Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um uppboðsmarkaði sjávarafla

2005 nr. 79 24. maí


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 9. júní 2005. Breytt með: L. 44/2006 (tóku gildi 15. júní 2006). L. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 71/2021 (tóku gildi 29. júní 2021 nema 29. gr. sem tók gildi 1. júlí 2021).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við atvinnuvegaráðherra eða atvinnuvegaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

1. gr.
Lög þessi taka til starfsemi uppboðsmarkaða fyrir sjávarafla.
[Ráðherra] 1) veitir leyfi til reksturs uppboðsmarkaðar fyrir sjávarafla. Við veitingu leyfa skal ráðherra m.a. meta hvort skilyrði séu til frjálsrar verðmyndunar á uppboðsmarkaði með hliðsjón af líklegu fiskframboði, fjölda fiskvinnslustöðva á markaðssvæði og starfsemi annarra uppboðsmarkaða.
Svipta má aðila leyfi til reksturs uppboðsmarkaðar fullnægi hann ekki skilyrðum settum í lögum þessum eða reglugerð um starfsemi uppboðsmarkaða, sbr. 5. gr.
    1)L. 126/2011, 407. gr.
2. gr.
Í lögum þessum er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:
    1. Leyfishafi: Sá sem fengið hefur leyfi ráðherra samkvæmt lögum þessum til að starfrækja uppboðsmarkað fyrir sjávarafla.
    2. Reiknistofa uppboðsmarkaða: Aðili sem leyfishafi hefur falið að sjá um framkvæmd uppboða skv. 5. tölul. og þá starfsemi sem tilgreind er í 6. gr. Reiknistofa skal uppfylla þau skilyrði sem ráðherra setur með reglugerð skv. 5. gr.
    3. Uppboðsmarkaður: Markaður þar sem sjávarafli, eldistegundir bæði úr ferskvatns- og sjávareldi, vatnafiskur og afurðir úr framantöldu eru seldar á frjálsu uppboði. Uppboðsmarkaður getur jafnframt veitt aðra þjónustu sem tengist sölunni.
    4. Uppboðsstaður: Staður þar sem aðilar geta kynnt sér afla sem seldur verður á uppboði.
    5. Uppboðsstjóri: Sá aðili sem leyfishafi hefur falið að annast framkvæmd uppboðs og hlotið hefur löggildingu ráðherra til þeirra starfa. Leyfishafi hefur heimild til að fela reiknistofu uppboðsmarkaða að sjá um framkvæmd uppboðs.
3. gr.
Leyfi til reksturs uppboðsmarkaðar má einungis veita aðilum sem fullnægja eftirfarandi skilyrðum:
    a. Hafa íslenskan ríkisborgararétt og eiga lögheimili hér á landi. Erlendur ríkisborgari sem á lögheimili hér á landi og hefur átt það samfellt í a.m.k. eitt ár skal þó vera undanþeginn skilyrði um íslenskt ríkisfang. [Skilyrði um íslenskan ríkisborgararétt og lögheimili hér á landi ná ekki til einstaklinga sem hafa ríkisfang og búsettir eru í aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins eða í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða til Færeyinga búsettra í Færeyjum eða á Íslandi.] 1)
    b. Eru fjárráða.
    c. Hafa forræði á búi sínu.
Enn fremur má veita hlutafélögum eða öðrum lögaðilum sem eiga heimili hér á landi leyfi til reksturs, enda uppfylli stjórnarmenn og framkvæmdastjórar lögaðila skilyrði b- og c-liðar 1. mgr. Sé um að ræða erlendan aðila eða íslenskan lögaðila sem erlendur aðili á hlut í skal auk þess fullnægt skilyrðum laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri.
    1)L. 44/2006, 1. gr.
4. gr.
Um húsnæði og búnað uppboðsmarkaðar og meðferð afla gilda [lög um matvæli] 1) og reglur settar á grundvelli þeirra laga eftir því sem við á.
Um vigtun afla gilda ákvæði laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, og reglur sem settar eru á grundvelli þeirra eftir því sem við á.
    1)L. 71/2021, 35. gr.
5. gr.
Ráðherra skal í reglugerð 1) kveða á um útgáfu rekstrarleyfa og starfsemi uppboðsmarkaða, þar á meðal um gagnsæi viðskipta, birtingu uppboðsskilmála og um uppboðslýsingar. Ráðherra setur jafnframt reglur um starfsemi reiknistofu uppboðsmarkaða.
    1)Rg. 646/2007, sbr. 774/2007, 398/2021 og 1153/2021.
6. gr.
Leyfishafar skulu standa skil á uppboðsandvirði hins selda afla til seljenda og sjá um skil á greiðslum samkvæmt ákvæðum II. kafla laga nr. 24/1986, um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins.
Leyfishafi skal krefjast greiðslutrygginga af kaupanda sé ekki um staðgreiðslu að ræða.
Við skiptingu greiðslna samkvæmt þessari grein skal miða við uppboðsandvirði að frádregnum beinum kostnaði af uppboðinu.
Leyfishafa er heimilt að fela reiknistofu uppboðsmarkaða þann hluta starfsemi sinnar sem mælt er fyrir um í þessari grein.
7. gr.
Um sjávarafla, sem seldur er á uppboðsmarkaði, gilda ekki ákvæði um lágmarksverð samkvæmt lögum nr. 43/1985, um Verðlagsráð sjávarútvegsins.
8. gr.
Leyfishafi skal hafa í þjónustu sinni a.m.k. einn starfsmann sem sér um framkvæmd uppboðs, uppboðsstjóra, og skal hann hafa löggildingu til starfans.
[Ráðherra] 1) veitir löggildingu.
Uppboðsstjórar mega hvorki gera boð á uppboði sjálfir né láta aðra gera það fyrir sína hönd.
    1)L. 126/2011, 407. gr.
9. gr.
… 1) Brot gegn ákvæðum laga þessara og reglum settum samkvæmt þeim varða sektum hvort sem þau eru framin af ásetningi eða gáleysi og fangelsi allt að tveimur árum sé um stórfellt eða ítrekað ásetningsbrot að ræða.
    1)L. 88/2008, 233. gr.
10. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. …
Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica