Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um Félagsmálaskóla alþýðu

1989 nr. 60 31. maí


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 14. júní 1989. Breytt með: L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við félags- og húsnæðismálaráðherra eða félags- og húsnæðismálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

1. gr.
Á vegum Alþýðusambands Íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja starfar skóli er nefnist Félagsmálaskóli alþýðu. Menningar- og fræðslusamband alþýðu fer með málefni skólans.
2. gr.
Hlutverk skólans er að mennta fólk úr samtökum launafólks með það fyrir augum að efla sjálfstraust þess, þroska og hæfni til þess að vinna að bættum lífskjörum verkalýðsstéttarinnar.
3. gr.
Félagsmálaskóli alþýðu skal veita fræðslu um hina íslensku og alþjóðlegu verkalýðshreyfingu og viðfangsefni hennar, sögu, skipulag, starfshætti og stefnu. Veita skal fræðslu á sviði félagsfræði og hagfræði auk meginatriða íslenskrar félagsmálalöggjafar.
Heimilt er að veita fræðslu í almennum námsgreinum, svo sem stærðfræði, íslensku og erlendum tungumálum.
Leggja skal áherslu á þjálfun nemenda í að setja fram hugsanir sínar í ræðu og riti og að gera þá færa um að taka að sér trúnaðarstörf í þágu verkalýðshreyfingarinnar. Félagsmálaskóli alþýðu starfar allt árið. Starfið fer fram í formi námsanna og námskeiða.
Starfsemi skólans fer fram í húsakynnum hans eða annars staðar eftir því sem þörf krefur og henta þykir.
Nám í Félagsmálaskóla alþýðu skal metið til áfanga í framhaldsnámi eftir því sem við á.
Nánari ákvæði um námsefni og námstilhögun skulu sett í reglugerð sem [ráðherra] 1) setur að fenginni tillögu skólanefndar.
    1)L. 126/2011, 132. gr.
4. gr.
Heimilt er að ákveða í reglugerð að tiltekinn aldur sé skilyrði fyrir þátttöku í námskeiði eða námsönn, svo og að nemandi sé félagi í stéttarfélagi og hafi tekið þátt í öðru tilteknu námi.
5. gr.
[Ráðherra] 1) skipar sjö menn í skólanefnd til fjögurra ára og skulu fjórir nefndarmenn tilnefndir af Menningar- og fræðslusambandi alþýðu og skal formaður sambandsins vera einn þeirra, einn tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands, einn af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja en einn skal skipaður án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Tilnefningaraðilar greiða þóknun og annan kostnað vegna starfa fulltrúa sinna í skólanefnd.
Formaður Menningar- og fræðslusambands alþýðu er formaður skólanefndarinnar. Skólanefndin kýs úr sínum hópi varaformann og ritara. Skólanefnd ræður skólanum skólastjóra.
    1)L. 162/2010, 6. gr.
6. gr.
Skólanefnd og skólastjóri ákveða námsframboð með samþykki [ráðuneytisins]. 1)
Nánar skal kveðið á um verksvið skólanefndar í reglugerð.
    1)L. 162/2010, 6. gr.
7. gr.
Skólastjóri stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að starfsemi hans sé í samræmi við lög, reglugerðir og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma og ber ábyrgð á að fylgt sé fjárhagsáætlun skólans. Skólastjóri ræður annað starfslið skólans í samráði við skólanefnd.
Skólastjóri situr fundi skólanefndarinnar með málfrelsi og tillögurétti.
8. gr.
Um fjárveitingar til Félagsmálaskóla alþýðu gildir eftirfarandi:
    a. Rekstrarkostnaður skólans skal greiddur að fullu úr ríkissjóði, annar en rekstrarkostnaður heimavistar sem greiðist 80%.
    b. Stofnkostnaður kennsluhúsnæðis, sem byggt verður eftir gildistöku laga þessara, skal greiddur að 80% úr ríkissjóði og skal hið sama gilda um heimavist.
Þó skal framlag ríkissjóðs samkvæmt stafliðum a og b hér að framan miðast að hámarki við kostnað í ríkisskólum á framhaldsskólastigi.
Eignaraðilar skulu gera með sér samning um skiptingu annars rekstrar- og stofnkostnaðar.
Skólanefnd undirbýr árlega ásamt skólastjóra tillögur til fjárlaga og sendir þær [ráðuneytinu]. 1) Í upphafi hvers árs gerir skólanefnd fjárhagsáætlun í samræmi við niðurstöður fjárlaga og fylgist með að henni sé framfylgt. Skólanefnd ákveður upphæð gjalda er nemendum er gert að greiða við innritun í námsáfanga, svo sem innritunargjöld, efnisgjöld og pappírsgjöld. Halda skal bókhald um fjárreiður þessar og um endurskoðun gilda sömu reglur og um annan rekstur.
Skilyrði fyrir fjárveitingu til rekstrar er að [ráðuneytið] 1) samþykki árlega áætlanir um rekstrarkostnað.
Framlög til stofnkostnaðar greiðast eftir því sem fé er veitt til í fjárlögum, enda liggi áður fyrir samþykki stjórnvalda fyrir nýjum byggingarframkvæmdum þegar um þær er að ræða.
Nú er skóli þessi lagður niður eða svo fer að ekki er hagnýtt í þágu skólans skólahúsnæði hans, hvort sem er til kennslu eða heimavistar, og fær ríkið þá eignarráð yfir hlutaðeigandi húsnæði í samræmi við stofnkostnaðarframlög sín. Ef ágreiningur verður um eignaskiptingu skal dómkveðja þrjá óvilhalla menn til þess að kveða á um skiptinguna og er úrskurður þeirra endanlegur.
Stofnkostnaðar- og rekstrarreikningur skal gerður í febrúarmánuði og sendur ásamt fylgiskjölum Ríkisendurskoðun til endurskoðunar.
    1)L. 162/2010, 6. gr.
9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica