Aðgerðir í efnahagsmálum
Þriðjudaginn 01. nóvember 1988

     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Herra forseti. Í raun hafa öll þau mál önnur sem hér eru á dagskrá verið rædd í tengslum við fyrsta málið. Þetta eru staðfestingar á bráðabirgðalögum fyrri ríkisstjórnar. Ég skal ekki hafa um þetta langt mál, en legg til að að lokinni umræðu verði 1. máli, þ.e. aðgerðir í efnahagsmálum, stjfrv., 20. mál deildarinnar, vísað til fjh.- og viðskn.