Tóku gildi 1. janúar 2007.Breytt meðl. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
I. kafli.Almenn ákvæði. 1. gr.Gildissvið. Lög þessi taka til fjárstyrkja úr ríkissjóði til kjörforeldra sem ættleitt hafa erlent barn eða börn í samræmi við lög um ættleiðingar. Lög þessi taka ekki til alþjóðlegra fjölskylduættleiðinga.
II. kafli.Stjórnsýsla. 2. gr.Yfirstjórn. [Ráðherra]1) fer með yfirstjórn ættleiðingarstyrkja samkvæmt lögum þessum. 1)L. 126/2011, 442. gr. 3. gr.Framkvæmdaraðili. [Ráðherra]1) ákveður með reglugerð hvaða aðila hann felur framkvæmd laga þessara. Kostnaður vegna ættleiðingarstyrkja í lögum þessum greiðist úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum hverju sinni. 1)L. 162/2010, 34. gr. 4. gr.Kæruheimild. Ákvörðun um synjun ættleiðingarstyrks og leiðréttingu á greiðslum skv. 8. gr. er heimilt að kæra til [ráðherra].1) Um kæru gilda ákvæði VII. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. 1)L. 162/2010, 34. gr.
III. kafli.Greiðsla ættleiðingarstyrks. 5. gr.Greiðsla og skilyrði styrks. Ættleiðingarstyrkur er eingreiðsla sem er greidd út samkvæmt umsókn kjörforeldra þegar erlend ættleiðing hefur verið staðfest hér á landi eða ættleiðingarleyfi hefur verið gefið út hér í samræmi við ákvæði laga um ættleiðingar. Kjörforeldrar sem hafa fengið útgefið forsamþykki í samræmi við lög um ættleiðingar eiga einir rétt á ættleiðingarstyrk. Þessi réttur er ekki framseljanlegur. 6. gr.Umsókn um styrk. Kjörforeldrar skulu sækja um ættleiðingarstyrk á þar til gerðum eyðublöðum. Sækja skal um styrk innan sex mánaða frá því að erlend ættleiðing er staðfest hér á landi eða ættleiðingarleyfi gefið út hér í samræmi við lög um ættleiðingar. Réttur til ættleiðingarstyrks fellur niður að þessum tíma liðnum. Ákveða skal með reglugerð sem [ráðherra]1) setur hvaða gögn skuli fylgja með umsókn um ættleiðingarstyrk. 1)L. 162/2010, 34. gr. 7. gr.Fjárhæð styrks. Fjárhæð ættleiðingarstyrks nemur 480.000 kr. Fjárhæð styrksins skal endurskoðuð í tengslum við afgreiðslu fjárlaga á tveggja ára fresti. [Ráðherra]1) setur í reglugerð2) ákvæði um endurskoðaða fjárhæð styrksins. Ef kjörforeldrar hafa ættleitt fleiri en eitt barn samtímis er veittur styrkur vegna hvers barns umfram eitt sem nemur 20% af fjárhæð skv. 1. mgr. 1)L. 162/2010, 34. gr.2)Rg. 950/2007, sbr. 1198/2008 og 576/2011. 8. gr.Leiðrétting á greiðslum. Hafi styrkþegi ranglega fengið ættleiðingarstyrk skal hann endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var.
IV. kafli.Ýmis ákvæði. 9. gr.Reglugerð. [Ráðherra]1) setur reglugerð2) um nánari framkvæmd laga þessara. 1)L. 162/2010, 34. gr.2)Rg. 950/2007, sbr. 1198/2008 og 576/2011. 10. gr.Gildistaka. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2007. Rétt til styrks samkvæmt lögum þessum eiga kjörforeldrar barna sem ættleidd eru eftir gildistöku laganna.