Tóku gildi 1. júlí 1993.Breytt meðl. 122/1993 (tóku gildi 1. jan. 1994), l. 41/1995 (tóku gildi 9. mars 1995), l. 48/1996 (tóku gildi 1. júní 1996), l. 47/1997 (tóku gildi 29. maí 1997), l. 140/1997 (tóku gildi 30. des. 1997), l. 83/1998 (tóku gildi 1. júlí 1998 nema III. kafli sem tók gildi 24. júní 1998 og II. kafli sem tók gildi 11. okt. 1998), l. 151/1998 (tóku gildi 1. jan. 1999 nema 3. og 5. gr. sem tóku gildi 11. febr. 1999; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 13. gr.), l. 159/1998 (tóku gildi 1. jan. 1999 nema 2. gr. sem tók gildi 30. des. 1998), l. 86/1999 (tóku gildi 22. okt. 1999), l. 8/2000 (tóku gildi 7. apríl 2000 nema d-liður 3. gr. sem tók gildi 15. maí 2000), l. 38/2000 (tóku gildi 26. maí 2000), l. 104/2000 (tóku gildi 1. júlí 2000), l. 56/2001 (tóku gildi 1. júlí 2001), l. 22/2002 (tóku gildi 4. apríl 2002), l. 19/2003 (tóku gildi 28. mars 2003), l. 119/2003 (tóku gildi 28. nóv. 2003), l. 29/2004 (tóku gildi 26. maí 2004), l. 87/2004 (tóku gildi 1. júlí 2005), l. 72/2005 (tóku gildi 1. júlí 2005), l. 139/2006 (tóku gildi 21. des. 2006), l. 77/2007 (tóku gildi 5. apríl 2007), l. 112/2008 (tóku gildi 1. okt. 2008 nema 12. tölul. 59. gr. sem tók gildi 25. sept. 2008; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 2. mgr. 56. gr.), l. 137/2008 (tóku gildi 12. des. 2008), l. 140/2008 (tóku gildi 16. des. 2008), l. 147/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009), l. 175/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009), l. 60/2009 (tóku gildi 30. maí 2009), l. 130/2009 (tóku gildi 30. des. 2009 nema 7.–9. gr. og 13.–42. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010), l. 156/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011), l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011), l. 164/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011 nema 2., 6., 22. og 26. gr. sem tóku gildi 31. des. 2010; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 29. gr.), l. 165/2010 (tóku gildi og komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 69. gr.), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011) og l. 164/2011 (tóku gildi 30. des. 2011 nema 1.–2., 4.–5., 7., 15.–21., 24.–27., 29.–30. og 34.–39. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2012; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 40. gr.).
I. kafli.Almenn ákvæði og gjaldskylda. 1. gr. Greiða skal í ríkissjóð vörugjald af ökutækjum sem skráningarskyld eru samkvæmt umferðarlögum, nr. 50/1987, o.fl., svo sem nánar greinir í lögum þessum, sbr. 87. kafla viðauka I við tollalög, [nr. 88/2005],1) og eldsneyti, sbr. 27. kafla viðauka I við tollalög, [nr. 88/2005],1) eftir því sem segir í lögum þessum. 1)L. 147/2008, 36. gr. Gjaldskylda. 2. gr. Gjaldskyldan nær til allra vara, sbr. 1. gr., nýrra sem notaðra, sem fluttar eru til landsins eða eru framleiddar, unnið er að eða settar eru saman hér á landi. Vara, sem seld er úr landi, er þó ekki gjaldskyld. Við flokkun til gjaldskyldu samkvæmt lögum þessum skal fylgt flokkunarreglum tollalaga, [nr. 88/2005],1) og gilda ákvæði þeirra um úrskurðarvald í ágreiningsmálum um flokkun vara jafnframt um vörugjald. 1)L. 147/2008, 36. gr.
II. kafli.Vörugjald af ökutækjum o.fl. Gjaldflokkar ökutækja. 3. gr. [Á fólksbifreiðar og önnur vélknúin ökutæki, sem ekki eru sérstaklega tilgreind í 4. og 5. gr., skal lagt vörugjald samkvæmt aðalflokki í eftirfarandi gjaldbilum miðað við skráða losun koltvísýrings (CO2) viðkomandi ökutækis, mælt í grömmum á hvern ekinn kílómetra:
III. kafli.Vörugjöld af eldsneyti. Almennt vörugjald af eldsneyti. 14. gr. [Greiða skal [24,46 kr.]1) vörugjald af hverjum lítra af bensíni.]2) 1)L. 164/2011, 16. gr.2)L. 86/1999, 1. gr. Sérstakt vörugjald af eldsneyti. 15. gr. [Auk vörugjalds skv. 14. gr. skal greiða sérstakt vörugjald, bensíngjald, af bensíni. Af blýlausu bensíni skal greiða [39,51 kr.]1) af hverjum lítra og af öðru bensíni skal greiða [41,87 kr.]1) af hverjum lítra.]2) [Tekjum af bensíngjaldi skal einungis varið til vegagerðar samkvæmt vegáætlun, að frádregnum 0,5% sem renna í ríkissjóð til að standa straum af kostnaði við álagningu og innheimtu gjaldsins.]3) 1)L. 164/2011, 17. gr.2)L. 86/1999, 2. gr.3)L. 159/1998, 6. gr. 16. gr. …1) 1)L. 86/1999, 3. gr. 17. gr. [Bensín sem verður notað eða hefur sannanlega verið notað á flugvélar skal undanþegið vörugjaldi.]1) [Sé bensín blandað með íblöndunarefni sem ekki er af jarðefnauppruna skal sá hluti blöndunnar sem ekki er af jarðefnauppruna undanþeginn vörugjaldi.]2) 1)L. 86/1999, 4. gr.2)L. 156/2010, 7. gr.
IV. kafli.Gjaldskyldir aðilar, gjaldstofn og gjalddagar. 18. gr. Gjaldskyldir samkvæmt lögum þessum eru:
1. Allir þeir sem flytja til landsins vörur sem eru gjaldskyldar samkvæmt lögum þessum hvort sem er til endursölu eða eigin nota. 2. Allir þeir sem framleiða hér á landi vörur sem eru gjaldskyldar samkvæmt lögum þessum, vinna að þeim eða setja þær saman hvort sem er til endursölu eða eigin nota. Þeir sem gjaldskyldir eru skv. 2. tölul. 1. mgr. skulu ótilkvaddir skila vörugjaldsskýrslu vegna ökutækis o.fl. til innheimtumanns ríkissjóðs í því umdæmi þar sem þeir eru heimilisfastir og greiða gjald það sem þeim ber að standa skil á. Gjaldstofn. 19. gr. Gjaldstofn vörugjalds samkvæmt lögum þessum af innfluttum vörum er tollverð þeirra eins og það er ákveðið skv. [V. kafla tollalaga, nr. 88/2005],1) að viðbættum gjöldum eins og þau eru ákveðin samkvæmt þeim lögum. 1)L. 147/2008, 40. gr. 20. gr. Gjaldstofn vörugjalds samkvæmt lögum þessum af gjaldskyldum vörum, sem framleiddar eru, unnið er að eða settar eru saman hér á landi, er verksmiðjuverð þeirra, þ.e. söluverð framleiðanda þeirra án vörugjalds til óháðs aðila, [sbr. 14. gr. tollalaga].1) Sé erfiðleikum bundið að ákvarða framleiðsluverð skal tollstjóri meta það. Skal við matið höfð hliðsjón af tollverði hliðstæðrar innfluttrar vöru eða framleiðsluverði hliðstæðrar vöru sem framleidd er hérlendis. 1)L. 147/2008, 41. gr. 21. gr. Gjaldstofn ökutækis, sem breytt hefur verið eða unnið hefur verið að, sbr. 8. og 9. gr., skal vera verðmæti ökutækis eftir breytingu eða aðvinnslu. Sé erfiðleikum bundið að finna verðmæti ökutækis skv. 1. mgr. skal tollstjóri áætla það, sbr. 20. gr. Gjalddagar. 22. gr. Vörugjald af innfluttum gjaldskyldum vörum skal innheimt við tollafgreiðslu. Vörugjald af innlendum framleiðsluvörum eða vörum, sem hlotið hafa aðvinnslu hér á landi, reiknast við sölu eða afhendingu gjaldskyldrar vöru frá framleiðanda eða heildsala og skiptir ekki máli hvenær eða með hvaða hætti greiðsla kaupanda fer fram. 23. gr. Þrátt fyrir ákvæði 22. gr. skal vörugjald af …1) skráningarskyldum ökutækjum greitt áður en skráning þeirra fer fram, en þó ekki síðar en [tólf]1) mánuðum eftir tollafgreiðslu. 1)L. 41/1995, 4. gr. 24. gr. Heimilt er að ákveða með reglugerð að innflytjendur fái gjaldfrest á greiðslu vörugjalds af eldsneyti er miðast við sölu birgða.
V. kafli.Álagning, innheimta, eftirlit o.fl. 25. gr. Gjöld, sem lögð eru á samkvæmt lögum þessum, mynda gjaldstofn til virðisaukaskatts. [Tollstjóri annast álagningu og innheimtu vörugjalds samkvæmt lögum þessum og hefur með höndum eftirlit.]1) 1)L. 147/2008, 42. gr. 26. gr. Heimilt er að stöðva ökutæki og færa það til skoðunar ef ástæða er til að ætla að brot hafi verið framið samkvæmt lögum þessum. Reynist vera um brot að ræða er heimilt að taka skráningarmerki af ökutækinu til varðveislu. 27. gr. Að því leyti sem eigi er kveðið á um gjaldskyldu, álagningu, úrskurð um flokkun til gjaldskyldu, samræmingu gjalda, eftirlit, innheimtu, vörslusviptingu, veð, uppboð, sektir, viðurlög, refsingar og aðrar framkvæmdir varðandi gjald skv. 1. gr. skulu gilda ákvæði tollalaga, [nr. 88/2005],1) og laga nr. 97/1987, um vörugjald, eftir því sem við getur átt, svo og reglugerða og annarra fyrirmæla settra samkvæmt þeim. Breyting á skráningarskyldu frá því sem nú er ákveðið samkvæmt umferðarlögum, nr. 50/1987, hefur ekki áhrif á gjaldskyldu samkvæmt lögum þessum. 1)L. 147/2008, 43. gr. 28. gr. Ráðherra getur með reglugerð1) sett nánari fyrirmæli varðandi framkvæmd laga þessara. 1)Rg. 255/1993, sbr. 511/1993, 55/1996, 257/1996, 355/1996, 474/1997, 725/1997, 339/1998, 360/1998, 43/1999, 356/1999 og 682/2000. Rg. 331/2000, sbr. 792/2000, 555/2001, 160/2002, 805/2002, 922/2002, 334/2004, 658/2004, 176/2005, 416/2007, 193/2008, 416/2008 og 257/2011. Rg. 327/2003, sbr. 252/2004 og 558/2010. Rg. 630/2008.
VI. kafli.Gildistaka, brottfallin lagaákvæði o.fl. 29. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1993. 30. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. I. Ákvæði laga þessara skulu gilda um allar vörur er ekki hafa verið teknar til tollafgreiðslu við gildistöku þeirra. II. [III. …]1) 1)L. 41/1995, brbákv. [IV. …]1) 1)L. 140/1997, brbákv. [V. …]1) 1)L. 83/1998, 8. gr. [VI. …]1) 1)L. 151/1998, 12. gr. [VII. [Vörugjald af bifreiðum sem eru gjaldskyldar skv. 3. gr. laganna og búnar eru vélum sem nýta …1) rafmagn að verulegu leyti í stað bensíns eða dísilolíu skal vera [240.000]2) kr. lægra en ella væri samkvæmt greininni. Heimild til lækkunar skv. 1. mgr. gildir til [31. desember 2010].3) Ráðherra getur sett nánari reglur um lækkun vörugjalds samkvæmt þessu ákvæði, svo sem um tæknilegan búnað bifreiðar, hvað teljist vera „að verulegu leyti“ skv. 1. mgr. og þau gögn sem leggja þarf fram með umsókn um lækkun vörugjalds á grundvelli þessa ákvæðis.]4)]5) 1)L. 77/2007, 1. gr.2)L. 72/2005, 4. gr.3)L. 130/2009, 3. gr.4)L. 29/2004, 1. gr. Breytingin tók gildi 26. maí 2004. Samkvæmt 2. gr. laganna skal endurgreiða vörugjald af þeim bifreiðum sem uppfylla skilyrði 1. gr. þeirra og tollafgreiddar eru milli 1. janúar 2004 og gildistöku laganna sé þess óskað. 5)L. 38/2000, 1. gr. [VIII. Þrátt fyrir ákvæði 14. gr. laganna skal greiða 8,95 kr. vörugjald af hverjum lítra af bensíni frá gildistöku laga þessara til loka júní 2002. Ákvæði 1. mgr. tekur einnig til tollafgreiddra en óseldra bensínbirgða sem til eru í landinu við gildistöku laga þessara.]1) 1)L. 22/2002, 1. gr. [IX. Ökutæki sem hafa í för með sér hverfandi mengun og eru knúin óhefðbundnum orkugjafa, svo sem rafhreyfli eða vetni, eru undanþegin gjaldskyldu samkvæmt lögum þessum. Undanþága þessi gildir til [31. desember 2010].1)]2) 1)L. 130/2009, 3. gr.2)L. 72/2005, 5. gr. [X. Bifreiðar sem gjaldskyldar eru skv. 3. gr. laganna og búnar eru vélum og öðrum búnaði sem miðast við að bifreið nýti metangas að verulegu leyti í stað bensíns eða dísilolíu skulu vera undanþegnar vörugjaldi samkvæmt lögum þessum til [31. desember 2010].1) Tilgreina skal í ökutækjaskrá ef vörugjald hefur verið fellt niður skv. 1. mgr. svo og stærð eldsneytisgeyma. Óheimilt er að breyta bifreiðum skv. 1. mgr. með brottnámi metangasbúnaðar eða með breytingum á eldsneytisgeymum. Ef brotið er gegn 3. mgr. skal skráður eigandi bifreiðar, sem notið hefur niðurfellingar vörugjalds skv. 1. mgr., greiða til tollstjóra fullt vörugjald skv. 3. gr. ásamt 50% álagi. Tollstjórar hafa eftirlit með framkvæmd þessa ákvæðis og geta gert þær athuganir sem taldar eru nauðsynlegar til að kanna hvort gerðar hafi verið breytingar á bifreið andstætt 3. mgr., þar á meðal að skoða eldsneytisgeyma og vél ökutækis. [Ráðherra]2) getur í reglugerð sett nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis, svo sem nánari skilgreiningu á því hvaða skilyrði vél bifreiðar og búnaður að öðru leyti þarf að uppfylla til þess að bifreið teljist nýta metangas að verulegu leyti í stað bensíns eða dísilolíu skv. 1. mgr., um gögn sem leggja þarf fram með umsókn um undanþágu á grundvelli þess ákvæðis og um eftirlitið.]3) 1)L. 130/2009, 3. gr.2)L. 126/2011, 173. gr.3)L. 77/2007, 2. gr. [XI. Heimilt er að endurgreiða vörugjald af áður skráðu vélknúnu ökutæki sem hefur verið afskráð og flutt úr landi enda sé ástand ökutækisins í samræmi við eðlilega notkun og aldur að mati tollstjóra. Fjárhæð endurgreiðslu skal miða við það vörugjald sem greitt var við innflutning ökutækisins. Sú fjárhæð skal lækka um 2% fyrir hvern byrjaðan mánuð fyrstu 12 mánuðina eftir nýskráningu ökutækisins og 1,5% fyrir hvern byrjaðan mánuð eftir það þar til 100% fyrningu er náð. Samanlögð endurgreiðsla vörugjalds samkvæmt ákvæði þessu og virðisaukaskatts samkvæmt bráðabirgðaákvæði XIII í lögum um virðisaukaskatt skal ekki vera hærri en 2.000.000 kr. fyrir hvert ökutæki. Tollstjóra er heimilt að innheimta skoðunargjald vegna skoðunar á notuðum ökutækjum sem flytja á úr landi skv. 1. mgr. Gjald þetta skal standa straum af launakostnaði tollstarfsmanna og aksturskostnaði vegna framkvæmdar skoðunarinnar. Heimild til endurgreiðslu vörugjalds skv. 1. mgr. gildir til og með 31. desember 2009. Tollstjórinn í Reykjavík annast endurgreiðslu. Ráðherra skal í reglugerð1) setja nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis, svo sem nánari skilyrði fyrir endurgreiðslu, um ástand ökutækja, um gögn sem leggja þarf fram með umsókn um endurgreiðslu og um eftirlit og kæruheimildir.]2) 1)Rg. 1144/2008. 2)L. 140/2008, 1. gr. [XII. Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. skal vörugjald í eftirfarandi gjaldbilum gilda fyrir ökutæki sem eru innflutt og tollafgreidd á árinu 2011 og falla í þau gjaldbil sem tilgreind eru í töflu:
Gjald í %
Gjaldbil
Skráð losun
Aðalflokkur
Undanþáguflokkur
CO2
skv. 5. gr.
G
181–200
36
12
H
201–225
44
16
I
226–250
48
20
J
yfir 250
52
24
Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. skal vörugjald í eftirfarandi gjaldbilum gilda fyrir ökutæki sem eru innflutt og tollafgreidd á árinu 2012 og falla í þau gjaldbil sem tilgreind eru í töflu:
Gjald í %
Gjaldbil
Skráð losun
Aðalflokkur
Undanþáguflokkur
CO2
skv. 5. gr.
G
181–200
41
14
H
201–225
50
18
I
226–250
54
23
J
yfir 250
59
27]1)
1)L. 156/2010, 8. gr. [XIII. Frá og með 1. janúar 2011 er tollstjóra heimilt að endurgreiða vörugjald af ökutækjum sem hefur verið breytt þannig að ökutækið nýtir metan í stað bensíns eða dísilolíu og hefur verið skráð sem slíkt hjá Umferðarstofu. Fjárhæð endurgreiðslu vörugjalds skv. 1. mgr. skal vera 20% af kostnaði við breytinguna samkvæmt reikningi breytingaverkstæðis en þó ekki hærri en 100.000 kr. Vörugjald skal því aðeins endurgreitt að ökutæki sé yngra en sex ára við breytingu, miðað við framleiðsluár, og útbúið að lágmarki 78 lítra metangeymi. Eigandi ökutækis skal sækja um endurgreiðslu vörugjalds skv. 1. mgr. til tollstjóra á eyðublaði sem tollstjóri útbýr. Með umsókninni skal fylgja staðfesting Umferðarstofu um að ökutæki hafi verið breytt til þess að nýta metan og að faggilt skoðunarstöð ökutækja hafi vottað breytinguna. Jafnframt skal fylgja með vottorð faggiltrar skoðunarstöðvar um að ökutæki sé útbúið að lágmarki 78 lítra metangeymi. Ef ökutæki, sem hlotið hefur endurgreiðslu, getur ekki nýtt metan sem eldsneyti vegna þess að breytingarbúnaður eða einhver hluti hans hefur verið fjarlægður eða gerður óvirkur innan tveggja ára frá því að vörugjald var endurgreitt skal eigandi ökutækis tilkynna tollstjóra og Umferðarstofu um að búnaður hafi verið fjarlægður eða gerður óvirkur og greiða upp endurgreiðsluna að fullu. Skylda til að tilkynna tollstjóra og Umferðarstofu um að búnaður hafi verið fjarlægður eða færður til að nota á annað ökutæki hvílir jafnframt á hverjum þeim sem annast slíkar breytingar fyrir einhvern annan. Vanræki aðili að tilkynna tollstjóra innan mánaðar um að breytingarbúnaður hafi verið fjarlægður eða gerður óvirkur á einhvern hátt á því tímabili sem tilgreint er í 4. mgr. skal eigandi ökutækis greiða upp endurgreiðsluna ásamt 50% álagi. Faggiltar skoðunarstofur ökutækja skulu kanna ástand og virkni metanbúnaðar við hverja reglubundna skoðun ökutækis. Heimild til endurgreiðslu vörugjalds skv. 1. mgr. gildir þangað til vörugjald hefur verið endurgreitt vegna breytinga á 1.000 ökutækjum. Eigendur ökutækja sem breytt hefur verið til þess að nýta metan í stað bensíns eða dísilolíu fyrir gildistöku þessa ákvæðis og hlotið hafa vottun frá faggiltri skoðunarstöð ökutækja samkvæmt reglum Umferðarstofu geta jafnframt sótt um endurgreiðslu vörugjalda. Um eftirlit og kæruheimildir skulu gilda ákvæði tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum, eftir því sem við getur átt.]1) 1)L. 165/2010, 59. gr.