Tóku gildi 1. janúar 2006.Breytt meðl. 80/2006 (tóku gildi 1. jan. 2007 nema 1.–4. gr. og 7.–12. gr. sem tóku gildi 30. júní 2006), l. 108/2006 (tóku gildi 1. nóv. 2006 skv. augl. C 1/2006), l. 146/2006 (tóku gildi 1. jan. 2007), l. 16/2007 (tóku gildi 3. mars 2007), l. 170/2007 (tóku gildi 29. des. 2007 nema 1. gr. sem tók gildi 1. febr. 2008), l. 34/2008 (tóku gildi 31. maí 2008 nema ákvæði til bráðabirgða sem tók gildi 8. maí 2008), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 130/2008 (tóku gildi 18. nóv. 2008), l. 147/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009), l. 167/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009), l. 17/2009 (tóku gildi 15. mars 2009, birt í Stjtíð. 19. mars 2009), l. 27/2009 (tóku gildi 1. apríl 2009), l. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010), l. 136/2009 (tóku gildi 1. jan. 2010), l. 14/2010 (tóku gildi 13. mars 2010), l. 78/2010 (tóku gildi 30. júní 2010), l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011), l. 165/2010 (tóku gildi og komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 69. gr.), l. 22/2011 (tóku gildi 15. mars 2011), l. 46/2011 (tóku gildi 18. maí 2011), l. 81/2011 (tóku gildi 29. júní 2011), l. 121/2011 (tóku gildi 1. nóv. 2011), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 127/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 18/2012 (tóku gildi 15. mars 2012), l. 42/2012 (tóku gildi 15. júní 2012 nema 3. gr. sem tók gildi 1. okt. 2012), l. 146/2012 (tóku gildi 1. jan. 2013 nema a- og d-liður 2. gr. sem taka gildi 1. sept. 2013 og c-liður 2. gr. og 34. gr. sem taka gildi 1. júlí 2013; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 35. gr.), l. 156/2012 (tóku gildi 1. mars 2013), l. 160/2012 (tóku gildi 3. jan. 2013), l. 16/2013 (tóku gildi 11. mars 2013), l. 21/2013 (tóku gildi 16. mars 2013) og l. 22/2013 (tóku gildi 16. mars 2013; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 9. gr.).
II. kafli.Tollsvæði ríkisins. 2. gr. Tollsvæði ríkisins er landið ásamt eyjum og útskerjum sem því tilheyra, svo og tólf mílna landhelgi umhverfis það eins og hún er afmörkuð skv. 1. gr. laga nr. 41/1979, um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn. Til tollsvæðis ríkisins telst enn fremur loftrými yfir fyrrgreindu land- og hafsvæði.
VI. kafli.Tollflokkun. 20. gr.Tollflokkun vöru. Inn- og útflytjendur skulu færa vöru til tollflokks í viðeigandi tollskjölum samkvæmt almennum reglum um túlkun tollskrárinnar í viðauka I við lög þessi. Leiki vafi á um tollflokkun vöru eða óski inn- eða útflytjandi eftir staðfestingu tollstjóra á tollflokkun vöru getur hann leitað eftir bindandi áliti tollstjóra á tollflokkun vörunnar, sbr. 21. gr. 21. gr.Bindandi álit um tollflokkun. Ef óskað er bindandi álits um tollflokkun vöru skal senda skriflega beiðni þar að lútandi til [tollstjóra].1) Ákvörðun [tollstjóra]1) um bindandi tollflokkun vöru er bindandi gagnvart fyrirspyrjanda og tollyfirvöldum [í sex ár frá birtingardegi],2) nema hún sé afturkölluð af [tollstjóra]1) eða henni breytt eftir kæru til ríkistollanefndar, sbr. 118. gr. Komi til afturköllunar ákvörðunar um bindandi tollflokkun vöru gildir ákvörðunin uns afturköllunin hefur verið tilkynnt álitsbeiðanda. [Tollstjóra]1) er ekki skylt að verða við beiðni skv. 1. mgr. ef hún reynist augljóslega vera tilefnislaus. Með beiðni um bindandi álit skulu fylgja þau gögn sem eru nauðsynleg til þess að unnt sé að ákveða tollflokkun vöru, svo sem teikning, mynd, vörulýsing eða bæklingur. Ef nauðsyn ber til að mati [tollstjóra]1) getur hann sett skilyrði um að sýnishorn af vöru sé lagt fram áður en tekin er ákvörðun um tollflokkun. [Tollstjóri]1) skal svara beiðni skriflega innan 30 daga frá því að hún berst. Í svari [tollstjóra]1) skal í meginatriðum koma fram á hvaða rökum niðurstaða er byggð. Telji [tollstjóri]1) að beiðni hafi ekki að geyma fullnægjandi upplýsingar eða henni fylgi ekki nauðsynleg gögn til þess að unnt sé að ákveða tollflokkun skal hann tilkynna viðkomandi hvaða upplýsingar eða gögn vanti. Þegar úr því hefur verið bætt skal [tollstjóri]1) svara beiðni innan 30 daga. 1)L. 147/2008, 2. gr.2)L. 42/2012, 2. gr.
VII. kafli.Skýrslugjafir. Aðflutningsskýrsla og önnur tollskjöl. 22. gr.Skilafrestur aðflutningsskjala. Innflytjandi skal láta tollstjóra í té aðflutningsskýrslu og önnur tollskjöl vegna innfluttrar vöru, sbr. 23. og 25. gr., áður en vara er afhent til notkunar innan lands eða sett í tollfrjálsa verslun eða tollfrjálsa forðageymslu. Tollskjöl skulu þó látin tollstjóra í té ekki síðar en sex mánuðum frá komudegi flutningsfars vöru til landsins nema vöru hafi verið ráðstafað í tollvörugeymslu eða á frísvæði. [Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að afhenda hraðsendingar til notkunar innan lands áður en tollskjöl eru látin tollstjóra í té. Ráðherra ákveður frest til að skila tollskjölum vegna hraðsendinga með reglugerð.1)]2) 1)Rg. 1100/2006. 2)L. 80/2006, 2. gr. 23. gr.Rafrænar aðflutningsskýrslur. Tollmiðlarar skulu senda …1) tollstjóra með skjalasendingum á milli tölva þær upplýsingar sem láta ber í té við tollafgreiðslu vara (SMT-tollafgreiðsla). Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. getur [tollstjóri]2) gefið fyrirmæli um að skriflegar aðflutningsskýrslur skuli látnar [honum]1) í té vegna vara sem þarfnast sérstaks eftirlits. Innflytjendur, sem stunda innflutning á vörum í atvinnuskyni, skulu senda …1) tollstjóra þær upplýsingar sem láta ber í té við tollafgreiðslu vara með skjalasendingum á milli tölva (SMT-tollafgreiðsla) eða í gegnum veftengingu við vefsetur tollyfirvalda (VEF-tollafgreiðsla). Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. skal ráðherra ákveða með reglugerð3) að þeir sem ná ekki tilteknum lágmarksfjölda innfluttra sendinga á ári geti látið tollyfirvöldum í té skriflegar aðflutningsskýrslur skv. 25. gr. Innflytjendum samkvæmt þessari grein er heimilt að veita tollmiðlara umboð til þess að koma fram fyrir þeirra hönd gagnvart tollyfirvöldum með skjalasendingum á milli tölva (SMT-tollafgreiðslu). [[Tollstjóri]2) ákveður form rammaskeytis fyrir aðflutningsskýrslu og hvernig tæknilegri útfærslu SMT- og VEF-tollafgreiðslu skuli háttað að öðru leyti.]4) …4) 1)L. 147/2008, 3. gr.2)L. 147/2008, 2. gr.3)Rg. 1100/2006. 4)L. 146/2006, 3. gr. 24. gr.Leyfi til SMT- og VEF-tollafgreiðslu. [SMT- og VEF-tollafgreiðsla er háð leyfi tollstjóra.]1) Leyfi til SMT- eða VEF-tollafgreiðslu er veitt þeim aðilum sem um getur í 1. og 3. mgr. 23. gr., enda uppfylli þeir eftirtalin skilyrði:
1. Þeir hafi tilskilin leyfi eða skráningu til viðkomandi atvinnustarfsemi, svo sem leyfi til þess að vera tollmiðlari skv. XI. kafla laga þessara, skráða verslun, sbr. lög nr. 28/1998, um verslunaratvinnu, iðnaðarleyfi, sbr. iðnaðarlög, nr. 42/1978, vinnsluleyfi, sbr. lög nr. 55/1998, um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, eða önnur leyfi sem krafist er. 2. Þeir hafi tilkynnt ríkisskattstjóra um atvinnustarfsemi sína og séu á fyrirtækjaskrá, sbr. lög nr. 17/2003, um fyrirtækjaskrá. Ef um einstaklinga er að ræða sem stunda atvinnurekstur skulu þeir að minnsta kosti hafa framkvæmt þann lágmarksfjölda tollafgreiðslna sem tilgreindur er í reglugerð, sbr. 4. mgr. 23. gr. 3. Þeir hafi tilkynnt [ríkisskattstjóra]2) um starfsemi sína og verið skráðir skv. 5. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, og fyrirmælum settum samkvæmt þeim. 4. Þeir séu ekki í vanskilum við ríkissjóð með greiðslu opinberra gjalda eða skatta. 5. [Tollstjóri]3) hafi samþykkt þann hugbúnað sem umsækjandi hyggst nota til samskipta við tollyfirvöld, nema þegar sótt er um VEF-tollafgreiðslu. 6. Þeir hafi á að skipa starfsliði með fullnægjandi þekkingu á lögum og reglum um tollmeðferð vara. 1)L. 147/2008, 4. gr.2)L. 136/2009, 106. gr.3)L. 147/2008, 2. gr. 25. gr.Skriflegar aðflutningsskýrslur. Aðrir en þeir sem um getur í 1. og 3. mgr. 23. gr., sbr. 4. mgr. sömu greinar, skulu afhenda …1) tollstjóra skriflegar aðflutningsskýrslur. Innflytjendum skv. 1. mgr. er heimilt að veita tollmiðlara umboð til þess að koma fram fyrir þeirra hönd gagnvart tollyfirvöldum með rafrænum skjalasendingum á milli tölva. [Tollstjóri]2) ákveður form skriflegra aðflutningsskýrslna. Innflytjendur geta sjálfir lagt til eyðublöð fyrir aðflutningsskýrslur, enda uppfylli þau skilyrði sem sett eru skv. 3. mgr. um form þeirra. 1)L. 147/2008, 5. gr.2)L. 147/2008, 2. gr. 26. gr.Einfaldaðar aðflutningsskýrslur. Ráðherra getur í reglugerð1) heimilað einfaldaðar skýrslugjafir vegna póstsendinga, smásendinga og vara sem ekki eru á farmskrá. Ráðherra getur jafnframt heimilað einfaldari skýrslugjafir vegna vara sem njóta tollfríðinda við innflutning skv. 4., 6. og 7. gr. [Tollstjóri]2) ákveður form aðflutningsskýrslna skv. 1. mgr. 1)Rg. 1100/2006. 2)L. 147/2008, 2. gr. 27. gr.Skýrslugjafir ferðamanna og farmanna. Ferðamenn og farmenn, sem koma til landsins frá útlöndum, skulu ótilkvaddir gera tollstjóra grein fyrir tollskyldum varningi sem þeir hafa meðferðis. Sama gildir um varning sem er háður sérstökum innflutningsskilyrðum eða óheimilt er að flytja til landsins. Ferðamenn og farmenn, sem koma til landsins frá útlöndum eða fara frá landinu til útlanda, skulu ótilkvaddir gera grein fyrir hærri fjárhæð en sem nemur [10.000 evrum],1) miðað við opinbert viðmiðunargengi eins og það er skráð hverju sinni, sem þeir hafa meðferðis í reiðufé [eða handhafabréfum, þ.m.t. ferðatékkum].1) Þar sem tollafgreiðsla ferðamanna fer fram er tollstjóra heimilt að hafa aðskilin tollafgreiðsluhlið, annars vegar fyrir þá sem hafa meðferðis tollskyldan varning eða varning sem háður er sérstökum innflutningsskilyrðum eða óheimilt er að flytja til landsins og hins vegar fyrir þá sem hafa engan slíkan varning meðferðis. Farþegar skulu þá sjálfir velja sér tollafgreiðsluhlið og teljast þeir með vali sínu gefa til kynna hvort þeir hafi meðferðis varning sem þeim ber að gera tollgæslu grein fyrir. [Sérhver farmaður skal ótilkvaddur gera tollgæslu skriflega grein fyrir öllum varningi sem hann hefur fengið erlendis eða í ferðinni, hvort sem varningurinn er tollskyldur eður ei.]1) Ráðherra getur með reglugerð2) sett nánari reglur um tollafgreiðslu samkvæmt þessari grein. 1)L. 167/2008, 3. gr.2)Rg. 630/2008. 28. gr.Fylgiskjöl með aðflutningsskýrslum. Eftirtalin skjöl skulu liggja til grundvallar aðflutningsskýrslu skv. 23. og 25. gr. eftir því sem við á. Þegar um SMT- eða VEF-tollafgreiðslu er að ræða skulu fylgigögn varðveitt með þeim hætti sem mælt er fyrir um í 29. gr. Viðeigandi fylgiskjöl skulu afhent tollstjóra í þeim tilvikum þegar aðflutningsskýrsla er skrifleg:
1. Vörureikningur: Frumrit eða samrit af vörureikningi yfir hina innfluttu vöru eða sendingu. Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. er tollstjóra heimilt að taka gildan pro forma reikning eða viðskiptareikning í stað frumrits eða samrits þegar verðmæti vöru er óverulegt eða hún er augljóslega ekki ætluð til sölu hér á landi, t.d. þegar um persónulega muni er að ræða. 2. Farmbréf og önnur staðfestingarskjöl: Farmbréf eða undirfarmbréf, reikningur fyrir flutningskostnað, reikningur fyrir umbúðakostnað, pökkunarlisti, niðurstaða efnagreiningar og önnur skjöl og gögn sem geta verið til staðfestingar þeim atriðum sem tilgreind eru í aðflutningsskýrslu og vörureikningi eða fela í sér upplýsingar um tegund vöru, samsetningu, magn og verð hennar. Krefjast má þess að farmbréf eða undirfarmbréf sé afhent í fleiri en einu eintaki og tollstjóra er heimilt að halda eftir einu eintaki eða fleiri eftir þörfum. Tollstjóra er heimilt að taka afrit af staðfestingarskjölum ef ástæða þykir til. 3. Tollverðsskýrsla: Tollverðsskýrsla í þeim tilvikum þegar það verð sem tilgreint er í vöru- eða sölureikningi er ekki viðskiptaverð vöru, sbr. 14. gr. Ráðherra getur með reglugerð eða öðrum fyrirmælum ákveðið að tollverðsskýrsla sé látin í té með aðflutningsskýrslu í öðrum tilvikum. Tollverðsskýrslu skal innflytjandi gera skriflega á þar til gert eyðublað. 4. Upprunasannanir: Frumrit viðeigandi upprunasönnunar í þeim tilvikum þegar sett er fram krafa um fríðindameðferð innfluttrar vöru með vísan til fríverslunarsamnings sem Ísland á aðild að. 5. Önnur fylgiskjöl: Önnur gögn sem eiga að liggja til grundvallar aðflutningsskýrslu samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum. …1) 1)L. 80/2006, 3. gr. 29. gr.Varðveisla aðflutningsskýrslna og fylgiskjala vegna rafrænnar tollafgreiðslu. Innflytjandi, sem er bókhaldsskyldur samkvæmt ákvæðum laga um bókhald, skal varðveita öll tollskjöl í samræmi við ákvæði laga um bókhald og fyrirmæli sett samkvæmt þeim. Þá skal innflytjandi, sem hefur leyfi til SMT-tollafgreiðslu, varðveita öll tölvutæk gögn er varða tollafgreiðslu í sex ár frá tollafgreiðsludegi. Hann skal halda fullkomna skrá eða gagnadagbók í réttri tímaröð og geyma óbreytt öll rammaskeyti sem hann sendir tollstjóra eða tekur á móti frá tollstjóra. Þegar gagnadagbók er haldin á tölvutæku formi skal á auðveldan hátt vera unnt að nálgast rammaskeyti og endurmynda þau og prenta á læsilegan hátt ef þess er óskað. Innflytjandi, sem hefur leyfi til VEF-tollafgreiðslu, skal varðveita útprentun af tollskýrslu og rafrænni tilkynningu tollstjóra um tollafgreiðslu og skuldfærslu aðflutningsgjalda. Tollmiðlari skal varðveita öll tölvutæk gögn er varða tollafgreiðslu með þeim hætti sem mælt er fyrir um í 1. mgr. Tollmiðlari skal að auki varðveita afrit af viðeigandi skriflegum gögnum, sbr. 28. gr., sem liggja til grundvallar rafrænni aðflutningsskýrslu í sex ár frá tollafgreiðsludegi. Tollstjóri varðveitir öll tollskjöl vegna tollafgreiðslu sendinga sem aðilar, sem ekki eru bókhaldsskyldir, flytja til landsins. 30. gr.Upplýsingaskylda. Innflytjandi skal samkvæmt ákvörðun tollstjóra leggja fram eða veita aðgang að bókhaldi sínu og bókhaldsgögnum, bréfum, samningum og öðrum gögnum er varða innflutning vöru eða sendingar ef nauðsynlegt þykir til þess að unnt sé að ganga úr skugga um hvort verð eða önnur atriði í aðflutningsskýrslu, vörureikningum eða staðfestingargögnum séu eða hafi verið rétt tilgreind. Tollstjóri hefur aðgang að framangreindum gögnum og aðgang að starfsstöðvum tollskyldra aðila og birgðageymslum og heimild til að taka skýrslur af hverjum þeim sem ætla má að geti gefið upplýsingar er máli skipta. Viðskiptabönkum, sparisjóðum, greiðslukortafyrirtækjum og öðrum sem annast gjaldeyrisviðskipti er skylt að láta tollyfirvöldum í té allar nauðsynlegar upplýsingar og skýrslur sem þau óska eftir og unnt er að láta þeim í té. Öllum öðrum aðilum, bæði tollskyldum og öðrum, er skylt að láta tollstjóra í té ókeypis og í því formi sem óskað er allar nauðsynlegar upplýsingar og gögn, til nota við almennt tolleftirlit og áhættugreiningu, er hann fer fram á og snerta innflutning vöru eða sendingar sem og flutning farþega til og frá landinu. Í því sambandi skiptir ekki máli hvort upplýsingarnar varða þann aðila sem beiðninni er beint til eða aðra aðila sem hann getur veitt upplýsingar um. 31. gr.Reglugerðarheimild. Ráðherra getur með reglugerð1) sett almenn skilyrði sem innflytjendur og aðrir þurfa að uppfylla vegna skýrslugjafar samkvæmt þessum kafla. Þar skal m.a. kveðið á um skilyrði fyrir leyfum til SMT- og VEF-tollafgreiðslu, tryggingar fyrir aðflutningsgjöldum á greiðslufresti, uppgjörstímabil, gjalddaga og skil aðflutningsgjalda, varðveislu gagna sem snerta tollmeðferð og innflutning vara, endurskoðun aðflutningsgjalda, tolleftirlit og önnur atriði eftir því sem nauðsyn ber til. 1)Rg. 1100/2006, sbr. 982/2012.
VIII. kafli.Ábyrgð á upplýsingum sem gefnar eru með aðflutningsskýrslu og öðrum tollskjölum. 32. gr.Ábyrgð innflytjanda. Innflytjandi, sem sendir tollstjóra aðflutningsskýrslu um vöru með rammaskeyti um gagnaflutningsnet vegna SMT- eða VEF-tollafgreiðslu, ber ábyrgð á því að upplýsingar, sem þar eru veittar, séu réttar. Enn fremur ber hann ábyrgð á að fram komi allar þær upplýsingar sem eiga að koma fram vegna tollafgreiðslunnar og að þær séu byggðar á viðeigandi fylgiskjölum sem eiga að liggja til grundvallar aðflutningsskýrslu. Sá sem undirritar og lætur tollstjóra í té skriflega aðflutningsskýrslu ásamt fylgiskjölum ber ábyrgð á því að þær upplýsingar sem þar koma fram séu réttar. Enn fremur ber hann ábyrgð á að fram komi allar þær upplýsingar sem eiga að koma fram vegna tollafgreiðslunnar. 33. gr.Ábyrgð tollmiðlara. Tollmiðlari, sem hefur sent aðflutningsskýrslu til tollstjóra fyrir hönd innflytjanda, ber ábyrgð á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum hafi hann vitað eða mátt vita að upplýsingar innflytjanda væru rangar eða ófullnægjandi. Tollmiðlara er skylt að fá í hendur öll viðeigandi fylgiskjöl skv. 28. gr. áður en hann sendir tollstjóra rammaskeyti vegna SMT-tollafgreiðslu fyrir hönd innflytjanda. Tollmiðlari skal að lokinni tollafgreiðslu vöru afhenda bókhaldsskyldum innflytjanda, sbr. 1. mgr. 29. gr., eða tollstjóra í þeim tilvikum þegar innflytjandi er ekki bókhaldsskyldur, sbr. 3. mgr. 29. gr., öll skrifleg gögn skv. 28. gr. Tollmiðlara ber skylda til þess að leggja sjálfstætt mat á hvort þau fylgiskjöl sem umbjóðandi hans leggur fram til grundvallar aðflutningsskýrslu fullnægja ákvæðum laga þessara og stjórnvaldsfyrirmæla. Telji hann svo ekki vera skal hann kalla eftir þeim gögnum sem á vantar eða nýjum gögnum í stað þeirra sem kunna að vera ófullnægjandi. Hann skal því aðeins senda aðflutningsskýrslu til tollstjóra með rammaskeyti í þeim tilvikum þegar fylgiskjöl, sem liggja til grundvallar aðflutningsskýrslu, uppfylla skilyrði laga þessara með ótvíræðum hætti.
IX. kafli.Tollmeðferð vöru. 34. gr.Upphaf tollmeðferðar. Vara telst tekin til tollmeðferðar þegar eitthvert eftirtalinna tilvika á við:
1. Tollstjóri hefur tekið við aðflutningsskýrslu og öðrum tollskjölum, sem skulu látin í té vegna tollmeðferðar vöru, enda fullnægi þau að öllu leyti skilyrðum laga þessara til þess að unnt sé að heimila afhendingu vöru þegar í stað. Rafræn aðflutningsskýrsla, sem send er við SMT- eða VEF-tollafgreiðslu, telst móttekin hjá tollstjóra við skráningu skýrslunnar í tölvukerfi tollyfirvalda. 2. Tollstjóri hefur heimilað afhendingu vöru eða sendingar án eða gegn tryggingu. 3. Tollstjóri hefur tilkynnt innflytjanda að vara eða sending verði seld nauðungarsölu eða gert ráðstafanir til þess að selja vöru nauðungarsölu ef ekki næst til innflytjanda til lúkningar aðflutningsgjöldum, sbr. 128. og 129. gr. 35. gr.Frestun ákvörðunar um tollverð. [Taka skal í einu lagi til tollmeðferðar vörur sem skráðar eru í einu sendingarnúmeri, nema annað leiði af ákvæðum laga þessara. Ráðherra getur með reglugerð heimilað skiptingu sendinga til tollmeðferðar þegar aðstæður þykja mæla með því að slíkt sé heimilt og bundið heimildina þeim skilyrðum sem hann telur nauðsynleg til þess að tryggja að skiptingin hafi ekki áhrif á fjárhæð aðflutningsgjalda sem greiða ber af viðkomandi vörum.]1) 1)L. 146/2006, 4. gr. 36. gr.[Bráðabirgðatollafgreiðslur og hraðsendingar.]1) Nú gerir innflytjandi vöru það sennilegt að hann hafi ekki fengið þau gögn sem 28. gr. tekur til, eða þau eru ekki fullnægjandi, og má þá tollstjóri veita heimild til afhendingar vöru gegn því að hann greiði allan kostnað af tollskoðun og setji fjártryggingu fyrir greiðslu aðflutningsgjalda og afhendi eða leiðrétti gögn, sem misfellur eru á, innan hæfilegs tíma sem tollstjóri tiltekur. Við ákvörðun tryggingar getur tollstjóri lagt allt að 25% álag á áætluð aðflutningsgjöld. Ef vanefndir verða á greiðslu aðflutningsgjalda má tollstjóri ákveða gjöldin og taka fjártryggingu upp í þau. [Bráðabirgðatollafgreiðsla gegn fjártryggingu, sbr. 1. mgr., er enn fremur heimil þegar nauðsynlegt reynist að fresta lokaákvörðun um tollverð vöru skv. 14.–17. gr. eða um önnur atriði sem lög þessi taka til, enda þyki að mati tollstjóra ekkert því til fyrirstöðu að innflytjandi leysi vöruna til sín.]1) [[Tollmiðlara er heimilt að afhenda hraðsendingu til notkunar innan lands án greiðslu aðflutningsgjalda, enda láti hann tollstjóra tímanlega í té með rafrænum hætti upplýsingar um nöfn og kennitölur sendanda og innflytjanda auk upplýsinga um verðmæti, tegund og þyngd sendingar og setji tryggingu fyrir greiðslu aðflutningsgjalda.]2) Ráðherra getur heimilað að trygging taki mið af þeim aðflutningsgjöldum sem ætla má að tollmiðlari verði ábyrgur fyrir vegna hraðsendingaþjónustu, í stað þess að trygging sé sett fyrir hverja sendingu.]3) [Ráðherra setur nánari reglur4) um bráðabirgðatollafgreiðslur og hraðsendingar samkvæmt þessari grein.]3) 1)L. 146/2006, 5. gr.2)L. 42/2012, 3. gr.3)L. 80/2006, 4. gr.4)Rg. 1100/2006. 37. gr.Neyðarleyfi. Heimila má farmflytjendum eða öðrum aðilum, sem geyma ótollafgreiddar vörur, að afhenda á eigin ábyrgð vörusendingar, enda sé afhending þeirra brýn. Handhafi neyðarleyfis er ábyrgur fyrir greiðslu aðflutningsgjalda vegna vörusendingar ef innflytjandi stendur ekki sjálfur í skilum. Ráðherra setur nánari reglur um útgáfu neyðarleyfa samkvæmt þessari grein.
XII. kafli.För í utanlandsferðum, skýrslugjafir farmflytjenda, ferming, afferming o.fl. 51. gr.Tilkynning um komu og brottför fara í utanlandsferðum. Stjórnanda fars ber að tilkynna tollstjóra komu fars inn á tollsvæði ríkisins og brottför með hæfilegum fyrirvara. Flugumferðarstjórn skal veita tollstjóra upplýsingar um komu og brottför flugfara í utanlandsferðum svo fljótt sem við verður komið. Landhelgisgæslan skal veita tollstjóra upplýsingar um komu og brottför skipa í utanlandsferðum svo fljótt sem við verður komið. Starfsmenn hafna og skipaðir leiðsögumenn svo og starfsmenn flugvalla skulu veita tollstjóra allar nauðsynlegar upplýsingar um ferðir skipa og flugfara. Ráðherra getur sett nánari reglur um tilkynningar samkvæmt þessari grein. 52. gr.Fyrsta og síðasta viðkoma í tollhöfn. Fari er skylt að hafa fyrstu og síðustu viðkomu hér á landi í tollhöfn. Skal ferming eða afferming fars fara þar fram og mönnum hleypt þar frá borði eða teknir um borð. 53. gr.Undantekningar. Þegar sérstaklega stendur á getur tollstjóri veitt leyfi til þess að far hafi fyrstu eða síðustu viðkomu hér á landi utan tollhafnar. Þeim sem slíkt leyfi fær er skylt að hlíta þeim skilyrðum sem tollstjóri setur fyrir undanþágunni, m.a. varðandi fermingu og affermingu fars, og greiða allan kostnað sem af henni leiðir. Fari, sem statt er í neyð eða þarf að leita hafnar vegna veikinda eða slyss áhafnar eða farþega, er ekki skylt að hafa fyrstu viðkomu í tollhöfn hér á landi en stjórnandi farsins skal tilkynna tollstjóra komu fars svo fljótt sem verða má og ástæður þess að leitað var hafnar í skyndi. Fiskiskipi sem siglir með afla til útlanda beint af veiðum er ekki skylt að hafa viðkomu í tollhöfn við upphaf ferðar. Skipstjóra er skylt að gefa tollstjóra upplýsingar, með hæfilegum fyrirvara, um fyrirhugaða siglingu með afla til útlanda. 54. gr.Afgreiðslustaður fars. Óheimilt er að leggja aðkomuskipi að bryggju eða öðru hafnarmannvirki fyrr en að fengnu leyfi tollstjóra sem einnig getur ákveðið í samráði við hafnaryfirvöld og skipstjóra hvar í höfn skipið skuli leggjast. Flugvélar skulu afgreiddar þar á flugvelli sem tollstjóri ákveður í samráði við flugvallarstjóra. 55. gr.Fyrirmæli um að skip megi eingöngu hafast við í tollhöfnum. Tollstjóra er heimilt, ef ástæða þykir til, að mæla svo fyrir að skip megi ekki liggja eða hafast við innan tollsvæðis ríkisins nema í tollhöfnum. 56. gr.Skylda stjórnanda fars til að aðstoða tollverði. Stjórnanda fars ber að veita tollstjóra allar upplýsingar sem þörf er á um farið, farm þess og farþega. Hann skal vísa á alla innganga í farmrými svo og geymslur og aðra staði þar sem geyma má vörur og honum er eða ætti að vera kunnugt um. Ef tollvörður óskar að komast um borð eða frá borði er stjórnanda fars skylt að veita til þess nauðsynlega aðstoð. 57. gr.Meðferð forða. Aldrei má gefa eða selja í land af birgðum eða forða fars nema aðflutningsgjöld séu greidd og öðrum lagafyrirmælum fullnægt um innflutning. Stjórnandi fars sem er í millilandaferðum skal við komu inn á tollsvæði ríkisins hafa í sinni vörslu og læsa inni forða og birgðir sem eru umfram hæfilegan forða sem heimilt er að hafa til frjálsra afnota í farinu. Á sama hátt skal farið með tollskyldan varning áhafnar sem ekki á að flytja í land og tollafgreiða. Stjórnandi fars ber ábyrgð á því að allt fari undir lás sem þar skal vera og ekkert hverfi undan lás. Verði far á leið til útlanda að snúa við til landsins ber stjórnanda þess, ef innsigli skv. 164. gr. hafa verið rofin eða ótollafgreiddur forði tekinn í notkun, að gæta þess að hvorki farþegar né áhöfn hverfi brott frá farinu eða af afgreiðslustað fyrr en tollstjóri hefur gefið leyfi til þess. Stjórnandi fars skal gera skrá yfir vörur skv. 1. mgr. við komu fars inn á tollsvæði ríkisins. Stjórnandi fars skal afhenda tollstjóra skrána við komu til landsins. Tollstjóra er heimilt að undanþiggja skemmtiferðaskip, sem koma hingað til lands, ákvæðum 2. mgr. og 4. mgr. 58. gr.Farmskrá. Allar vörur, sem far flytur frá útlöndum eða til útlanda, skulu færðar á farmskrá. Þó er ekki áskilið að upplýsingar um vörur í forða fars og farangur farþega og áhafnar séu skráðar á farmskrá. Óheimilt er að flytja úr fari ótollafgreidda vöru sem ekki er á farmskrá, nema henni sé samtímis framvísað við tollgæslu og leyfi fengið fyrir flutningi hennar úr farinu. Tilgreina skal í farmskrá tollhöfn sem er ákvörðunarstaður vöru. Ráðherra skal með reglugerð1) setja nánari reglur um farmskrá samkvæmt þessari grein, m.a. þær vörur sem færðar skulu í skrána, breytingar og leiðréttingar skrárinnar og ábyrgð á þeim upplýsingum sem þar koma fram. 1)Rg. 1100/2006. 59. gr.Hættuleg efni. Ráðherra er heimilt að mæla svo fyrir í reglugerð að tilteknar hættulegar vörur, svo sem eiturefni og aðrar slíkar vörur, skuli tollafgreiddar á einum stað fyrir allt landið. 60. gr.Geymsla bannvöru. Ef vara er flutt til landsins andstætt fyrirmælum laga eða stjórnvaldsfyrirmæla, sem banna innflutning hennar, skal tollstjóri mæla fyrir um hvar og með hvaða hætti hún skuli geymd þar til ákvörðun hefur verið tekin um frekari meðhöndlun hennar af þar til bærum stjórnvöldum, svo sem um förgun eða flutning úr landi. 61. gr.Aðkomuafgreiðsla fars. Afferming fars er háð leyfi tollstjóra. [Slíkt leyfi skal ekki veitt fyrr en aðkomuskýrsla, farmskrá og önnur þau skjöl sem lög og reglur áskilja hafa verið látin tollstjóra í té.]1) Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er afferming fars heimil án leyfis tollstjóra ef neyð steðjar að og afferming er nauðsynleg til þess að takmarka tjón á farmi fars. Stjórnanda fars ber að tilkynna tollstjóra um affermingu strax og auðið er og tilgreina ástæður hennar. 1)L. 80/2006, 7. gr. 62. gr.Skrá yfir affermdar vörur. Að lokinni affermingu í hverri höfn er stjórnanda fars skylt að láta tollstjóra í té nákvæma skrá yfir vörur sem affermdar hafa verið í höfninni. Sé talning ekki framkvæmd getur tollstjóri látið gera hana á kostnað farmflytjanda. 63. gr.Skrá um vöntun og skemmdir á vörum. Að lokinni affermingu í hverri höfn ber stjórnanda fars að afhenda tollstjóra skrá yfir vöntun og skemmdir á vörum sem komið hafa í ljós við afferminguna. Tollstjóri getur látið fara fram rannsókn á vöntun og skemmdum vegna eftirlits með vörunni eða ákvörðun gjalda af henni. 64. gr.[Ferming fars.]1) Ferming fars er háð leyfi tollstjóra að undanskildum afla sem tekinn er um borð í skip á veiðisvæðum. Sé vara flutt í far án samþykkis tollstjóra ber stjórnanda fars að afferma það aftur ef tollstjóri telur það nauðsynlegt vegna eftirlits með vörunni. 1)L. 80/2006, 8. gr. 65. gr.Far frá innanlandshöfn. Tollstjóri getur ákveðið að með far sem kemur frá innanlandshöfnum eða af veiðum skuli farið sem aðkomufar að því er tolleftirlit varðar. 66. gr.Aðstaða til tolleftirlits í flugstöð eða höfn. Eigendum eða umráðamönnum fara, sem annast reglubundnar ferðir milli landa, er skylt að leggja tollstjóra til án endurgjalds nægilegt húsrými eða aðra aðstöðu til tolleftirlits með farþegum, áhöfnum og vörum, sé þess krafist. 67. gr.Úrræði tollstjóra sinni stjórnandi fars ekki skyldum sínum. Hafi farmskrá og önnur gögn samkvæmt ákvæðum þessa kafla ekki verið afhent tollstjóra er honum heimilt að taka í sína vörslu þjóðernisskírteini og mælibréf skips eða loftferðaskírteini flugfars svo og áhafnaskrá og önnur viðeigandi skjöl. Tollstjóra ber að skila stjórnanda fars skjölum þessum þegar viðeigandi gögn hafa verið afhent tollstjóra. 68. gr.Herskip og herflugvélar. Ákvæði þessa kafla taka ekki til erlendra herskipa og herflugvéla sem leita hér hafnar. Stjórnendum þeirra er þó skylt að gera tollstjóra fullnægjandi grein fyrir að um herfar sé að ræða og má krefjast þess að slík greinargerð sé gefin skriflega. [För skv. 1. mgr. eru undanþegin innsiglun vista, birgða og annars varnings um borð.]1) Áður en tollskyldar vörur eru fluttar úr fari sem um ræðir í 1. mgr. ber stjórnanda fars að afhenda tollstjóra skrá yfir vörurnar. Tollstjóri hefur sömu heimildir til hvers konar eftirlits með þeim vörum og öðrum varningi sem fluttur er til landsins. 1)L. 170/2007, 2. gr.
XIII. kafli.Meðferð og varsla ótollafgreiddrar vöru. 69. gr.Geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur. Heimilt er að geyma ótollafgreiddar vörur á eftirtöldum geymslusvæðum:
1. Afgreiðslugeymslum farmflytjenda og viðurkenndra tollmiðlara, sbr. 88.–90. gr. 2. Tollvörugeymslum, sbr. 91.–95. gr. 3. Tollfrjálsum forðageymslum, sbr. 96.–100. gr. 4. Tollfrjálsum verslunum og tollfrjálsum birgðageymslum þeirra, sbr. 101.–104. gr. 5. Frísvæði, sbr. 105.–108. gr. [6. Umflutningsgeymslum, sbr. 108. gr. a – 108. gr. d.]1) Óheimilt er að geyma ótollafgreiddar vörur utan þeirra geymslusvæða sem nefnd eru í 1. mgr. Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. er tollstjóra heimilt, þegar sérstakar ástæður mæla með því, að veita leyfi til geymslu ótollafgreiddrar vöru utan geymslusvæða skv. 1. mgr. Leyfi skal veitt með skriflegum eða rafrænum hætti. Tollstjóri getur bundið leyfi þeim skilyrðum sem hann telur nauðsynleg. Leyfishafi skal greiða allan kostnað sem hlýst af nauðsynlegu eftirliti með vörunni. Tollstjóra er heimilt að taka ótollafgreiddar vörur í sínar vörslur á kostnað farmflytjanda eða innflytjanda til geymslu eða tollafgreiðslu ef nauðsyn krefur. 1)L. 170/2007, 3. gr. 70. gr.Geymslutími. Vörur, sem settar hafa verið í afgreiðslugeymslu skv. 1. tölul. 1. mgr. 69. gr., skal tollafgreiða innan sex mánaða frá komu flutningsfars vöru til landsins nema tollstjóri hafi veitt leyfi til flutnings þeirra í tollvörugeymslu, tollfrjálsa forðageymslu, tollfrjálsa verslun eða á frísvæði. Ef sérstaklega stendur á getur tollstjóri heimilað, að fengnu samþykki leyfishafa, að vörur skuli tollafgreiða innan 18 mánaða frá komu flutningsfars til landsins. Heimilt er að geyma ótollafgreiddar vörur á geymslusvæðum skv. [2.–6. tölul.]1) 1. mgr. 69. gr. án tímatakmarkana. 1)L. 170/2007, 4. gr. 71. gr.Reglugerðarheimild. Ráðherra setur með reglugerð1) nánari ákvæði um meðferð og vörslu ótollafgreiddra vara samkvæmt þessum kafla. 1)Rg. 1100/2006. 72. gr.Athafnasvæði og húsnæði til geymslu ótollafgreiddra vara. Geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur skal vera afmarkað rými, hús eða afgirt svæði eftir eðli vörunnar og undir lás leyfishafa. Skal það vera að öllu leyti með þeim hætti að það henti til tryggrar vörslu þeirra vara sem þar eiga að vera. Tollstjóri skal viðurkenna athafnasvæði og húsnæði sem ætlað er til geymslu ótollafgreiddra vara og eru breytingar á því óheimilar nema að fengnu leyfi hans. Leyfishafi geymslusvæðis ábyrgist að geymslusvæðið uppfylli á hverjum tíma þau skilyrði sem sett eru um ásigkomulag þess. Ef geymslusvæði er ekki í fullkomnu ásigkomulagi og leyfishafi bætir ekki úr því innan þess frests sem tollstjóri tiltekur getur tollstjóri látið bæta úr ágöllum á kostnað leyfishafa eða svipt hann rétti til þess að nota húsnæðið eða svæðið. Meðferð vara á geymslusvæðum. 73. gr. Einkaneysla, afnot eða sýning á vörum sem fluttar hafa verið á geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur er óheimil nema annað sé tekið fram í lögum þessum. Iðnaður og aðvinnsla á vörum er óheimil á geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur nema annað sé tekið fram í lögum þessum. 74. gr.Hættuleg efni. Tollstjóri getur sett sérstök skilyrði fyrir geymslu hættulegra efna á geymslusvæðum, t.d. um eftirlit, geymslustað eða meðferð þeirra að öðru leyti, eða bannað geymslu þeirra á geymslusvæðum ef nauðsyn ber til. Ábyrgð vörsluhafa. 75. gr. Farmflytjendur og leyfishafar geymslusvæða skv. 69. gr. bera ábyrgð á að geymsla og flutningur ótollafgreiddrar vöru sé í samræmi við ákvæði þessa kafla. 76. gr.Skráning vöru inn á geymslusvæði. Við flutning vara á geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur skv. [2.–6. tölul.]1) 1. mgr. 69. gr. skal leyfishafi skrá þær á nafn innflytjanda sendingar og tilgreina heiti og tegund vara í sendingu ásamt magni, þyngd og verðmæti þeirra. Leyfishafi skal jafnframt skrá númer sendingar. Aðflutningsgjöld af sendingu miðast við það vörumagn sem tilgreint er samkvæmt ákvæðum 1. mgr., sbr. þó ákvæði 87. gr. um umframmagn vöru. 1)L. 170/2007, 4. gr. 77. gr.Afhending vöru út af geymslusvæði til notkunar innan lands. Þeim sem hafa ótollafgreiddar vörur í sinni vörslu til flutnings eða geymslu er óheimilt að láta þær af hendi án leyfis tollstjóra. Ákvæði þetta gildir hvorki um vörur í tollfrjálsum forðageymslum né um vörur sem seldar eru úr tollfrjálsum verslunum. 78. gr.Ábyrgð á greiðslu aðflutningsgjalda. Farmflytjendur, leyfishafar geymslusvæða skv. 69. gr. og eftir atvikum umboðsmenn erlendra aðila, sem flytja vörur hingað til lands, ábyrgjast greiðslu á aðflutningsgjöldum af vörum sem þeir hafa afhent eða tekið í notkun án þess að gætt hafi verið ákvæða laga þessara. Um áætlun aðflutningsgjalda í þeim tilvikum sem um ræðir í 1. mgr. fer eftir ákvæðum 115. gr. Gera má fjárnám í eignum þeirra sem bera ábyrgð á greiðslu gjalda skv. 1. mgr. fyrir aðflutningsgjöldum, dráttarvöxtum og kostnaði án undangengins dóms eða dómsáttar. 79. gr.Afhending vöru úr fari eða afgreiðslugeymslu. Áður en vara er flutt úr fari eða afgreiðslugeymslu í tollvörugeymslu, tollfrjálsa forðageymslu, tollfrjálsa verslun, [umflutningsgeymslu eða á frísvæði, sbr. 2.–6. tölul. 1. mgr. 69. gr],1) skal leyfishafi tilkynna tollstjóra …2) um fyrirhugaðan flutning. Sama gildir þegar vara er afhent úr vörslu farmflytjanda í afgreiðslugeymslu tollmiðlara eða annars farmflytjanda. Tollstjóri skal lýsa því yfir hvort flutningur sé heimill eða hvort varan skuli kyrrsett til frekari skoðunar án tafar en þó eigi síðar en 24 klukkustundum eftir að tilkynning berst honum með sannanlegum hætti. Ákvæði 1. mgr. gildir ekki um vörur sem fluttar eru í tollfrjálsa forðageymslu úr birgðaforða fars. 1)L. 170/2007, 5. gr.2)L. 147/2008, 13. gr. 80. gr.Flutningur ótollafgreiddrar vöru milli geymslusvæða. Heimilt er að flytja ótollafgreiddar vörur á milli geymslusvæða skv. 2.–5. tölul. 1. mgr. 69. gr. án sérstaks leyfis tollstjóra. Vörsluhafi skal tilkynna tollstjóra um flutning vöru áður en flutningur á sér stað. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er óheimilt að flytja vöru úr tollfrjálsri forðageymslu eða tollfrjálsri verslun á önnur geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur nema að fengnu sérstöku leyfi tollstjóra. 81. gr.Yfirfærsla ábyrgðar vörsluhafa. Flutningur ótollafgreiddrar vöru á milli geymslusvæða fyrir ótollafgreiddar vörur …1) hefur í för með sér yfirfærslu ábyrgðar frá einum vörsluhafa til annars þegar leyfishafi, sem tekur við vöru, staðfestir móttöku hennar. [Ráðherra getur með reglugerð sett nánari ákvæði um flutning ótollafgreiddrar vöru á milli geymslusvæða. Hann getur m.a. kveðið á um með hvaða hætti skuli færa sönnur á yfirfærslu vörsluábyrgðar skv. 1. mgr.]1) 1)L. 147/2008, 14. gr. 82. gr. …1) 1)L. 147/2008, 15. gr. 83. gr. …1) 1)L. 147/2008, 15. gr. Vöntun og umframbirgðir. 84. gr.Vörutalning. Tollstjóri getur hvenær sem er gert vörutalningu á geymslusvæðum. Leyfishafi geymslusvæðis skal gæta þess að meðferð og varsla vara á geymslusvæði sé jafnan með þeim hætti að aðgengilegt sé að framkvæma þar vörutalningu. Er hann skyldur til að gefa tollstjóra hverjar þær upplýsingar sem óskað er eftir um vörur á geymslusvæðinu og veita hvers konar aðstoð við eftirlitsstörf tollstjóra. Leyfishafi skal hafa ábyrgðarmann viðstaddan vörutalningu. 85. gr.Sýnileg vöntun. Tollstjóri skal lækka, fella niður eða endurgreiða toll ef fram kemur sýnileg vöntun í vörusendingu, í heild eða að hluta, við affermingu fars. Vöruvöntun telst sýnileg komi vörusending ekki fram við affermingu eða ef ljóst er af ytri umbúðum að um vöntun er að ræða. Ráðherra skal með reglugerð1) kveða nánar á um skilyrði niðurfellingar, lækkunar eða endurgreiðslu tolls skv. 1. mgr. Hann getur m.a. kveðið á um með hvaða hætti skuli færa sönnur á vöntun í vörusendingu og fresti til þess að tilkynna tollstjóra um vöntun í vörusendingu. 1)Rg. 630/2008. 86. gr.Leynd vöntun. Komi fram vöntun í vörusendingu, sem ekki var sýnileg við affermingu fars, í heild eða að hluta, sem sett er á geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur skv. 1. mgr. 69. gr. eða geymd er samkvæmt ákvæðum 3. mgr. 69. gr., er leyfishafa skylt að greiða toll og önnur aðflutningsgjöld af því vörumagni sem vantar miðað við skráningu skv. 76. gr., að viðbættu 20% álagi á toll og önnur aðflutningsgjöld, nema leyfishafi geti fært fullnægjandi sannanir fyrir því að vöntunin sé komin til áður en sendingin var flutt inn á tollsvæði ríkisins. Ráðherra skal með reglugerð1) kveða nánar á um skilyrði niðurfellingar, lækkunar eða endurgreiðslu tolls skv. 1. mgr. Hann getur m.a. kveðið á um með hvaða hætti skal færa sönnur á vöntun í vörusendingu og fresti til þess að tilkynna tollstjóra um vöntun í vörusendingu. 1)Rg. 630/2008. 87. gr.Umframbirgðir. Leyfishafi geymslusvæðis skal skrá allar umframbirgðir á geymslusvæði samkvæmt ákvæði 76. gr. um leið og hann verður þeirra var. Leyfishafi skal tilkynna tollstjóra um allar skráningar samkvæmt þessari grein. Komi fram, við vörutalningu tollstjóra á geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur, vörumagn umfram það magn sem skráð er inn á hlutaðeigandi geymslusvæði skv. 76. gr. er leyfishafa geymslusvæðis skylt að greiða toll og önnur aðflutningsgjöld af því vörumagni þegar þess verður vart. [Afgreiðslugeymslur.]1) 1)L. 170/2007, 9. gr. 88. gr.Starfsleyfi. [Að uppfylltum skilyrðum 1.–3. og 5.–7. tölul. 1. mgr. 91. gr. getur [tollstjóri]1) heimilað lögaðilum að reka afgreiðslugeymslur fyrir ótollafgreiddar vörur.]2) [Farmflytjendur sem ekki reka afgreiðslugeymslur í eigin nafni skulu eiga nægan aðgang að geymslum sem reknar eru á grundvelli leyfis skv. 1. mgr.]3) [Tollstjóri]1) skal halda skrá yfir leyfishafa skv. 1. mgr. Öðrum fyrirtækjum en þeim sem tekin hafa verið á skrá er óheimilt að starfrækja afgreiðslugeymslu. Hefji leyfishafi ekki starfsemi innan tólf mánaða frá því að tilkynnt er um veitingu starfsleyfis fellur leyfið niður. Starfsleyfi fellur jafnframt úr gildi hafi leyfishafi ekki veitt þjónustu sem honum er heimilt samkvæmt lögum þessum samfellt í tólf mánuði. 1)L. 147/2008, 2. gr.2)L. 170/2007, 8. gr.3)L. 146/2006, 8. gr. 89. gr.Afturköllun starfsleyfis. [Tollstjóri]1) getur afturkallað starfsleyfi skv. 88. gr. uppfylli leyfishafi ekki lengur skilyrði fyrir starfsleyfinu eða vanræki gróflega skyldur sínar samkvæmt lögum þessum. 1)L. 147/2008, 2. gr. 90. gr.Vörur sem heimilt er að flytja í afgreiðslugeymslu. Heimilt er að flytja ótollafgreiddar vörur í afgreiðslugeymslu úr fari eða milli afgreiðslugeymslna. Vörur sem háðar eru innflutningsleyfum er heimilt að flytja í afgreiðslugeymslu, enda þótt leyfi liggi ekki fyrir. Tollafgreiðsla vöru er háð því að innflutningsleyfi vegna hennar liggi fyrir. Tollvörugeymslur. 91. gr.Skilyrði starfsleyfis. Að fenginni skriflegri umsókn getur [tollstjóri]1) veitt leyfi til reksturs tollvörugeymslu fyrir ótollafgreiddar vörur í tollhöfn. Leyfi skal veitt þeim einum sem starfa í þeim tilgangi að veita öðrum [ótengdum aðilum]2) þá þjónustu sem felst í rekstri tollvörugeymslu, en leyfishöfum sjálfum er óheimilt að geyma þar vörur eða stunda þar aðvinnslu á vörum, verslun, umboðssölu, heildsölu eða smásölu. [Tollstjóra er þó heimilt að veita öðrum starfsleyfi ef leyfishafi uppfyllir kröfur tollstjóra um fullnægjandi aðstöðu og bókhaldslega aðgreiningu og stenst áhættumat.]2) Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis eru að öðru leyti sem hér segir:
1. Umsækjandi skal vera lögaðili. 2. Stjórnarmenn lögaðilans skulu vera a.m.k. tveir. Þeir skulu vera búsettir hér á landi, vera lögráða, hafa óflekkað mannorð, vera fjár síns ráðandi og mega ekki á síðustu fimm árum hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða öðrum lögum. Þá mega stjórnarmenn ekki hafa hlotið dóm vegna brota á tollalögum [eða]3) fyrir fíkniefnabrot. [Ríkisborgarar þeirra ríkja sem eru aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið eða stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu sem og Færeyingar eru undanþegnir búsetuskilyrðinu enda séu viðkomandi ríkisborgarar búsettir í aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjum.]4) [Tollstjóra]2) er heimilt að veita þeim sem eru búsettir í öðrum ríkjum sömu undanþágu. 3. Daglegur stjórnandi geymslusvæðis skal fullnægja skilyrðum 2. tölul. 4. Leyfishafi skal setja tryggingu fyrir greiðslu aðflutningsgjalda sem fyrirtækið kann að verða ábyrgt fyrir vegna starfseminnar. Við ákvörðun á fjárhæð tryggingarinnar skal m.a. höfð hliðsjón af umfangi starfseminnar og gjöldum af þeim vörum sem ætla má að geymdar verði í geymslunni. Nánari ákvæði um fjárhæð tryggingar og lágmarksskilmála að öðru leyti skulu sett í reglugerð. 5. Geymslusvæði skal hafa hlotið viðurkenningu tollstjóra skv. 2. mgr. 72. gr. og liggja vel við affermingu og eftirliti. Upplýsingar um staðsetningu geymslusvæðis og mannvirki tengd því skulu liggja fyrir. Gengið skal þannig frá geymslum að þær verði auðveldlega settar undir lás tollgæslunnar ef nauðsyn ber til vegna tolleftirlits. 6. Leyfishafa geymslusvæðis er skylt að láta tollstjóra í té án endurgjalds fullnægjandi aðstöðu á geymslusvæðinu til tolleftirlits og rannsóknar á vörum og enn fremur einföld áhöld og tæki sem nauðsynleg eru til slíks eftirlits að mati tollstjóra. 7. Vél- og hugbúnaður fyrir birgðabókhald skal þannig úr garði gerður að unnt sé á hverjum tíma að staðreyna viðtökudag sendingar, magn í sendingu, staðsetningu hennar, meðferð og ráðstöfun. Jafnframt skal tryggt að tollstjóri eigi ætíð aðgang að birgðabókhaldi geymslusvæðis. Vél- og hugbúnaður skal samþykktur af [tollstjóra].1) Honum er heimilt að gera að skilyrði að tollyfirvöld hafi beinlínuaðgang að upplýsingum úr birgðabókhaldi. 8. Leyfishafi skal hafa á að skipa starfsfólki sem hefur fullnægjandi þekkingu á lögum og reglum um meðferð ótollafgreiddra vara. Sýnt skal fram á að skjalagerð vegna tollmeðferðar, stjórnun, innra eftirlit, bókhald og varsla gagna starfseminnar verði með traustum hætti. 9. Hagkvæmniútreikningur vegna reksturs geymslunnar skal liggja fyrir. [Tollstjóri]1) skal halda skrá yfir leyfishafa samkvæmt þessari grein. Öðrum fyrirtækjum en þeim sem tekin hafa verið á skrá er óheimilt að starfrækja tollvörugeymslu. Hefji leyfishafi ekki starfsemi innan tólf mánaða frá því að tilkynnt er um veitingu starfsleyfis fellur leyfið niður. Starfsleyfi fellur jafnframt niður hafi leyfishafi ekki veitt þjónustu sem honum er heimilt samkvæmt lögum þessum samfellt í tólf mánuði. Ráðherra getur með reglugerð5) sett nánari fyrirmæli um skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis til reksturs geymslusvæða fyrir ótollafgreiddar vörur. 1)L. 147/2008, 2. gr.2)L. 167/2008, 5. gr.3)L. 42/2012, 4. gr.4)L. 108/2006, 27. gr.5)Rg. 1100/2006. 92. gr.Afturköllun starfsleyfis. [[Tollstjóri]1) getur]2) afturkallað starfsleyfi skv. 91. gr. uppfylli leyfishafi ekki lengur skilyrði fyrir starfsleyfinu eða vanræki gróflega skyldur sínar samkvæmt lögum þessum. 1)L. 147/2008, 2. gr.2)L. 170/2007, 11. gr. 93. gr.Vörur sem heimilt er að flytja í tollvörugeymslu. Heimilt er að flytja ótollafgreiddar vörur í tollvörugeymslu úr fari eða afgreiðslugeymslu. Vörur sem háðar eru innflutningsleyfum er heimilt að flytja í tollvörugeymslu, enda þótt leyfi liggi ekki fyrir. Tollafgreiðsla vöru er háð því að innflutningsleyfi vegna hennar liggi fyrir. Heimilt er að flytja innlendar vörur í tollvörugeymslu ef þær eru ætlaðar til nota við aðvinnslu sem heimil er í geymslunni samkvæmt ákvæðum 95. gr. Heimilt er að flytja innlenda framleiðsluvöru til útflutnings í tollvörugeymslu þegar heimil er endurgreiðsla verðjöfnunargjalda eða greiðsla verðjöfnunar við útflutning vöru skv. 85. gr. eða 85. gr. A laga nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Í þessum tilvikum skal endurgreiðsla verðjöfnunargjalda eða greiðsla verðjöfnunar heimil þegar vara hefur verið flutt í tollvörugeymslu. 94. gr.Tollafgreiddar vörur í tollvörugeymslu. [Tollstjóri]1) getur ákveðið, að fenginni umsókn leyfishafa tollvörugeymslu, að heimila geymslu tollafgreiddra og ótollafgreiddra vara í sama rými í tollvörugeymslu að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
1. Tollafgreiddar vörur skulu vera skýrt aðgreindar frá ótollafgreiddum vörum í birgðabókhaldi tollvörugeymslu. [Tollstjóri]1) skal samþykkja vél- og hugbúnað tollvörugeymslu til þess að tryggja að þessu skilyrði sé fullnægt. 2. [Tollstjóri]1) getur bundið leyfi samkvæmt þessari grein þeim skilyrðum sem hann telur nauðsynleg til þess að tryggja fullnægjandi tolleftirlit. [[Tollstjóri]1) getur]2) afturkallað leyfi samkvæmt þessari grein uppfylli leyfishafi ekki lengur skilyrði 1. mgr. Ráðherra getur kveðið nánar á um skilyrði heimildar skv. 1. mgr. með reglugerð.3) 1)L. 147/2008, 2. gr.2)L. 170/2007, 12. gr.3)Rg. 1100/2006. 95. gr.Aðvinnsla í tollvörugeymslu. Iðnaðarframleiðsla og önnur aðvinnsla vöru er óheimil í tollvörugeymslu. [Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er óveruleg aðvinnsla á vörum heimil í tollvörugeymslu, svo sem einföld umpökkun, merking, samsetning, prófun og þrif, enda leiði aðvinnslan ekki til breyttrar tollflokkunar vöru.]1) Tollstjóri sker úr ef óljóst er hvort aðvinnsla falli undir 2. mgr. Tollstjóra er heimilt að takmarka aðvinnslu skv. 2. mgr. ef það telst nauðsynlegt vegna tolleftirlits. 1)L. 146/2006, 9. gr. Tollfrjálsar forðageymslur. 96. gr.Starfsleyfi. Að uppfylltum skilyrðum 1.–8. tölul. 1. mgr. 91. gr. getur [tollstjóri]1) heimilað lögaðilum að reka tollfrjálsar forðageymslur í tollhöfn þar sem geyma má vistir, útbúnað og annan forða fyrir för í utanlandsferðum auk varnings sem boðinn er til sölu um borð. [Tollstjóri]1) skal halda skrá yfir leyfishafa samkvæmt þessari grein. Öðrum fyrirtækjum en þeim sem tekin hafa verið á skrá er óheimilt að starfrækja tollfrjálsa forðageymslu. Hefji leyfishafi ekki starfsemi innan tólf mánaða frá því að tilkynnt er um veitingu starfsleyfis fellur leyfið niður. Starfsleyfi fellur jafnframt niður hafi leyfishafi ekki veitt þjónustu sem honum er heimilt samkvæmt lögum þessum samfellt í tólf mánuði. 2)L. 147/2008, 2. gr. 97. gr.Afturköllun starfsleyfis. [[Tollstjóri]1) getur]2) afturkallað starfsleyfi skv. 96. gr. uppfylli leyfishafi ekki lengur skilyrði fyrir starfsleyfinu eða vanræki gróflega skyldur sínar samkvæmt lögum þessum. 1)L. 147/2008, 2. gr.2)L. 170/2007, 14. gr. 98. gr.Vörur sem flytja má í tollfrjálsa forðageymslu. Í tollfrjálsar forðageymslur má setja eftirtaldar vörur:
1. Ótollafgreiddar vörur. 2. Vörur úr birgðum skipa eða flugvéla. 3. Innlendar framleiðsluvörur. Þegar heimil er endurgreiðsla verðjöfnunargjalda eða greiðsla verðjöfnunar við útflutning vöru skv. 85. gr. eða 85. gr. A laga nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, skal endurgreiðsla verðjöfnunargjalda eða greiðsla verðjöfnunar heimil þegar vara hefur verið flutt í tollfrjálsa forðageymslu. 99. gr.Flutningur vara úr tollfrjálsri forðageymslu. Úr tollfrjálsri forðageymslu má aðeins selja og flytja vörur sem hæfilegan birgðaforða í far sem er í utanlandsferðum, enda verði vörurnar einungis til neyslu eða sölu í því fari. Ef sérstaklega stendur á, t.d. ef vörur liggja undir skemmdum, má tollstjóri heimila tollafgreiðslu á þeim til neyslu eða sölu innan lands, að fullnægðum lögboðnum innflutningsskilyrðum. Við mat á því hvað telst hæfilegur forði skal tollstjóri taka mið af stærð fars og gerð þess, fjölda farþega og stærð áhafnar og lengd ferðar. Ráðherra getur með reglugerð1) sett nánari reglur samkvæmt þessari grein. 1)Rg. 1100/2006. 100. gr.Forði sendur í veg fyrir far. Vörur úr tollfrjálsri forðageymslu má senda til annarra tollhafna í veg fyrir skip og önnur farartæki í utanlandsferðum ef fylgt er þeim skilyrðum sem tollstjóri setur um flutninginn. Tollstjóri getur undanskilið tiltekna vöruflokka slíkum flutningi. Tollfrjálsar verslanir. 101. gr.Starfsleyfi. Að uppfylltum skilyrðum 1.–3. og 6.–9. tölul. 1. mgr. 91. gr. og að fenginni skriflegri umsókn getur [tollstjóri]1) heimilað lögaðilum að reka tollfrjálsar verslanir í flugstöðvum eða höfnum. Leyfi skv. 1. mgr. nær jafnframt til reksturs tollfrjálsrar birgðageymslu fyrir vörur til sölu í verslun leyfishafa. [Tollstjóri]1) skal halda skrá yfir leyfishafa samkvæmt þessari grein. Öðrum fyrirtækjum en þeim sem tekin hafa verið á skrá er óheimilt að starfrækja tollfrjálsa verslun. Hefji leyfishafi ekki starfsemi innan tólf mánaða frá því að tilkynnt er um veitingu starfsleyfis fellur leyfið niður. Starfsleyfi fellur jafnframt niður hafi leyfishafi ekki veitt þjónustu sem honum er heimilt samkvæmt lögum þessum samfellt í tólf mánuði. 1)L. 147/2008, 2. gr. 102. gr.Afturköllun starfsleyfis. [[Tollstjóri]1) getur]2) afturkallað starfsleyfi skv. 101. gr. uppfylli leyfishafi ekki lengur skilyrði fyrir starfsleyfinu eða vanræki gróflega skyldur sínar samkvæmt lögum þessum. 1)L. 147/2008, 2. gr.2)L. 170/2007, 16. gr. 103. gr.Vörur sem heimilt er að flytja í tollfrjálsa verslun. Í tollfrjálsa verslun má setja eftirtaldar vörur:
1. Ótollafgreiddar vörur. 2. Tollafgreiddar vörur þegar endurgreiðsla tolls er heimil skv. 7. tölul. 1. mgr. 7. gr. 3. Innlendar framleiðsluvörur. Þegar heimil er endurgreiðsla verðjöfnunargjalda eða greiðsla verðjöfnunar við útflutning vöru skv. 85. gr. eða 85. gr. A laga nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, skal endurgreiðsla verðjöfnunargjalda eða greiðsla verðjöfnunar heimil þegar vara hefur verið flutt í tollfrjálsa verslun. 104. gr.Sala úr tollfrjálsri verslun. Eingöngu er heimilt að selja farþegum og áhöfnum millilandafara á leið úr landi vörur úr tollfrjálsri verslun. Sala skal eingöngu heimil gegn framvísun brottfararspjalds. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. getur [tollstjóri]1) heimilað leyfishafa að selja farþegum og áhöfnum millilandafara við komu til landsins vörur úr tollfrjálsri verslun. Slík verslun skal sérstaklega afmörkuð og eingöngu aðgengileg fyrir farþega og áhafnir sem koma til landsins. Ráðherra ákveður með reglugerð2) hvaða vörur er heimilt að selja í tollfrjálsri verslun skv. 2. mgr. 1)L. 147/2008, 2. gr.2)Rg. 641/2006, sbr. 428/2008. Frísvæði. 105. gr.Frísvæði. Að fenginni skriflegri umsókn og að uppfylltum skilyrðum 1. mgr. 91. gr. getur [tollstjóri]1) heimilað lögaðilum að reka frísvæði þar sem ótollafgreiddar vörur og innlendar framleiðsluvörur hljóta aðvinnslu umfram þá aðvinnslu sem heimil er í tollvörugeymslu, sbr. 95. gr. Leyfi skal veitt þeim einum sem starfa í þeim tilgangi að veita öðrum þá þjónustu sem felst í rekstri frísvæðis. Leyfishöfum sjálfum skal óheimilt að stunda iðnaðarframleiðslu, verslun, umboðssölu, heildsölu eða smásölu á frísvæðinu. [Tollstjóri]1) skal halda skrá yfir leyfishafa samkvæmt þessari grein. Öðrum fyrirtækjum en þeim sem tekin hafa verið á skrá er óheimilt að starfrækja frísvæði. Hefji leyfishafi ekki starfsemi innan tólf mánaða frá því að tilkynnt er um veitingu starfsleyfis fellur leyfið niður. Starfsleyfi fellur jafnframt niður hafi leyfishafi ekki veitt þjónustu sem honum er heimilt samkvæmt lögum þessum samfellt í tólf mánuði. 1)L. 147/2008, 2. gr. 106. gr.Afturköllun starfsleyfis. [[Tollstjóri]1) getur]2) afturkallað starfsleyfi skv. 105. gr. uppfylli leyfishafi ekki lengur skilyrði fyrir starfsleyfinu eða vanræki gróflega skyldur sínar samkvæmt lögum þessum. 1)L. 147/2008, 2. gr.2)L. 170/2007, 19. gr. 107. gr.Vörur sem heimilt er að flytja á frísvæði. Heimilt er að flytja ótollafgreiddar vörur á frísvæði úr fari, afgreiðslugeymslu eða tollvörugeymslu. Vörur sem háðar eru innflutningsleyfum er heimilt að flytja á frísvæði enda þótt leyfi liggi ekki fyrir. Tollafgreiðsla vöru er háð því að innflutningsleyfi vegna hennar liggi fyrir. Heimilt er að flytja innlendar vörur á frísvæði ef þær eru ætlaðar til nota við iðnaðarframleiðslu sem heimil er á frísvæðinu. Þegar heimil er endurgreiðsla verðjöfnunargjalda eða greiðsla verðjöfnunar við útflutning vöru skv. 85. gr. eða 85. gr. A laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum skal endurgreiðsla verðjöfnunargjalda eða greiðsla verðjöfnunar heimil þegar vara hefur verið flutt á frísvæði. 108. gr.Tollverðsákvörðun. Aðflutningsgjöld af vöru á frísvæði, sem tekin er til tollmeðferðar vegna afhendingar hennar til notkunar innan lands, miðast við tollverð hennar eins og það er ákveðið samkvæmt reglum um tollverð og tollverðsákvörðun við upphaf tollmeðferðar hennar, sbr. 34. gr. Tollverð vöru á frísvæði sem flutt er til útlanda er það sem greitt er eða greiða ber fyrir hana samkvæmt ákvæðum V. kafla. [Umflutningsgeymslur.]1) 1)L. 170/2007, 20. gr. [108. gr. a.Starfsleyfi. Að fenginni skriflegri umsókn og að uppfylltum skilyrðum 1.–9. tölul. 1. mgr. 91. gr. getur [tollstjóri]1) heimilað lögaðilum að reka umflutningsgeymslur. Leyfi skal veitt þeim einum sem starfa í þeim tilgangi að veita öðrum þá þjónustu sem felst í rekstri umflutningsgeymslu. Leyfishöfum sjálfum skal óheimilt að geyma þar vörur eða stunda þar iðnaðarframleiðslu, verslun, umboðssölu, heildsölu eða smásölu. [Tollstjóri]1) skal halda skrá yfir leyfishafa samkvæmt þessari grein. Öðrum fyrirtækjum en þeim sem tekin hafa verið á skrá er óheimilt að starfrækja umflutningsgeymslu. Hefji leyfishafi ekki starfsemi innan tólf mánaða frá því að tilkynnt er um veitingu starfsleyfis fellur leyfið niður. Starfsleyfi fellur jafnframt niður hafi leyfishafi ekki veitt þjónustu sem honum er heimilt að veita samkvæmt lögum þessum samfellt í tólf mánuði.]2) 1)L. 147/2008, 2. gr.2)L. 170/2007, 20. gr. [108. gr. b.Afturköllun starfsleyfis. [Tollstjóri]1) getur afturkallað starfsleyfi skv. 108. gr. a uppfylli leyfishafi ekki lengur skilyrði fyrir starfsleyfinu eða vanræki gróflega skyldur sínar samkvæmt lögum þessum.]2) 1)L. 147/2008, 2. gr.2)L. 170/2007, 20. gr. [108. gr. c.Vörur sem heimilt er að flytja í umflutningsgeymslu. Heimilt er að flytja ótollafgreiddar vörur í umflutningsgeymslu úr fari eða afgreiðslugeymslu. Vörur sem háðar eru innflutningsleyfum er heimilt að flytja í umflutningsgeymslu, enda þótt leyfi liggi ekki fyrir. Heimilt er að flytja innlendar vörur í umflutningsgeymslu ef þær eru ætlaðar til að viðhalda óbreyttu ástandi umflutningsvörunnar eða varna umflutningsvöru skemmdum, sbr. 108. gr. d. [Heimilt er að flytja vörur í umflutningsgeymslu á annað geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur.]1) [Óheimilt er að afhenda vörur úr umflutningsgeymslu til notkunar innan lands.]1)]2) 1)L. 42/2012, 5. gr.2)L. 170/2007, 20. gr. [108. gr. d.Aðvinnsla í umflutningsgeymslu. Iðnaðarframleiðsla og önnur aðvinnsla vöru er óheimil í umflutningsgeymslu. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru aðgerðir til þess að viðhalda óbreyttu ástandi vörunnar eða til þess að verja hana gegn skemmdum heimilar í umflutningsgeymslum.]1) 1)L. 170/2007, 20. gr.
XIV. kafli.Álagning, kærur o.fl. 109. gr.Álagning aðflutningsgjalda. [Tollstjóri]1) annast álagningu aðflutningsgjalda. Álagning aðflutningsgjalda skal byggð á þeim upplýsingum sem koma fram í aðflutningsskýrslu skv. VII. kafla. Þó skal tollstjóri leiðrétta augljósar og smávægilegar villur í skriflegum aðflutningsskýrslum sem honum hafa verið látnar í té. Ef aðflutningsskýrslu er ekki skilað innan tilskilins frests skv. 22. gr. skal tollstjóri áætla tollverð vöru skv. 115. gr. 1)L. 147/2008, 16. gr. 110. gr.Leiðréttingar á aðflutningsskýrslu fyrir tollafgreiðslu. Komi í ljós eftir að aðflutningsskýrsla ásamt fylgiskjölum hefur verið látin tollstjóra í té og áður en afhendingarheimild er veitt að hún eða einstakir liðir hennar eða fylgiskjöl eru ófullnægjandi, óglögg eða tortryggileg, eigi skráð á lögmæltan hátt, undirrituð á ófullnægjandi hátt eða tollstjóri telur frekari skýringa þörf á einhverju atriði skal hann skora á viðkomandi að bæta úr því innan ákveðins tíma og láta í té skýringar og þau gögn sem tollstjóri telur þörf á. Áskorun skv. 1. mgr. getur hvort heldur sem er verið skrifleg eða rafræn, á því formi sem [tollstjóri]1) ákveður. Fái tollstjóri fullnægjandi skýringar og gögn innan frests skv. 1. mgr. leggur hann toll og önnur gjöld á samkvæmt aðflutningsskjölum og fengnum skýringum og gögnum. Ef eigi er bætt úr annmörkum á aðflutningsskýrslu, svar frá viðkomandi berst ekki innan tiltekins tíma, skýringar hans eru ófullnægjandi, eigi eru send þau gögn sem óskað er eftir eða send gögn eru ófullnægjandi eða tortryggileg skal tollstjóri áætla aðflutningsgjöld með þeim hætti sem mælt er fyrir um í 115. gr. 1)L. 147/2008, 2. gr. 111. gr.Endurákvörðun aðflutningsgjalda eftir rafræna tollafgreiðslu. Tollstjóri skal endurákvarða innflytjanda aðflutningsgjöld, ef í ljós kemur að þau voru ekki rétt ákvörðuð við tollafgreiðslu, vegna sendinga sem innflytjandi hefur fengið tollafgreiddar með rafrænum hætti á síðustu sex árum talið frá þeim degi þegar honum berst tilkynning um fyrirhugaðan úrskurð um endurákvörðun skv. 1. mgr. 114. gr. 112. gr.Endurákvörðun aðflutningsgjalda eftir skriflega tollafgreiðslu. Hafi innflytjandi eða sá sem ráðstafaði vöru til tollmeðferðar látið tollstjóra í té rangar eða ófullnægjandi upplýsingar í aðflutningsskýrslu eða fylgiskjölum, sem lágu til grundvallar tollafgreiðslu, skal tollstjóri endurákvarða innflytjanda aðflutningsgjöld. Skiptir í því sambandi ekki máli hvort innflytjandi eða sá sem ráðstafaði vöru til tollmeðferðar vissi eða mátti vita um réttmæti upplýsinga í aðflutningsskýrslu eða fylgiskjölum. Tollstjóra er heimilt að endurákvarða innflytjanda aðflutningsgjöld á grundvelli 1. mgr. vegna sendinga sem innflytjandi hefur fengið tollafgreiddar á síðustu sex árum talið frá þeim degi þegar honum berst tilkynning skv. 1. mgr. 114. gr. um fyrirhugaðan úrskurð um endurákvörðun. Hafi innflytjandi eða sá sem ráðstafaði vöru til tollmeðferðar látið tollstjóra í té réttar og fullnægjandi upplýsingar í aðflutningsskýrslu og fylgiskjölum er þó eigi heimilt að endurákvarða honum aðflutningsgjöld nema vegna sendinga sem hann hefur fengið tollafgreiddar á síðustu 60 dögum talið frá þeim degi þegar honum berst tilkynning um fyrirhugaðan úrskurð um endurákvörðun. Hafi heimild verið veitt til tímabundins innflutnings vöru skal tollstjóra þó heimilt að endurákvarða innflytjanda aðflutningsgjöld í 60 daga talið frá því að aðflutningsgjöld voru ákvörðuð. Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. er tollstjóra heimilt að endurákvarða innflytjanda aðflutningsgjöld vegna sendinga, sem innflytjandi hefur fengið tollafgreiddar á síðustu sex árum talið frá þeim degi þegar honum berst tilkynning skv. 1. mgr. 114. gr. um fyrirhugaða endurákvörðun, hafi innflytjandi vitað eða mátt vita um rétta tollmeðferð vöru. 113. gr.Aðrar endurákvarðanir. Komi í ljós eftir tollafgreiðslu vöru að tollstjóra hafi verið látnar í té rangar eða ófullnægjandi upplýsingar en fjárhæð aðflutningsgjalda er engu að síður rétt ákvörðuð skal tollstjóri tilkynna innflytjanda um fyrirhugaðar breytingar á aðflutningsskjölum. Skiptir í því sambandi ekki máli hvort innflytjandi eða sá sem ráðstafaði vöru til tollmeðferðar vissi eða mátti vita um réttmæti upplýsinga í aðflutningsskýrslu eða fylgiskjölum. Um endurákvarðanir skv. 1. mgr. gilda ákvæði 114. gr. eftir því sem við á. 114. gr.Málsmeðferðarreglur við endurákvörðun aðflutningsgjalda. Ef fyrirhuguð er endurákvörðun tollstjóra skv. 111.–113. gr. skal tollstjóri senda innflytjanda tilkynningu um fyrirhugaðan úrskurð um endurákvörðun með sannanlegum hætti. Í tilkynningu skv. 1. mgr. skal tollstjóri lýsa í meginatriðum þeim atvikum sem hann telur að eigi að leiða til endurákvörðunar. Tollstjóri skal veita innflytjanda a.m.k. 15 daga frest, frá póstlagningardegi tilkynningar um fyrirhugaða endurákvörðun, til þess að tjá sig skriflega um efni máls og, eftir atvikum, leggja fram gögn áður en úrskurður um endurákvörðun er kveðinn upp. Úrskurður um endurákvörðun skal kveðinn upp innan [60]1) daga frá lokum þess frests sem innflytjanda var veittur til þess að tjá sig um fyrirhugaða endurákvörðun. Innflytjanda skal tilkynnt um úrskurð með ábyrgðarbréfi. 1)L. 42/2012, 6. gr. 115. gr.Heimildir tollstjóra til áætlunar aðflutningsgjalda. Í þeim tilvikum þegar tollstjóra ber að áætla fjárhæð aðflutningsgjalda skal hann áætla tollverð vöru svo ríflega að eigi sé hætt við að fjárhæðir séu áætlaðar lægri en raunverulegt verðmæti vörunnar og ákvarða aðflutningsgjöld í samræmi við þá áætlun. Við áætlunina skal tollstjóri hafa hliðsjón af þeim upplýsingum sem liggja fyrir um vöruna, þar á meðal farmskrá, framlögðum gögnum ef einhver eru og gögnum Hagstofu Íslands yfir innfluttar vörur. 116. gr.Leiðréttingar á aðflutningsskýrslu eftir tollafgreiðslu. Verði innflytjandi þess var innan sex ára talið frá tollafgreiðsludegi vöru að upplýsingar, sem lágu til grundvallar tollafgreiðslu vöru, voru rangar eða ófullnægjandi skal hann leggja fram beiðni hjá tollstjóra um viðeigandi leiðréttingar, sbr. 2. mgr. Beiðni skv. 1. mgr. um leiðréttingu skal afhent tollstjóra á formi leiðréttrar skriflegrar aðflutningsskýrslu ásamt viðeigandi fylgiskjölum. Ákvæði VII. kafla um skriflegar skýrslugjafir gilda um leiðréttar aðflutningsskýrslur samkvæmt þessari málsgrein. Innflytjandi ber sönnunarbyrði fyrir því að rangar og ófullnægjandi upplýsingar hafi verið lagðar til grundvallar tollafgreiðslu vöru ef breyttar forsendur geta leitt til lækkunar álagðra aðflutningsgjalda. Tollstjóri kveður upp úrskurð vegna beiðni um leiðréttingu innan 30 daga frá því að gagnaöflun er lokið. Um málsmeðferð fer eftir ákvæðum 2. og 3. mgr. 117. gr. 117. gr.Kærur til tollstjóra. Telji tollskyldur aðili ákvörðun tollstjóra um gjaldskyldu, fjárhæð aðflutningsgjalda eða atriði sem liggja til grundvallar ákvörðun aðflutningsgjalda, svo sem tollverð og tollflokkun, eigi rétta getur hann sent skriflega rökstudda kæru, studda nauðsynlegum gögnum til tollstjóra. Ef ágreiningur er um tollmeðferð vöru sem hefur þegar verið tollafgreidd skal kæra send tollstjóra innan 60 daga frá tollafgreiðsludegi. Telji tollstjóri óljóst á hvaða rökum kæra er reist eða að fylgiskjöl séu ófullnægjandi skal hann gefa kæranda kost á að bæta úr því innan hæfilegs tíma. Ef þess er eigi gætt varðar vanreifun frávísun kæru. Úrskurða skal svo fjótt sem verða má og eigi síðar en innan 30 daga frá því að gagnaöflun er lokið. Úrskurður tollstjóra skal rökstuddur og tollskyldum aðila skal bent á heimild til þess að kæra úrskurðinn til ríkistollanefndar, sbr. 118. gr. Úrskurður skal sendur innflytjanda með sannanlegum hætti. …1) 1)L. 147/2008, 17. gr. 118. gr.Kærur til ríkistollanefndar. Tollskyldur aðili getur skotið úrskurði tollstjóra um endurákvörðun skv. 111.–113. gr., sbr. 114. gr., úrskurði tollstjóra um leiðréttingu skv. 116. gr., kæruúrskurði skv. 117. gr. og ákvörðun [tollstjóra]1) skv. 21. gr. og 2. mgr. 145. gr. til ríkistollanefndar innan 60 daga frá póstlagningardegi úrskurðar eða ákvörðunar. …2) Kærur skulu vera skriflegar og studdar nauðsynlegum gögnum. Vanreifun varðar frávísun. Berist nefndinni kæra og hún er rökstudd með tollskjölum, sem ekki hafa sætt efnisúrlausn hjá tollstjóra, getur nefndin sent kæruna til tollstjóra til uppkvaðningar úrskurðar að nýju. Nefndin skal tilkynna aðila um þá ákvörðun. [Tollstjóri skal koma fram gagnvart ríkistollanefnd fyrir hönd ríkisins og annarra gjaldkrefjenda. Ríkistollanefnd skal tafarlaust senda tollstjóra kæru ásamt endurriti af þeim gögnum sem kunna að fylgja kæru. Skal nefndin gefa tollstjóra hæfilegan frest til að leggja fyrir nefndina kröfugerð sína í málinu og nauðsynleg gögn. Ríkistollanefnd skal gefa kæranda kost á andsvörum vegna kröfugerðar tollstjóra innan hæfilegs frests.]2) Telji nefndin mál ekki nægilega upplýst getur hún beint til málsaðila að afla frekari gagna eða upplýsinga málinu til skýringar. Ríkistollanefnd er heimilt að kveðja sérfróða menn sér til aðstoðar við úrlausn ágreiningsmála og krefjast upplýsinga samkvæmt ákvæðum laga þessara. Nefndin getur ákveðið málflutning ef mál er flókið eða yfirgripsmikið og má hann vera munnlegur. Um málflutning skulu gilda almennar reglur um málflutning fyrir héraðsdómi, um vanhæfi, aðstoð sérfróðra manna o.fl. eftir því sem við á. Nefndin skal úrskurða um kærur eins fljótt og auðið er og eigi síðar en 60 dögum eftir að gagnaöflun er lokið. Sé munnlegur málflutningur viðhafður skal úrskurður kveðinn upp innan 60 daga frá lokum málflutnings. Úrskurðir nefndarinnar skulu rökstuddir. Kæra til ríkistollanefndar frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar. Úrskurður ríkistollanefndar er fullnaðarúrskurður á stjórnsýslustigi. Málskot til almennra dómstóla um úrlausnarefni sem farið hefur fyrir nefndina frestar eða breytir ekki niðurstöðu hennar fyrr en dómur er genginn. 1)L. 147/2008, 2. gr.2)L. 147/2008, 18. gr. 119. gr.Tollendurskoðun. [Tollstjóri hefur á hendi tollendurskoðun.]1) Tollendurskoðun tekur til hvers konar könnunar [tollstjóra]2) á réttmæti upplýsinga sem lagðar voru fram við lögboðna skýrslugjöf til tollstjóra og hvers konar könnunar á réttmæti skila á aðflutningsgjöldum eftir álagningu þeirra. Í tollendurskoðun felst m.a. samanburður á upplýsingum sem [tollstjóra]1) eru veittar með rafrænum hætti við bókhaldsgögn, þar á meðal viðeigandi fylgigögn sem eiga að ligga til grundvallar skýrslugjöf til tollstjóra samkvæmt ákvæðum laga þessara. Tollendurskoðun tekur einnig til öflunar frekari gagna frá tollskyldum aðilum eða öðrum. Lögreglu er skylt að veita [tollstjóra]2) nauðsynlega aðstoð í þágu tollendurskoðunar ef aðili færist undan afhendingu bókhaldsgagna. …1) 1)L. 147/2008, 19. gr.2)L. 147/2008, 2. gr.
XV. kafli.Gjalddagi, greiðslufrestur og greiðslustaður aðflutningsgjalda. 120. gr.Gjalddagi aðflutningsgjalda. Aðflutningsgjöld, af öðrum vörum en þeim sem ráðstafað hefur verið á geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur skv. [2.–6. tölul.]1) 1. mgr. 69. gr., falla í gjalddaga þegar leyfi hefur verið veitt til afhendingar þeirra til notkunar innan lands enda sé flutningsfar þegar komið til landsins. Aðflutningsgjöld skulu þó falla í gjalddaga eigi síðar en sex mánuðum eftir komudag flutningsfars til landsins nema tollstjóri hafi heimilað lengri geymslutíma í afgreiðslugeymslu, sbr. 1. mgr. 70. gr. Í þeim tilvikum skulu aðflutningsgjöld falla í gjalddaga við lok þess frests sem tollstjóri tiltekur. Um gjalddaga aðflutningsgjalda þegar greiðslufrestur er veittur fer eftir ákvæði 2. mgr. 122. gr. Aðflutningsgjöld af vörum sem ráðstafað hefur verið í tollvörugeymslu eða á frísvæði falla í gjalddaga þegar leyfi hefur verið veitt til afhendingar þeirra til notkunar innan lands. Sama gildir um þær vörur sem óskast tollafgreiddar úr tollfrjálsum forðageymslum og tollfrjálsum verslunum til notkunar innan lands. Ef neyðarleyfi eða leyfi til bráðabirgðatollafgreiðslu er veitt skal gjalddagi aðflutningsgjalda vera sá dagur þegar uppgjör aðflutningsgjalda skal eiga sér stað samkvæmt ákvörðun tollstjóra, sbr. 36. og 37. gr. Ef tímabundinn tollfrjáls innflutningur er heimilaður skal gjalddagi aðflutningsgjalda vera sá dagur þegar leyfi til tímabundins innflutnings fellur úr gildi. Aðflutningsgjöld skulu ákvörðuð samkvæmt lögum og tollafgreiðslugengi sem var í gildi á tollafgreiðsludegi. Ef um hraðsendingu er að ræða skal gjalddagi aðflutningsgjalda vera sjö dögum eftir tollafgreiðslu sendingar. Ef vara er afhent úr vörslu farmflytjanda eða af geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur án tilskilins leyfis tollstjóra skulu aðflutningsgjöld þegar gjaldfelld. Þegar atvik eru eins og um ræðir í 5. mgr. og vara hefur verið í vörslu farmflytjanda, tollmiðlara eða innflytjanda samkvæmt sérstöku leyfi tollstjóra, sbr. 3. mgr. 69. gr., skal gjalddagi vera komudagur flutningsfars og skulu aðflutningsgjöld ákvörðuð samkvæmt lögum og tollafgreiðslugengi sem í gildi var á þeim degi. Ef vara hefur verið flutt í tollvörugeymslu eða á frísvæði skal gjalddagi vera þegar tollstjóra barst tilkynning skv. 79. gr. og skulu aðflutningsgjöld ákvörðuð samkvæmt lögum og tollafgreiðslugengi sem var í gildi á þeim degi, nema sannað sé með fullnægjandi hætti að mati tollstjóra að óheimil afhending vöru til notkunar innan lands hafi átt sér stað síðar. Ef aðflutningsgjöld innflytjanda eru endurákvörðuð skv. 111. eða 112. gr., sbr. 114. gr., fellur viðbótarfjárhæðin í gjalddaga á tollafgreiðsludegi vöru. 1)L. 170/2007, 4. gr. 121. gr.Réttur til greiðslufrests. Aðilar sem skráðir eru á virðisaukaskattsskrá skulu njóta greiðslufrests á aðflutningsgjöldum enda séu þeir í skilum við ríkissjóð. Réttur til greiðslufrests tekur til aðflutningsgjalda af vörum sem fluttar eru inn í atvinnuskyni. Óheimilt er að veita greiðslufrest á aðflutningsgjöldum þegar neyðarleyfi er veitt eða bráðabirgðatollafgreiðsla fer fram svo og við uppgjör aðflutningsgjalda í þessum tilvikum. 122. gr.Uppgjörstímabil og gjalddagi við skuldfærslu. Þegar greiðslufrestur er veittur er hvert uppgjörstímabil tolls og annarra aðflutningsgjalda tveir mánuðir, janúar og febrúar, mars og apríl, maí og júní, júlí og ágúst, september og október og nóvember og desember, nema annað sé ákveðið í öðrum lögum. Gjalddagi skuldfærðra aðflutningsgjalda er 15. dagur næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. [Tollstjóra er heimilt, á grundvelli umsóknar, að fresta gjalddaga skuldfærðs virðisaukaskatts skv. 2. mgr. fram að uppgjöri virðisaukaskatts fyrir sama uppgjörstímabil, sbr. 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, enda sé aðili að jafnaði með lægri útskatt en innskatt þar sem verulegur hluti veltunnar er undanþeginn virðisaukaskatti skv. 1. mgr. 12. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Heimild, útgefin af tollstjóra, skal gilda í 12 mánuði í senn.]1) 1)L. 167/2008, 6. gr. 123. gr.Synjun um heimild til skuldfærslu. Tollstjóri skal synja þeim sem nýtur heimildar til skuldfærslu aðflutningsgjalda um frekari greiðslufrest á aðflutningsgjöldum ef hann gerir ekki skil á aðflutningsgjöldum á tilskildum tíma. Jafnframt er tollstjóra heimilt að synja um frekari greiðslufrest ef sá sem hans nýtur gerir ekki skil á öðrum ríkissjóðsgjöldum en aðflutningsgjöldum á tilskildum tíma. Ef bú innflytjanda er tekið til gjaldþrotaskipta eða opinberra skipta eftir lát hans og erfingjar hans taka ekki á sig ábyrgð á skuldbindingum búsins skulu aðflutningsgjöld greidd þegar heimild til afhendingar vöru er veitt. Sama gildir sé innflytjandi ekki fjár síns ráðandi eða komi í ljós við aðför eða með öðrum hætti að innflytjanda vöru er tímabundið ómögulegt að greiða skuldir sínar eða hefur óskað eftir heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings. 124. gr.Reglugerðarheimild. Ráðherra setur með reglugerð nánari reglur um greiðslufrest á aðflutningsgjöldum. 125. gr.Vextir. Dráttarvextir skulu reiknast á vangreidd aðflutningsgjöld frá og með gjalddaga og innheimtir í ríkissjóð. [Þó verða dráttarvextir einungis reiknaðir tvö ár aftur í tímann frá þeim degi sem úrskurður um endurákvörðun aðflutningsgjalda er kveðinn upp.]1) Dráttarvextir skulu vera þeir sömu og Seðlabanki Íslands ákveður skv. 6. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu. Nú verður ljóst þegar álagningu aðflutningsgjalda lýkur eða við endurákvörðun þeirra að meira hefur verið greitt en sem nemur endanlegum álögðum aðflutningsgjöldum og skal þá endurgreiða það sem ofgreitt var ásamt vöxtum fyrir það tímabil sem féð var í vörslum ríkissjóðs. Skulu vextir þessir vera jafnháir vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveður og birtir á hverjum tíma skv. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu. Sé kæra til meðferðar hjá ríkistollanefnd og nefndin kveður ekki upp úrskurð innan lögboðins frests skv. 9. mgr. 118. gr. skal greiða dráttarvexti af fjárhæð sem ríkistollanefnd úrskurðar að skuli endurgreiða, eða dæmd er síðar, frá þeim tíma þegar frestur nefndarinnar til þess að kveða upp úrskurð leið. Ætíð má krefjast dráttarvaxta frá þeim tíma er dómsmál telst höfðað til endurgreiðslu aðflutningsgjalda. 1)L. 42/2012, 7. gr. 126. gr.Greiðslustaður. [Aðflutningsgjöld skal greiða tollstjóra. Tollstjóri getur falið sýslumönnum að veita viðtöku greiðslu aðflutningsgjalda, sbr. 42. gr., sem og bönkum og sparisjóðum og póstrekendum. Tollstjóra er heimilt að setja reglur um rafræn greiðsluskil vegna aðflutningsgjalda.]1) 1)L. 147/2008, 20. gr.
XVI. kafli.Innheimta og ábyrgð. 127. gr.Ábyrgð á greiðslu aðflutningsgjalda. Ábyrgð á greiðslu aðflutningsgjalda hvílir á innflytjanda vöru. Nú kemur tollmiðlari fram gagnvart tollyfirvöldum fyrir hönd innflytjanda vegna tollmeðferðar vöru og ber hann þá ásamt innflytjanda óskipta ábyrgð á greiðslu aðflutningsgjalda. Ábyrgð tollmiðlara fellur brott hafi aðflutningsgjöld verið skuldfærð á innflytjanda, enda hafi tollmiðlari haft heimild innflytjanda til þess, nema tollmiðlari hafi vitað eða mátt vita að upplýsingar í aðflutningsskjölum væru rangar eða ófullnægjandi, sbr. 33. gr. 128. gr.Fullnusta aðflutningsgjalda. Aðflutningsgjöld, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, eru tryggð með lögveði í innfluttri vöru. Lögveðsréttur er óháður grandleysi eigenda og helst þrátt fyrir eigendaskipti. Tollstjóri getur krafist nauðungarsölu á uppboði á ótollafgreiddri vöru án undangengins dóms, sáttar eða fjárnáms, sbr. 129. gr., til lúkningar á gjaldföllnum aðflutningsgjöldum, dráttarvöxtum, sektum og kostnaði. Tollstjóri getur jafnframt boðið vöru til sölu á almennum markaði. Telji tollstjóri ekki ástæðu til að selja vöru nauðungarsölu vegna ástands hennar skal honum heimilt að láta farga henni á kostnað innflytjanda. Verði vara ekki seld nauðungarsölu má gera fjárnám til tryggingar greiðslu aðflutningsgjalda, dráttarvaxta, sekta og kostnaðar hjá tollskyldum aðila án undangengins dóms eða sáttar. 129. gr.Nauðungarsala á uppboði og uppgjör söluandvirðis. Tollstjóri skal fá birta auglýsingu um uppboð skv. 2. mgr. 128. gr. með mest fjögurra vikna og minnst viku fyrirvara í dagblaði eða á annan samsvarandi hátt. Jafnframt skal tollstjóri tilkynna innflytjanda vöru bréflega um hvar og hvenær uppboð fer fram. Verði tilkynningu ekki við komið vegna þess að innflytjandi er ekki þekktur eða finnst ekki stendur það ekki í vegi fyrir uppboði. Um mótmæli gegn nauðungarsölu gilda ákvæði XI. og XIV. kafla laga nr. 90/1991, um nauðungarsölu. Aðflutningsgjöld greiðast af söluandvirði með forgangsrétti næst á eftir sölukostnaði vörunnar og gjöldum vegna geymslu hennar hjá farmflytjanda í einn mánuð frá því að hún kom til landsins. Sé söluandvirði vörunnar hærra en nemur aðflutningsgjöldum ásamt dráttarvöxtum, sektum og áföllnum kostnaði skal greiða þeim sem eignarréttur gekk úr hendi afganginn að frádregnum öðrum eignarhöftum sem á vörunni hvíldu auk alls áfallins kostnaðar. Vitji eigandi ekki þess sem afgangs er samkvæmt framangreindu innan árs frá söludegi rennur andvirðið í ríkissjóð. Ráðherra getur með reglugerð sett nánari reglur um framkvæmd nauðungarsölu með uppboði.
XIX. kafli.Útflutningur. 140. gr.Skylda til að skila útflutningsskýrslu. Þeir sem stunda útflutning á vörum í atvinnuskyni skulu, áður en vara er flutt úr landi, senda …1) tollstjóra með rafrænum hætti þær upplýsingar sem láta ber í té við tollafgreiðslu vara. 1)L. 147/2008, 21. gr. 141. gr.Einfaldaðar útflutningsskýrslur vegna póstverslunar. Einstaklingar og lögaðilar sem stunda í atvinnuskyni útflutning smásendinga í póstverslun til einstaklinga geta sótt um leyfi [tollstjóra]1) til að skila einfölduðum útflutningsskýrslum sem láta má tollstjóra í té eftir að útflutningur hefur átt sér stað. Ráðherra getur með reglugerð2) kveðið á um skilyrði fyrir heimild til einfaldaðrar skýrslugjafar við útflutning skv. 1. mgr. 1)L. 147/2008, 2. gr.2)Rg. 1100/2006. 142. gr. …1) 1)L. 147/2008, 22. gr. 143. gr.Aflaskýrslur íslenskra veiðiskipa. Skýrslu um afla íslenskra veiðiskipa, sem fluttur er út með þeim sjálfum til sölu á erlendum markaði, skal skipstjóri gefa í fyrstu höfn sem skipið tekur hér á landi á leið sinni frá útlöndum eða næst þegar það leitar hafnar hér á landi taki skipið ekki höfn áður en það flytur afla á erlendan markað. …1) 1)L. 147/2008, 23. gr. 144. gr. Ákvæði laga þessara um innflutning gilda um útflutning og umflutning eftir því sem við getur átt nema öðruvísi sé kveðið á um í þessum kafla.
XX. kafli.Uppruni vöru. 145. gr. Ráðherra er heimilt að setja almennar upprunareglur er gildi við innflutning og útflutning vöru. [Við setningu upprunareglna skal samráð eftir atvikum haft við ráðuneyti er fara með almenn viðskiptamál, málefni sjávarútvegs, málefni landbúnaðar og útflutning.]1) Reglurnar skulu grundvallaðar á eftirfarandi meginreglum:
1. Þegar viðmiðun um breytingu á tollflokkun er beitt skal tilgreina nákvæmlega undirliði og vöruliði þeirrar tollnafnaskrár sem notuð er. 2. Þegar miðað er við hundraðshluta af verðmæti skal tilgreina reikningsaðferðir. 3. Þegar miðað er við framleiðslu eða aðvinnsluaðferðir skal skýra nákvæmlega frá aðferðum sem gefa til kynna uppruna viðkomandi vöru. Upprunareglur skal birta með reglugerð. [Tollstjóri]2) veitir innflytjendum, útflytjendum og aðilum sem hagsmuna eiga að gæta bindandi álit um uppruna vöru. Álitið skal veita eins fljótt og hægt er og eigi síðar en 60 dögum eftir að beiðni er lögð fram. Gerist Ísland aðili að milliríkjasamningi sem kveður á um tollalækkanir eða aðra tilhliðrun fyrir íslenskar útflutningsvörur við tollafgreiðslu í viðkomandi landi eða löndum skal tollstjóri að beiðni útflytjenda veita upplýsingar um skilyrði tollfríðinda, þar á meðal útgáfu upprunasannana o.fl. Ef útflytjandi framleiðsluvara er annar en framleiðandi þeirra skal auk upprunavottorðs útflytjanda liggja fyrir yfirlýsing framleiðanda sem staðfesti að framleiðsluvörurnar uppfylli skilyrði um fríðindameðferð samkvæmt fríverslunar- eða milliríkjasamningi sem Ísland er aðili að. Öll skjöl og vottorð um uppruna vöru, tollendurgreiðslur af þeim o.fl. skv. 1. og 3. mgr. skulu vera að formi og frágangi eins og ákveðið er af ráðherra. Nú óskar aðildarríki að milliríkjasamningi skv. 1. og 3. mgr. að sannreyna sannleiksgildi skjala eða vottorða um uppruna, tollendurgreiðslur o.fl. vegna útfluttra vara til viðkomandi landa eða nauðsynlegt telst af öðrum ástæðum að framkvæma slíka rannsókn og eru þá atvinnurekandi og aðrir, sem hlut eiga að máli, skyldir til að láta tollyfirvaldi í té upplýsingar um atriði sem þýðingu hafa fyrir rannsóknina og getur tollyfirvald eftir atvikum látið rannsaka atvinnuhúsnæði, reikningshald og bréfaviðskipti nefndra aðila. Ráðherra getur með nánar ákveðnum skilyrðum löggilt innlend samtök til að gefa út ábyrgðarskjöl og ábyrgjast gagnvart yfirvöldum í öðrum ríkjum greiðslu gjalda af vörum sem útfluttar eru héðan til tímabundinna nota eða til umflutnings í því ríki þegar um er að ræða útflutningsvörur sem lúta sérstakri meðferð samkvæmt milliríkjasamningi sem Ísland er aðili að. Ráðherra getur með reglugerð eða öðrum fyrirmælum sett nánari reglur um framkvæmd þessarar greinar. 1)L. 126/2011, 410. gr.2)L. 147/2008, 2. gr.
XXI. kafli.Tollgæsla. 146. gr.Tollgæsluvald. Í tollgæsluvaldi felst heimild til þess að beita úrræðum samkvæmt þessum kafla til þess að tryggja að farið sé eftir þeim lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem [tollstjóri ber]1) ábyrgð á að framfylgja. 1)L. 147/2008, 24. gr. 147. gr.Handhafar tollgæsluvalds. [Tollstjóri, löglærðir fulltrúar hans og tollverðir fara með tollgæsluvald samkvæmt lögum þessum.]1) [Ráðherra]2) er heimilt í undantekningartilvikum að fela öðrum starfsmönnum tollstjóra tollgæsluvald tímabundið til að sinna sérstökum verkefnum. [Lögreglustjórar, löglærðir fulltrúar þeirra og lögreglumenn fara með tollgæsluvald þegar þeir annast eða aðstoða við tollgæslu.]1) Skipshafnir varðskipa fara með tollgæsluvald þegar þær annast eða aðstoða við tollgæslu. Þeir sem kvaddir eru tollgæslunni til aðstoðar lögum samkvæmt fara með tollgæsluvald meðan þeir gegna starfinu. 1)L. 147/2008, 25. gr.2)L. 126/2011, 410. gr. Skyldur tollgæslu og framkvæmd tollgæslustarfa. 148. gr.Almennar reglur. Handhöfum tollgæsluvalds ber að sýna árvekni í starfi og kunna glögg skil á skyldum sínum og þeirri ábyrgð sem starfinu fylgir. Handhöfum tollgæsluvalds ber að rækja starfa sinn af kostgæfni og samviskusemi og ávallt gæta fyllstu hlutlægni og réttsýni. Þeir skulu gæta þess að mönnum verði ekki gert tjón, óhagræði eða miski framar en óhjákvæmilegt er eftir því sem á stendur. Ekki mega þeir beita sakaðan mann harðræði fram yfir það sem lög heimila og nauðsynlegt er til þess að vinna bug á mótþróa hans gegn lögmætum aðgerðum né á annan hátt beita hann ólögmætri þvingun í orði eða verki, svo sem með hótunum. 149. gr.Einkenni tollvarða. Við framkvæmd starfa sinna skulu tollverðir að jafnaði vera einkennisklæddir og ávallt bera á sér og sýna ef með þarf einkennismerki sem ber skjaldarmerki ríkisins og áletrunina „Tollmerki Íslands“ auk nafns þeirra og stöðu, ásamt mynd. Ráðherra setur nánari reglur um einkennisfatnað og skilríki tollvarða með reglugerð.1) 1)Rg. 807/2010. 150. gr.Frjáls og óhindraður aðgangur tollgæslu. Tollgæslu er heimil umferð hvarvetna um strendur landsins og meðfram þeim, um hafnarsvæði og flugvelli. 151. gr.Valdbeiting. Handhöfum tollgæsluvalds er heimilt að beita valdi við framkvæmd skyldustarfa sinna. Aldrei mega þeir þó ganga lengra í beitingu valds en þörf er á hverju sinni. Handhöfum tollgæsluvalds er heimilt ef brýna nauðsyn ber til að nota handjárn og gasvopn við skyldustörf. Ráðherra skal að höfðu samráði við [ráðherra er fer með málefni lögreglu og löggæslu]1) setja reglur um hvaða tollvörðum verði heimilað að bera og beita slíkum búnaði, um notkun hans og þjálfun tollvarða. 1)L. 126/2011, 410. gr. 152. gr.Heimild til að fela lögreglu og landhelgisgæslu tollgæslustörf. [Með samningi skv. 42. gr. getur tollstjóri falið lögreglustjórum að annast tollgæslu jafnframt annarri löggæslu í stjórnsýsluumdæmum sínum.]1) Tollstjóri getur falið starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands að annast tollgæslu. 1)L. 147/2008, 26. gr. 153. gr.Heimild til að fela tollvörðum löggæslustörf. [Ráðherra]1) og [ráðherra er fer með málefni lögreglu og löggæslu]1) geta ákveðið að þar sem henta þykir skuli tollverðir gegna löggæslustörfum jafnframt öðrum tollgæslustörfum. 1)L. 126/2011, 410. gr. Handtaka, leit og hald á munum. 154. gr.Handtaka. Handhöfum tollgæsluvalds er heimilt að handtaka mann sem staðinn er að eða grunaður er um brot gegn lögum þessum og yfirheyra eða fá hann lögreglunni í hendur. 155. gr.Leit í förum og farartækjum. Tollgæslu er heimilt að leita alls staðar í förum sem eru á tollsvæði ríkisins. Einnig er heimilt að leita í farartækjum sem eru á eða koma frá fermingar- og affermingarstöðum skipa og flugfara, svo og öðrum þeim stöðum þar sem ótollafgreiddar vörur eru eða hafa verið geymdar. Tollgæslu er enn fremur heimilt að leita í öllum farartækjum sem hún hefur rökstuddan grun um að flytji ólöglega innfluttar vörur. 156. gr.Skoðun og rannsókn á vörum sem fluttar eru til landsins. Tollgæslu er heimilt að skoða og rannsaka allar vörur sem fluttar eru til landsins, hvort sem um er að ræða vörur á farmskrá, póstflutning, farþegaflutning eða annað. Heimilt er að krefjast þess að vörurnar séu fluttar í húsakynni tollstjóra eða á annan tiltekinn stað þar sem tolleftirlit fer fram og þeim framvísað þar til skoðunar. Tollgæslu er heimilt að taka farangur farþega og áhafnar í sínar vörslur til skoðunar síðar. Getur viðkomandi krafist þess að farangurinn verði innsiglaður þar til skoðun fer fram. Skal hlutaðeigandi gefinn kostur á að vera viðstaddur skoðunina. Enn fremur skal honum látin í té fullnægjandi kvittun ef hann óskar þess. 157. gr.Leit á geymslustöðum fyrir ótollafgreiddar vörur. Tollgæsla skal hafa frjálsan og óhindraðan aðgang til eftirlits og rannsóknar á ótollafgreiddum vörum sem geymdar eru á geymslusvæðum skv. 69. gr., svo og að öðrum húsum og stöðum þar sem ótollafgreiddar vörur eru geymdar eða hafa verið geymdar. Enn fremur er tollgæslu heimill aðgangur að atvinnuhúsnæði ef ætla má að þar séu geymdar vörur sem ekki hafa fengið löglega tollmeðferð. 158. gr.Húsleit í framhaldi af beinni eftirför. Tollgæslu er heimilt að veita þeim mönnum eftirför sem skjóta sér undan eða grunaðir eru um að hafa skotið sér undan tolleftirliti með innfluttar vörur. Framkvæma má leit í húsum þegar um beina eftirför er að ræða og bið eftir úrskurði dómara veldur hættu á sakarspjöllum. 159. gr.Leit á mönnum. Tollgæslu er heimilt að leita á mönnum sem eru í farartækjum, húsum eða á svæðum eða á leið frá farartækjum, förum, húsum eða svæðum þar sem tollvörðum er heimil rannsókn og skoðun á vörum. Leit á manni má aðeins framkvæma samkvæmt skipun æðsta tollvarðar sem er viðstaddur þegar leitarinnar er þörf. Skal framkvæma hana af svo mikilli tillitssemi sem unnt er og má hún aldrei verða víðtækari en nauðsynlegt er vegna tolleftirlitsins. Sá sem leita skal á skal eiga rétt á því að ákveðið vitni sé tilkvatt til að vera viðstatt þegar leit fer fram ef þess er kostur. Ber tollverði að benda [viðkomandi]1) ótvírætt á þennan rétt. Nákvæm leit á manni skal framkvæmd af persónu af sama kyni. 1)L. 80/2006, 9. gr. 160. gr.Leit á ólögráða einstaklingum. Ef fyrirhuguð er leit á einstaklingi sem er ólögráða vegna aldurs skal þá þegar hafa samband við forsjáraðila hans og fulltrúa barnaverndarnefndar, í því umdæmi þar sem leit skal fara fram, og gefa þeim kost á að koma á staðinn án tafar og vera viðstaddir þegar leit fer fram. Ef fyrirhuguð er leit á einstaklingi sem er ólögráða af öðrum ástæðum en greinir í 1. mgr. skal þá þegar gera lögráðamanni viðvart og gefa honum kost á að koma á staðinn án tafar og vera viðstaddur þegar leit fer fram. 161. gr.Hald á munum. Tollgæsla skal leggja hald á muni ef ætla má að þeir hafi sönnunargildi í [sakamáli],1) ef þeirra hefur verið aflað á refsiverðan hátt eða ef ætla má að þeir kunni að verða gerðir upptækir, vegna brota á lögum þessum eða öðrum lögum. 1)L. 88/2008, 234. gr. 162. gr. Hafi ferðamaður eða farmaður meðferðis hærri fjárhæð í reiðufé en sem nemur [10.000 evrum],1) miðað við opinbert viðmiðunargengi eins og það er skráð hverju sinni, meðferðis við komu til landsins eða brottför frá landinu er handhöfum tollgæsluvalds heimilt að leggja hald á fjármunina ef grunur leikur á um að þeir verði notaðir við framkvæmd brots gegn refsiákvæðum almennra hegningarlaga. Tollstjóri skal þegar tilkynna viðkomandi lögreglustjóra um haldlagningu skv. 1. mgr. sem tekur ákvörðun um framhald málsins. 1)L. 42/2012, 8. gr. 163. gr.Málsmeðferðarreglur laga um meðferð [sakamála].1) Um leit, hald á munum, handtöku og aðra málsmeðferð gilda ákvæði laga um meðferð [sakamála]1) nema öðruvísi sé kveðið á um í þessum kafla. Um rannsókn, yfirheyrslu grunaðra manna og skýrslutökur gilda ákvæði 183.–185. gr. laga þessara. 1)L. 88/2008, 234. gr. Innsigli og aðrar takmarkanir. 164. gr.Innsigli. Heimilt er að innsigla eða setja læsingar tollgæslu fyrir farmrými og vistageymslur fara og farartækja, vörugeymslur eða aðra staði þar sem ótollafgreiddar vörur eru geymdar. Enn fremur er heimilt að innsigla eða auðkenna ótollafgreiddar vörusendingar meðan á geymslu eða flutningi stendur. Skylt er stjórnendum fara og farartækja og forstöðumönnum vörugeymslna að veita tollgæslu aðstoð við innsiglun og lokun, svo og að vekja athygli tollgæslu á þeim stöðum þar sem innsiglun eða læsing kemur ekki að haldi. [Tollstjóri]1) ákveður gerð innsigla og setur reglur um notkun þeirra. Verði læsingu eða innsiglun ekki við komið getur tollstjóri krafist þess að varsla varanna eða flutningur fari fram undir tolleftirliti á kostnað vörsluhafa eða farmflytjanda. Innsigli og læsingar tollgæslu má enginn nema tollvörður rjúfa innan tollsvæðis ríkisins eða í fari eða farartæki á leið milli staða á tollsvæðinu. 1)L. 147/2008, 2. gr. 165. gr.Far einangrað. Tollgæsla getur kvíað af far sem komið er í höfn eða á flugvöll, svo og bannað umferð á svæðum þar sem ferming eða afferming vöru fer fram eða farþegar fara um á leið til eða frá fari í utanlandsferðum. Tollgæsla getur ákveðið að farþegar eða aðrir megi einungis fara frá borði eða stíga um borð á ákveðnum stað eða á ákveðnum tíma. Einnig getur tollgæsla ákveðið, í samráði við hafnar- eða flugvallaryfirvöld, að ferming eða afferming fars skuli fara fram á tilteknum stað sem hentugastur þykir til eftirlits hverju sinni. Skylda til að aðstoða tollgæslu og hlýða fyrirmælum. 166. gr.Skylda til að aðstoða tollgæslu. Ef nauðsyn ber til getur tollgæsla kvatt sér til aðstoðar hvern fulltíða mann. Maður er skyldur til að hlýða kvaðningu tollgæslu ef hann getur veitt aðstoð án þess að stofna lífi, heilbrigði, velferð eða verulegum hagsmunum sjálfs sín eða nánustu vandamanna í hættu. Þeir sem kvaddir eru tollgæslu til aðstoðar skv. 1. mgr. fara með tollgæsluvald meðan þeir gegna starfinu og njóta sömu verndar og tollverðir. 167. gr.Skylda til að aðstoða við tollskoðun. Innflytjendum og vörsluhöfum ótollafgreiddrar vöru er skylt að aðstoða við tollskoðun með því að framvísa vöru að beiðni tollgæslu, opna töskur og aðrar umbúðir, taka upp úr þeim, loka þeim aftur að skoðun lokinni og veita alla þá aðstoð og upplýsingar sem leitað er eftir. Sinni innflytjandi eða vörsluhafi ekki skyldu sinni til að aðstoða við tollskoðun er tollstjóra heimilt að fela tollvörðum eða öðrum starfsmönnum tollstjóra að vinna verkið eða ráða menn til starfsins og innheimta hjá innflytjanda eða vörsluhafa þóknun er nemur kostnaði. [Stjórnendum fara og farartækja er skylt að stöðva þau þegar tollvörður gefur um það merki.]1) Stjórnendum fara og farartækja er skylt að veita tollgæslu alla þá aðstoð og upplýsingar sem leitað er eftir. Þeim er einnig skylt að fara eftir fyrirmælum tollgæslu sem lúta að því að tryggja eftirlit með fermingu og affermingu. 1)L. 80/2006, 10. gr. 168. gr.Bann við að tálma tollgæslu í störfum sínum. Enginn má á neinn hátt tálma því að maður gegni tollgæslustörfum eða óhlýðnast fyrirmælum sem tollgæslan gefur í því skyni að vinna að framkvæmd laga þessara.
XXII. kafli.Refsiábyrgð, viðurlög og málsmeðferð. Refsiábyrgð og refsingar. 169. gr. Refsa skal fyrir þau brot á lögunum er falla undir verknaðarlýsingar ákvæða í kafla þessum. Tilraun til brota og hlutdeild í brotum er refsiverð eftir því sem segir í III. kafla almennra hegningarlaga. Brotin varða refsingu ef þau eru framin af ásetningi eða gáleysi, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Gera má lögaðila fésekt, einum sér eða ásamt einstaklingum honum tengdum, eftir því sem nánar er kveðið á um í einstökum ákvæðum kaflans. Sama gildir um greiðsluábyrgð lögaðila á sekt sem fyrirsvarsmanni hans eða öðrum starfsmönnum kann að vera gerð. 170. gr. Það er ólöglegur innflutningur, sem varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, ef vara er flutt til landsins frá útlöndum eða frá tollfrjálsu svæði án þess að tollyfirvöldum sé gerð grein fyrir henni samkvæmt fyrirmælum laga þessara. Sama gildir ef vara er fjarlægð úr geymslu fyrir ótollafgreiddar vörur eða tekin til notkunar án heimildar tollyfirvalda. Það telst enn fremur ólöglegur innflutningur, er varðar sömu refsingu, ef ótollafgreidd vara sem flutt hefur verið um borð í far til útflutnings eða vara sem útflutningur hefur verið leyfður á gegn lækkun eða niðurfellingu á tolli eða öðrum gjöldum er án heimildar tollyfirvalda flutt aftur úr farinu eða á annan hátt skotið undan útflutningi. Verði eigandi vörunnar ekki fundinn skal refsa stjórnanda farsins fyrir saknæmt brot eða ábyrgðaraðila farsins, lögaðila eða einstaklingi, óháð því hvort brotið megi rekja til saknæms verknaðar starfsmanns ábyrgðaraðilans eða ábyrgðaraðilans sjálfs ef hann er einstaklingur. Ábyrgðaraðila farsins verður eingöngu gerð sekt. Það varðar sektum ef stjórnendur eða aðrir yfirmenn gera ekki það sem í þeirra valdi stendur til þess að koma í veg fyrir ólöglegan innflutning með förum þeirra eða vanrækja nauðsynlegt eftirlit í því skyni. 171. gr. Hver sem selur eða afhendir, kaupir eða veitir viðtöku vöru, þótt hann viti eða megi vita að hún sé ólöglega innflutt, skal sæta sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Meðferð ávinnings af brotum gegn lögum þessum er refsiverð eftir því sem segir í 264. gr. almennra hegningarlaga. 172. gr. Hver sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi veitir rangar eða villandi upplýsingar um tegund, magn eða verðmæti vöru eða vanrækir að leggja fram tilskilin gögn samkvæmt lögum þessum vegna innflutnings vöru skal sæta sektum sem að lágmarki nema tvöföldum en að hámarki tíföldum aðflutningsgjöldum af því tollverði sem dregið var undan álagningu aðflutningsgjalda. Álag á toll og önnur aðflutningsgjöld skv. 86. gr. dregst frá sektarfjárhæð. Hver sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi veitir rangar eða villandi upplýsingar um tegund, magn eða verðmæti vöru eða vanrækir að leggja fram tilskilin gögn samkvæmt lögum þessum vegna útflutnings vöru skal sæta sektum. [Tollmiðlari sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi aðstoðar við ranga eða villandi skýrslugjöf til tollyfirvalda eða veitir rangar eða villandi upplýsingar við tollskýrslugerð skal sæta refsingu skv. 1. mgr. ef um er að ræða innflutning en skv. 2. mgr. ef um er að ræða útflutning.]1) Hafi brot gegn 1. eða 3. mgr. verið framið af ásetningi varðar það auk sekta fangelsi allt að sex árum ef brotið er ítrekað eða sakir miklar að öðru leyti. 1)L. 80/2006, 11. gr. 173. gr. Það varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, ef sakir eru miklar, að láta í té eða valda því að látin séu í té skjöl eða vottorð sem eru röng í mikilvægum atriðum um uppruna útflutningsvöru eða önnur atriði um hana sem eiga að tryggja að varan njóti fríðinda við innflutning í annað ríki eða teljist hæf til svæðistollmeðferðar þar vegna milliríkjasamninga. Hafi einstaklingi, félagi eða stofnun verið veitt leyfi til að gefa út skjöl þau og vottorð sem nefnd eru í 1. mgr., en ekki hefur verið sannað hver hafi undirritað þau, má gera viðkomandi leyfishafa sekt ef hann er einstaklingur og hefur ekki sýnt nægilega varkárni við meðferð eða vörslu skjalanna. Sama gildir um forsvarsmann lögaðila ef lögaðilinn er leyfishafi. Einnig má gera lögaðila sekt fyrir brot gegn ákvæði þessu, óháð því hvort brotið verði rakið til saknæms verknaðar starfsmanns lögaðilans, enda sé brotið drýgt til hagsbóta fyrir lögaðilann eða hann hafi notið hagnaðar af brotinu. 174. gr. Sá sem rýfur eða fjarlægir tollinnsigli eða önnur tolleinkenni skal sæta sektum eða fangelsi allt að sex mánuðum. Sömu refsingu skal sá sæta sem á ólögmætan hátt aflar sér aðgangs að vörum sem eru undir tollinnsigli án þess að rjúfa innsiglið eða fjarlægja það. Sé lás eða innsigli tollgæslunnar eða annað tolleinkenni rofið eða fjarlægt, án þess að sá seki finnist, skal vörsluhafi vörunnar eða annar ábyrgðarmaður hennar sæta sektum ef kenna má vanrækslu hans eða starfsfólks hans um brotið. Sama gildir ef vörsluhafi hefur látið undir höfuð leggjast að tilkynna tollyfirvöldum um brotið strax og hann varð þess var eða hefur vanrækt að gera nauðsynlegar ráðstafanir til varnar því að hin innsiglaða vara yrði fjarlægð eða ástandi hennar breytt. 175. gr. Það varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum að selja eða láta á annan hátt af hendi vöru sem flutt hefur verið tollfrjálst til landsins samkvæmt lögum nr. 110/1951, um lagagildi varnarsamnings milli Íslands og Bandaríkjanna og um réttarstöðu liðs Bandaríkjanna og eignir þess, ef viðtakandi nýtur ekki tollfríðinda samkvæmt þeim lögum. Sömu refsingu varðar að taka við slíkum vörum, svo og að taka að sér að selja þær vörur, enda liggi ekki fyrir, er viðskiptin fara fram, fullar sannanir fyrir því að aðflutningsgjöld hafi verið greidd af vörunum og öðrum innflutningsskilyrðum fullnægt. Sömu refsingu varðar það enn fremur að flytja eða reyna að flytja vörur út af samningssvæðum samkvæmt varnarsamningi Íslands og Bandaríkja Norður-Ameríku sem fluttar hafa verið inn tollfrjálst. Sé varan flutt í farartæki og verði eigandi hennar ekki fundinn ber stjórnandi farartækisins ábyrgð á brotinu ef hann hefur sýnt af sér gáleysi við vöruflutninginn. 176. gr. Það varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, ef miklar sakir eru, hafi maður misnotað leyfi, ívilnanir eða tollfríðindi sem honum hafa verið veitt samkvæmt heimild í [6. eða 7. gr.]1) eða öðrum reglum settum samkvæmt lögum þessum. Einnig má gera lögaðila sekt fyrir brot gegn ákvæði þessu, óháð því hvort brotið verður rakið til saknæms verknaðar starfsmanns lögaðilans, enda sé brotið drýgt til hagsbóta fyrir lögaðilann eða hann hafi notið hagnaðar af brotinu. 1)L. 146/2006, 10. gr. 177. gr. Það varðar stjórnanda, eiganda eða umráðamann fars sektum eða fangelsi allt að tveimur árum ef tilskilin skjöl og skilríki fylgja ekki fari, ekki er gerð þar grein fyrir öllum vörum svo sem skylt er eða skjölin eru ekki gerð eins og fyrir er mælt í lögum þessum eða öðrum reglum settum samkvæmt þeim, eða vanrækt er að afhenda þau tollgæslumanni. Sömu refsingu varðar það stjórnanda fars ef við komu þess frá útlöndum eru eigi gefnar upp, eigi finnast í farinu eða ekki er á annan hátt gerð viðhlítandi grein fyrir vörum sem samkvæmt skýrslum tollyfirvalda á viðkomustað farsins erlendis hafa verið teknar um borð í farið þar og stjórnandi þess vissi eða mátti vita um. Sama gildir um birgðir sem samkvæmt innsiglisskrá hafa verið geymdar meðal innsiglisbirgða farsins, enda sé um að ræða verulegt magn umfram nauðsynlegar og eðlilegar birgðir þess. Sömu refsingu skulu og þeir af áhöfn farsins sæta sem undirritað hafa móttökuskilríki eða innsiglisskrá yfir slíkan varning. Einnig má gera lögaðila sekt fyrir brot gegn ákvæði þessu, óháð því hvort brotið verði rakið til saknæms verknaðar starfsmanns lögaðilans, enda sé brotið drýgt til hagsbóta fyrir lögaðilann eða hann hafi notið hagnaðar af því. 178. gr. Það varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum ef stjórnandi farartækis eða afgreiðslumaður vörugeymslu afhendir ótollafgreidda vöru án leyfis tollstjóra. Sömu refsingu varðar það að veita viðtöku vöru sem er ólöglega afhent. Brot skv. 1. mgr. varða refsingu ef þau eru framin af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. 179. gr. Það varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum að gefa, selja eða afhenda á annan hátt til brottflutnings úr fari forða, aðra muni eða vöru sem heimilt er að hafa tollfrjálsa í fari nema aðflutningsgjöld hafi áður verið greidd og öðrum fyrirmælum laga um innflutning fullnægt. 180. gr. Ef maður tálmar tollvörðum í því að sinna skyldustörfum sínum við tollgæslu eða óhlýðnast fyrirmælum sem tollverðir gefa við framkvæmd tollgæslustarfa varðar það sektum nema brotið varði þyngri refsingu samkvæmt almennum hegningarlögum. Önnur viðurlög. 181. gr. Heimilt er að gera upptæka vöru sem flutt hefur verið ólöglega til landsins frá útlöndum eða frá tollfrjálsu svæði, eða á annan hátt farið með vöruna andstætt ákvæðum þessa kafla, óháð því hver eigandi vörunnar er og án tillits til eignarhafta sem á henni hvíla, nema vörsluhafi vörunnar hafi komist yfir hana á saknæman hátt. Nú þykir ekki ástæða til að gera vöru upptæka eða upptöku verður ekki við komið og er þá heimilt að gera upptækt hjá sökunaut andvirði vörunnar auk tolla og annarra gjalda af henni. Verði ekki upplýst hver hinn seki er skal varan að liðnum 30 dögum frá því að hún var flutt inn eða fannst verða eign ríkissjóðs án dóms eða úrskurðar. Eignaupptöku er heimilt að beita þótt refsiábyrgð verði ekki komið fram. 182. gr. Heimilt er að svipta mann réttindum skv. 68. gr. almennra hegningarlaga sem sekur hefur gerst um stórfellt eða ítrekað brot á ákvæðum þessa kafla. Svipta má þann leyfinu sem öðlast hefur starfsleyfi samkvæmt lögum þessum til þess að vera tollmiðlari, reka geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur eða stunda önnur sambærileg störf ef hann hefur brotið gegn refsiákvæðum þessa kafla eða með öðrum hætti sýnt af sér stórfellda vanrækslu í starfi sínu. Um tímalengd sviptingar og endurskoðun ákvörðunar fer eftir ákvæðum 68. gr. og 68. gr. a almennra hegningarlaga. Rannsókn, málsmeðferð og fyrning. 183. gr. [Tollstjóri]1) annast rannsókn brota gegn refsiákvæðum þessa kafla að svo miklu leyti sem slík rannsókn er ekki í höndum lögreglu. [Skal hann]1) hvenær sem þess gerist þörf hefja rannsókn út af rökstuddum grun eða vitneskju um refsivert brot. …1) Lögreglu er skylt að veita tollstjóra nauðsynlega aðstoð í þágu rannsóknar með því að færa mann til skýrslugjafar hjá tollstjóra ef hann hefur að forfallalausu ekki sinnt kvaðningu þess efnis. Um heimildir tollgæslu til valdbeitingar, handtöku, leitar, haldlagningar og innsiglunar gilda ákvæði 151. gr. og 154.–164. gr. Um rannsókn, yfirheyrslu grunaðra manna og aðrar skýrslutökur fer að öðru leyti eftir ákvæðum laga um meðferð [sakamála].2) 1)L. 147/2008, 27. gr.2)L. 88/2008, 234. gr. 184. gr. Ef ætlað brot gegn refsiákvæðum þessa kafla varðar einnig við almenn hegningarlög eða önnur sérrefsilög eða tengist brotum gegn almennum hegningarlögum eða öðrum sérrefsilögum, þar á meðal lögum um ávana- og fíkniefni, skal tollstjóri þegar tilkynna það viðkomandi lögreglustjóra sem tekur ákvörðun um framhald rannsóknarinnar. [Berist tollstjóra beiðni erlends tollyfirvalds um aðstoð við rannsókn máls og hann telur að íslenskum stjórnvöldum beri samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum að veita umbeðna aðstoð skal hann annast rannsókn málsins nema rannsókn þess heyri undir lögreglu samkvæmt þessari grein.]1) Tollstjóra ber að hafa samvinnu við lögreglu og ákæruvald um rannsókn mála þegar tilefni er til þess eða eftir því er óskað af hálfu lögreglustjóra. Á sama hátt ber lögreglustjóra að hafa samvinnu við tollyfirvöld um rannsókn mála ef sérstaklega reynir á sérþekkingu tollgæslu eða alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í tollamálum. Heimilt er að kveða nánar á um samskiptin með reglugerð. 1)L. 147/2008, 28. gr. 185. gr. …1) Tollstjóra er …1) heimilt að ákveða sekt fyrir ólöglegan innflutning eða önnur brot gegn ákvæðum þessa kafla ef brot er skýlaust sannað og ætla má að það varði ekki hærri sekt en 300.000 kr., enda játist sökunautur undir þá ákvörðun og greiði sektina þegar í stað. Við slíka sektarákvörðun skal greina í bókun, skýrt og stuttlega, frá því broti sem um er að tefla, refsiákvæði sem það varðar við og ítrekunarverkun á síðari brot, ef því er að skipta. Nú hefur skýlaust sannað brot einnig upptöku eignar í för með sér og getur tollstjóri undir því skilorði er nú var sagt eða 4. mgr. 181. gr. ákveðið eignaupptöku, enda fari verðmæti þess sem gera á upptækt eigi fram úr 300.000 kr. Sektir allt að 300.000 kr. fyrir helstu brot á lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim skulu ákveðnar í reglugerð2) sem ráðherra setur að fengnum tillögum ríkissaksóknara. Í reglugerðinni skal tilgreint til hvaða tegunda brota hún tekur og hvaða sekt og önnur viðurlög skuli koma fyrir hverja tegund brots. Heimilt er að víkja frá ákvæðum reglugerðarinnar ef veigamikil rök mæla með því. Þegar ákvörðun er tekin um sekt vegna brota á tveimur eða fleiri ákvæðum laga þessara eða reglna settra samkvæmt þeim skal sektin vera samtala sekta vegna hvers brots um sig, enda rúmist refsingin innan sektarmarka almennra hegningarlaga. Sektir og eignaupptaka samkvæmt þessari grein skulu ákveðnar af tollstjóra, löglærðum fulltrúa hans eða tollvörðum. Þó skulu skulu sektir og eignaupptaka samkvæmt þessari grein ákveðnar af tollstjóra eða löglærðum fulltrúa hans ef mál varðar brot sem ekki er tilgreint í reglugerð ráðherra, sbr. 3. mgr. Senda skal ríkissaksóknara skrá um mál sem lokið er skv. 2. mgr. eftir þeim reglum sem [ráðherra er fer með meðferð ákæruvalds]3) setur, en m.a. skulu ákvæði [laga um meðferð sakamála]1) gilda um færslu á sakaskrá og leiðbeiningu ríkissaksóknara um sektarfjárhæð fyrir hverja tegund brota. Nú telur saksóknari að saklaus maður hafi verið látinn undirgangast greiðslu sektar eða maður hafi ranglega verið látinn sæta upptöku eignar, sbr. 2. mgr., eða verið látinn gangast undir fjarstæð málalok að öðru leyti eða mál sem lokið er samkvæmt sama ákvæði hefði átt að ganga til dóms og getur hann þá borið málið undir dómara til ónýtingar á ákvörðun tollyfirvalda. 1)L. 88/2008, 234. gr.2)Rg. 1100/2006, sbr. 279/2013. Rg. 604/2009. 3)L. 126/2011, 410. gr. 186. gr. Sektir fyrir brot á refsiákvæðum þessa kafla og andvirði upptækrar vöru skulu renna í ríkissjóð. 187. gr. Sök samkvæmt ákvæðum þessa kafla fyrnist á fimm árum miðað við upphaf rannsóknar á vegum tollstjóra eða lögreglustjóra enda verði ekki óeðlilegar tafir á rannsókn máls eða ákvörðun refsingar. Um upphaf og stöðvun fyrningarfrests fer að öðru leyti eftir ákvæðum 82. gr. almennra hegningarlaga.
XXIII. kafli.Ýmis ákvæði. 188. gr.Þagnarskylda. Starfsmönnum tollstjóra ber þagnarskylda um þau atvik sem þeim verða kunn í starfi sínu eða vegna starfs síns og leynt skulu fara vegna lögmætra almanna- og einkahagsmuna. Tekur þetta til upplýsinga um einkahagi manna sem eðlilegt er að leynt fari, upplýsinga um viðskipti einstakra manna og fyrirtækja, þ.m.t. hvers konar vitneskja sem ráða má af samritum af sölu- og vörureikningum sem tollyfirvöld halda eftir. Einnig tekur þagnarskylda til upplýsinga er varða starfshætti tollstjóra, þ.m.t. fyrirhugaða tollrannsókn, og annarra upplýsinga sem leynt skulu fara samkvæmt lögum, starfsreglum tollstjóra eða eðli máls. Þagnarskyldan helst þó látið sé af starfi. 189. gr. Samþykki Alþjóðatollastofnunin breytingar á tollnafnaskrá stofnunarinnar eða skýringum við tollnafnaskrána, úrskurði eða gefi út túlkun um tollflokkun eða nýja samræmda tollnafnaskrá sem hefur í för með sér breytta flokkun á vörum í tollskrá er ráðherra heimilt að gera nauðsynlegar breytingar á tollskránni, m.a. með því að fella niður, breyta eða taka upp ný tollskrárnúmer. Ráðherra er jafnframt heimilt að fella niður eða taka upp ný tollskrárnúmer ef þess gerist þörf, t.d. til að afla megi nauðsynlegra upplýsinga til hagskýrslugerðar. Breytingar á tollskrá skv. 1. mgr. skulu birtar í A-deild Stjórnartíðinda og hafa ekki afturvirkt gildi. Breytingarnar skulu ekki hafa áhrif á tolla eins og þeir hafa verið ákveðnir í tollskrá, gjöld eða gjaldfrelsi, heimildir, takmarkanir og annað sem kveðið er á um í öðrum lögum. Ráðherra er heimilt að sameina í eitt tollskrárnúmer vörur sem koma til landsins eða fara frá landinu með hraðsendingum eða póstsendingum í einu sendingarnúmeri og eru að tollverðmæti 25.000 kr. eða minna. Slík breyting skal þó ekki hafa áhrif á fjárhæð tolls af viðkomandi vörum. 190. gr. Ráðherra setur reglur1) um almennan tollafgreiðslutíma. Tollstjóri getur heimilað að afgreiðsla fari fram á öðrum tímum, enda greiði viðkomandi þann kostnað sem af því leiðir. 1)Rg. 1100/2006, sbr. 823/2009. 191. gr. Ráðherra setur reglur um skil tollstjóra á upplýsingum til Hagstofu Íslands úr aðflutnings- eða útflutningsskjölum og öðrum gögnum, að höfðu samráði við Hagstofu Íslands. 192. gr. Ráðherra skal hrinda í framkvæmd ákvæðum í fríverslunar- og milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að, svo og bókunum og viðaukum við slíka samninga sem teljast óaðskiljanlegur hluti þeirra. Ráðherra getur samið við önnur ríki um samstarf á sviði tollmála, m.a. til að samræma og einfalda tollmeðferð vegna gagnkvæmra upplýsingaskipta og innheimtu vangreiddra gjalda og til að vinna gegn ólöglegum innflutningi og útflutningi. 193. gr. Ráðherra setur með reglugerð1) eða öðrum fyrirmælum nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara. 1)Rg. 327/2003, sbr. 252/2004 og 558/2010. Rg. 1100/2006, sbr. 172/2008. Rg. 985/2007. Rg. 630/2008. Rg. 1247/2008. Rg. 89/2009. Rg. 48/2010, sbr. 7/2012. Rg. 807/2010. Rg. 1060/2012. 194. gr. Ákvæði laga þessara um flokkun vara, álagningu, innheimtu, lögveð, tilhögun bókhalds, aðflutnings- og útflutningsskýrslur og önnur skjöl, eftirlit, stöðvun tollafgreiðslu, viðurlög, sektir, refsingar og aðra framkvæmd varðandi toll skulu gilda eftir því sem við getur átt um aðflutningsgjöld og útflutningsgjöld sem ákveðin eru samkvæmt öðrum lögum, nema annað sé þar ákveðið.
Viðauki I.Tollskrá. …1) 1)Um texta, sjá Stjtíð. A 2005, bls. 468–952, sbr. augl. A 141/2005 (Stjtíð. A 2005, bls. 1089–1090), augl. A 142/2006 (Stjtíð. A 2006, bls. 646–694), augl. A 13/2007, augl. A 95/2007, augl. A 175/2007, augl. A 49/2008, augl. A 151/2008, augl. A 94/2009, augl. A 166/2010, l. 121/2011, 4. gr., augl. A 154/2011, l. 42/2012, 10. gr., l. 146/2012, 34. gr., l. 156/2012, 9. gr., augl. A 4/2013 og l. 22/2013, 8. gr.
Viðauki II. …1) 1)Um texta, sjá Stjtíð. A 1995, bls. 305, sbr. l. 81/1998, 21. gr.
Viðauki III. …1) 1)Um texta, sjá Stjtíð. A 1995, bls. 581.
Viðauki IV. …1) 1)Um texta, sjá Stjtíð. A 1995, bls. 609, sbr. l. 86/2001, 2. gr. (Stjtíð. A 2001, bls. 170).