um framkvæmd Rómarsamþykktar um Alþjóðlega sakamáladómstólinn

2001 nr. 43 19. maí


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. júlí 2002. Breytt með: L. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 35/2025 (tóku gildi 1. júlí 2025; um lagaskil sjá 21. gr.).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við dómsmálaráðherra eða dómsmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

1. gr. Gildissvið.
Nú fer Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn þess á leit, í samræmi við samþykkt dómstólsins frá 17. júlí 1998 (Rómarsamþykkt), að hér á landi verði framkvæmdar aðgerðir vegna rannsóknar eða meðferðar máls og skal þá farið með slíkar beiðnir í samræmi við ákvæði þessara laga. Sama gildir um beiðnir dómstólsins um fullnustu dóma.
Beiðni um aðgerðir skv. 1. mgr. skal send [ráðherra] 1) sem hefur að öðru leyti samskipti við dómstólinn fyrir hönd íslenska ríkisins.
    1)L. 126/2011, 323. gr.
2. gr. Afhending manns til dómstólsins.
Að beiðni dómstólsins skal afhenda mann sem dvelur hér á landi og er grunaður um glæp sem fellur undir lögsögu dómstólsins eða hefur verið ákærður eða dæmdur fyrir slíkan glæp.
Um meðferð máls skv. 1. mgr. gilda ákvæði [III. kafla laga um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum] 1) að því leyti sem þau eiga við.
[Ráðherra] 2) getur veitt heimild til þess að maður sem annað ríki hefur samþykkt að afhenda dómstólnum verði fluttur um yfirráðasvæði íslenska ríkisins.
    1)L. 35/2025, 22. gr. 2)L. 162/2010, 167. gr.
3. gr. Önnur aðstoð.
Íslenskir dómstólar og stjórnvöld geta að beiðni dómstólsins veitt þá aðstoð sem tilgreind er í 93. gr. Rómarsamþykktarinnar að því tilskildu að slík beiðni sé í samræmi við önnur ákvæði samþykktarinnar.
Að beiðni dómstólsins er [ráðherra] 1) heimilt að veita starfsmönnum dómstólsins leyfi til að yfirheyra vitni og framkvæma aðrar rannsóknaraðgerðir hér á landi. Um meðferð slíkra beiðna og framkvæmd aðgerða fer eftir lögum um meðferð [sakamála]. 2)
    1)L. 162/2010, 167. gr. 2)L. 88/2008, 234. gr.
4. gr. Beiting þvingunarráðstafana.
Að beiðni dómstólsins er heimilt að handtaka mann og beita öðrum þvingunarráðstöfunum. Um meðferð slíkra beiðna fer eftir lögum um meðferð [sakamála]. 1)
Ef lög gera það að skilyrði fyrir beitingu þvingunarráðstafana að fyrir liggi rökstuddur grunur um refsivert brot skal leggja til grundvallar niðurstöðu dómstólsins um það atriði.
Maður sem úrskurðaður hefur verið í gæsluvarðhald skv. 1. mgr. getur gert kröfu um að hann skuli leystur úr gæsluvarðhaldi þar til afhending til dómstólsins fer fram. Krafa þess efnis skal borin fram við héraðsdóm.
Við mat á kröfu um lausn úr gæsluvarðhaldi skv. 3. mgr. þar til afhending fer fram skal dómari hafa hliðsjón af þeim atriðum sem fram koma í 4. mgr. 59. gr. Rómarsamþykktarinnar. Áður en héraðsdómur tekur slíka kröfu til úrskurðar skal tilkynning um meðferð kröfunnar fyrir héraðsdómi send dómstólnum og honum gefinn kostur á að gera athugasemdir af því tilefni.
    1)L. 88/2008, 234. gr.
5. gr. Verjandi sakbornings.
Maður sem grunaður er um eða ákærður fyrir háttsemi sem fellur undir lögsögu dómstólsins skal eiga rétt á aðstoð verjanda að eigin vali vegna meðferðar málsins hér á landi. Skal honum tilkynnt um þennan rétt.
Þóknun verjanda greiðist úr ríkissjóði og skal ákveðin samkvæmt lögum um meðferð [sakamála]. 1)
    1)L. 88/2008, 234. gr.
6. gr. Réttargæslumaður brotaþola.
Brotaþoli í máli sem fellur undir lögsögu dómstólsins getur óskað eftir að fá skipaðan réttargæslumann ef ástæða þykir til að ætla að hann hafi orðið fyrir verulegu tjóni á líkama eða heilsu vegna háttsemi ákærða og talið er nauðsynlegt að hann njóti aðstoðar réttargæslumanns.
Ákvæði [V. kafla laga um meðferð sakamála] 1) skulu gilda eftir því sem við á.
    1)L. 88/2008, 234. gr.
7. gr. Ne bis in idem.
Maður verður ekki ákærður eða dæmdur hér á landi fyrir verknað sem dómur hefur fallið um hjá dómstólnum.
8. gr. Fullnusta dóma Alþjóðlega sakamáladómstólsins hér á landi.
Að beiðni dómstólsins er heimilt að fullnægja dómum hans hér á landi. Dómum má fullnægja þótt dómþoli sé ekki íslenskur ríkisborgari eða búsettur hér á landi.
Fullnusta dóma hér á landi skal fara fram í samræmi við ákvæði 10. kafla Rómarsamþykktarinnar.
9. gr. Refsingar fyrir brot gegn dómstólnum eða starfsmönnum hans.
Ákvæði XII., XV. og XVII. kafla almennra hegningarlaga eiga við um háttsemi sem beinist að dómstólnum eða starfsmönnum hans.
10. gr. Reglugerðarheimild.
[Ráðherra] 1) er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd laga þessara og um samskipti við dómstólinn.
    1)L. 162/2010, 167. gr.
11. gr. Gildistaka.
Ákvæði laga þessara taka gildi um leið og Rómarsamþykkt um Alþjóðlega sakamáladómstólinn öðlast gildi að því er Ísland varðar.
Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica