Tóku gildi 31. maí 2008 nema ákvæði til bráðabirgða sem tók gildi 8. maí 2008.Breytt meðl. 98/2010 (tóku gildi 3. júlí 2010), l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
I. kafli.Gildissvið, yfirstjórn, stefnumótun o.fl. 1. gr.Gildissvið. Lög þessi gilda um stjórnsýslu varnarmála á íslensku yfirráðasvæði og samstarf og samskipti íslenskra stjórnvalda við erlend ríki, hermálayfirvöld og alþjóðastofnanir á sviði öryggis- og varnarmála. Lögin taka ekki til verkefna stjórnvalda sem eru borgaraleg í eðli sínu, svo sem löggæslu og almannavarna. 2. gr.Markmið. Markmið þessara laga eru eftirfarandi:
a. að afmarka valdheimildir íslenskra stjórnvalda varðandi varnartengd verkefni, b. að greina á milli varnartengdra verkefna og borgaralegra verkefna sem lúta að löggæslu og innra öryggi ríkisins, c. að greina á milli stefnumótunar og framkvæmdaratriða á sviði varnarmála, d. að auðvelda lýðræðislegt eftirlit með varnartengdri starfsemi. 3. gr.Yfirstjórn. [Ráðherra]1) fer með yfirstjórn varnarmála og framkvæmd laga þessara. [Ráðherra]1) ber ábyrgð á gerð hættumats á sviði varnarmála og mótun og framkvæmd öryggis- og varnarstefnu Íslands á alþjóðavettvangi. Ef brýnir varnarhagsmunir krefjast skal [ráðherra]1) heimilt að víkja frá málsmeðferðarreglum laga þessara eða reglugerða sem eru settar samkvæmt þeim. 1)L. 126/2011, 476. gr. 4. gr.Alþjóðasamskipti. [Ráðherra]1) fer með fyrirsvar af hálfu íslenska ríkisins í samskiptum og samstarfi við erlend ríki, hermálayfirvöld og alþjóðastofnanir á sviði öryggis- og varnarmála, þ.m.t. Atlantshafsbandalagið. Jafnframt annast [ráðuneytið]1) öll samskipti við erlendan liðsafla sem dvelur hérlendis á vegum íslenskra stjórnvalda. 1)L. 126/2011, 476. gr.
IV. kafli.Starfsmannamál. 8. gr. …1) 1)L. 98/2010, 4. gr. 9. gr.Ráðning starfsliðs. [Stofnunum sem vinna við verkefni samkvæmt lögum þessum er óheimilt að ráða til slíkra starfa eða hafa við slík störf einstakling eða verktaka sem ekki uppfyllir skilyrði öryggisvottunar skv. 24. gr.]1) Ef einstaklingur, verktaki eða starfsmaður verktaka telst ekki uppfylla skilyrði öryggisvottunar skal sú afstaða tilkynnt og aðila máls gefinn kostur á að koma að andmælum. Ákveði [ráðuneytið]2) að synja um starf eða verk eða segja upp gildandi vinnu- eða verksambandi, sökum þess að skilyrði öryggisvottunar teljast ekki uppfyllt, skal það gert með sannanlegum hætti …1) 1)L. 98/2010, 5. gr.2)L. 126/2011, 476. gr. 10. gr. …1) 1)L. 98/2010, 6. gr. 11. gr. …1) 1)L. 98/2010, 6. gr.
V. kafli.Rekstur öryggissvæða, loftvarnakerfis o.fl. 12. gr.Rekstur öryggissvæða. [Ráðherra]1) annast umsjón, rekstur og hagnýtingu allra öryggissvæða á Íslandi, þ.m.t. við Keflavíkurflugvöll, Helguvík, Miðnesheiði, Stokksnes, Gunnólfsvíkurfjall og Bolafjall, auk mannvirkja sem þar eru staðsett. [Ráðherra]1) birtir auglýsingu sem sýnir landfræðileg mörk öryggis- og varnarsvæða. 1)L. 126/2011, 476. gr. 13. gr.Aðgangur að öryggis- og varnarsvæðum. [Ráðherra]1) veitir aðgangsheimildir að öryggis- og varnarsvæðum. [Honum]2) er þó heimilt að fela rekstraraðila Keflavíkurflugvallar að annast útgáfu aðgangsheimilda að þeim hluta öryggissvæðisins við Keflavíkurflugvöll sem er innan haftasvæðis flugverndar. Takmarka má, synja um eða afturkalla aðgangsheimild af öryggisástæðum eða ef allsherjarregla krefst þess. …2) Að undanskildum íslenskum tollgæslu- og lögregluyfirvöldum er þeim einum heimill aðgangur að öryggis- og varnarsvæðum og mannvirkjum þar sem þangað á lögmætt erindi og hefur gilda aðgangsheimild. 1)L. 126/2011, 476. gr.2)L. 98/2010, 8. gr. 14. gr.Rekstur íslenska loftvarnakerfisins o.fl. [Ráðherra]1) annast rekstur íslenska loftvarnakerfisins, stjórnstöðvar á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, fjarskiptastöðva og ratsjárstöðva Atlantshafsbandalagsins sem staðsettar eru á öryggissvæðum. Reksturinn skal taka mið af reglum og stöðlum Atlantshafsbandalagsins varðandi slíka starfsemi. 1)L. 126/2011, 476. gr. 15. gr.Rekstur mannvirkja Atlantshafsbandalagsins o.fl. [Ráðherra]1) annast rekstur, umsjón og hagnýtingu mannvirkja og annarra eigna Atlantshafsbandalagsins hérlendis í samræmi við þjóðréttarlegar skuldbindingar og heimildir Íslands sem notenda- og gistiríkis. Reksturinn skal taka mið af reglum og stöðlum Atlantshafsbandalagsins varðandi slíka starfsemi og venjubundinni notendaríkisframkvæmd bandalagsríkjanna. [Ráðherra]1) birtir lista yfir þau mannvirki og þær eignir Atlantshafsbandalagsins og íslenska ríkisins sem [hann]2) ber ábyrgð á. 1)L. 126/2011, 476. gr.2)L. 98/2010, 9. gr. 16. gr.[Samningsbundin afnot af mannvirkjum og búnaði Atlantshafsbandalagsins.]1) …1) [Ráðherra]2) er heimilt, að virtum öryggisreglum og forgangsrétti Atlantshafsbandalagsins, að veita gegn gjaldi samningsbundin afnot af mannvirkjum og búnaði bandalagsins sem [hann]1) hefur umsjón með á grundvelli gistiríkis- og notendaríkisskuldbindinga Íslands. Tekjur vegna afnotanna renna til [ríkissjóðs]1) sem ráðstafar þeim til reksturs og viðhalds þeirra mannvirkja og búnaðar bandalagsins sem [ráðherra]2) annast. 1)L. 98/2010, 10. gr.2)L. 126/2011, 476. gr.
VI. kafli.Skaðabótamál. 17. gr. [Ráðherra]1) tekur ákvörðun um greiðslu skaðabóta úr ríkissjóði vegna skaðabótakrafna utan samninga sem Ísland hefur skuldbundið sig til að greiða á grundvelli þjóðréttarsamninga á sviði varnarmála. 1)L. 126/2011, 476. gr.
VII. kafli.Loftrýmiseftirlit, loftrýmisgæsla, varnaræfingar o.fl. 18. gr.Loftrýmiseftirlit og loftrýmisgæsla. Atlantshafsbandalaginu er heimilt að sinna loftrýmiseftirliti og loftrýmisgæslu við Ísland í samræmi við ákvarðanir Norður-Atlantshafsráðsins. Um tilhögun slíks eftirlits og gæslu fer samkvæmt samningum milli íslenska ríkisins og bandalagsins og þeirra bandalagsríkja sem skuldbinda sig til að sinna slíkum verkefnum. 19. gr.Gistiríkisstuðningur. [Ráðuneytið]1) annast gistiríkisstuðning íslenskra stjórnvalda gagnvart Atlantshafsbandalaginu og öðrum ríkjum og skal sú framkvæmd taka mið af reglum og stöðlum Atlantshafsbandalagsins um gistiríkisstuðning. 1)L. 126/2011, 476. gr. 20. gr.Varnaræfingar. [Ráðherra]1) ber ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd varnaræfinga sem haldnar eru hérlendis á vegum íslenskra stjórnvalda. Upplýsa ber utanríkismálanefnd Alþingis í lok hvers árs um fyrirhugaðar æfingar á komandi ári. [[Ráðuneytið]1) annast í samvinnu við viðeigandi stofnanir undirbúning og framkvæmd varnaræfinga.]2) 1)L. 126/2011, 476. gr.2)L. 98/2010, 12. gr.
VIII. kafli.Skatt- og tollundanþágur. 21. gr. Öryggis- og varnarsvæði, ásamt mannvirkjum íslenska ríkisins, Atlantshafsbandalagsins eða Bandaríkjanna þar, og starfsemi þeim tengd, skulu undanþegin öllum opinberum gjöldum, þ.m.t. vegna kaupa á vöru og þjónustu til viðhalds og rekstrar. Þá eru mannvirkin undanþegin skyldutryggingu fasteigna. Atlantshafsbandalagið, Samstarf í þágu friðar, herlið Bandaríkjanna og liðsafli skv. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 72/2007 nýtur hérlendis undanþágu frá greiðslu skatta, gjalda og tolla með þeim hætti sem greinir í 7. og 8. gr. viðbætis við lög nr. 110/1951, sbr. og 48. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum. Þó skal greiða óbeina skatta og gjöld, skv. 1. tölul. 6. gr. viðbætisins, með þeim undanþágum sem leiðir af 8. gr. viðbætisins og endurgreiðsluheimild 43. gr. laga nr. 50/1988. Sama gildir um liðsafla annarra ríkja, og skyldulið þeirra, sem dvelst hérlendis við framkvæmd skyldustarfa eða varnaræfingar á vegum íslenskra stjórnvalda. Um þær eignir og þann rekstur sem [ráðuneytið]1) annast fyrir hönd Atlantshafsbandalagsins, Samstarfs í þágu friðar, herliðs Bandaríkjanna eða annarra þjóðréttaraðila, sem samkvæmt lögum og alþjóðasamningum eru undanþegnir skatt- og tollskyldu, fer eftir þeim sérreglum sem um þá þjóðréttaraðila gilda. [Ráðherra]1) setur að höfðu samráði við [hlutaðeigandi ráðuneyti]1) reglugerð2) um framkvæmd slíkrar umsýslu. 1)L. 126/2011, 476. gr.2)Rg. 754/2009.
IX. kafli.Meðferð upplýsinga. 22. gr.Þagnarskylda. [Þeir starfsmenn stofnana, verktaka og annarra aðila sem vinna við einstök verkefni samkvæmt lögum þessum]1) eru bundnir þagnarskyldu. Þeir mega ekki, að viðlagðri ábyrgð, skýra óviðkomandi frá því sem þeir komast að í starfi sínu og leynt á að fara. …1) Þagnarskylda helst þótt látið sé af störfum eða verksamningi ljúki. 1)L. 98/2010, 13. gr. 23. gr.Úrvinnsla og miðlun upplýsinga. [Ráðuneytið]1) annast úrvinnslu upplýsinga úr upplýsingakerfum Atlantshafsbandalagsins og erlendra samstarfsaðila sem [það]2) hefur aðgang að. [Ráðuneytið]2) skal leitast við að skilgreina hættur sem kunna að steðja að íslensku yfirráðasvæði og íslenskum ríkisborgurum, m.a. vegna hernaðarumsvifa eða sambærilegs alvarlegs hættuástands. [Ráðuneytið]1) má skiptast á upplýsingum við stjórnvöld annarra ríkja og alþjóðasamtök sem Ísland er aðili að enda byggist slíkt á gildum milliríkjasamningum og sé nauðsynlegt að teknu tilliti til öryggis- og varnarhagsmuna landsins. [Ráðuneytið]1) vinnur úr upplýsingum sem [það]2) fær skv. 1. og 2. mgr. og miðlar áfram til …2) annarra stjórnvalda og utanríkismálanefndar samkvæmt nánari ákvæðum sem [ráðherra]1) skal setja í reglugerð. Reglugerðin skal m.a. taka mið af stöðlum og reglum Atlantshafsbandalagsins varðandi meðhöndlun slíkra upplýsinga. 1)L. 126/2011, 476. gr.2)L. 98/2010, 14. gr. 24. gr.Öryggisvottun og trúnaðarstig skjala. [Ráðuneytið]1) ber ábyrgð á útgáfu öryggisvottunar samkvæmt lögum þessum. Embætti ríkislögreglustjóra annast framkvæmd bakgrunnsskoðunar vegna öryggisvottunar, að beiðni [ráðuneytisins],2) og er við vinnsluna m.a. heimilt að afla upplýsinga um viðkomandi úr skrám lögreglu og sakaskrá. [Ráðuneytið]2) heldur sérstaka skrá yfir aðila sem hljóta öryggisvottun samkvæmt lögum þessum. [Ráðherra]1) setur reglugerð um framkvæmd öryggisvottunar og trúnaðarstig skjala samkvæmt lögum þessum að höfðu samráði við [þann ráðherra er fer með málefni almannaöryggis].1) Skal þar tekið mið af stöðlum og reglum Atlantshafsbandalagsins um öryggi og meðferð trúnaðarskjala og eftir atvikum öðrum þjóðréttarskuldbindingum sem Ísland hefur undirgengist varðandi öryggi og meðferð trúnaðarupplýsinga. 1)L. 126/2011, 476. gr.2)L. 98/2010, 15. gr. 25. gr.[Skýrsla um varnarmál. [Ráðherra]1) flytur utanríkismálanefnd Alþingis árlega skýrslu um varnar- og öryggismál og framkvæmd laga þessara. Enn fremur hefur ráðherra samráð við utanríkismálanefnd um öll meiri háttar varnar- og öryggismál, sbr. 24. gr. þingskapalaga.]2) 1)L. 126/2011, 476. gr.2)L. 98/2010, 16. gr.