Alþingi á samfélagsmiðlum
Alþingi er á samfélagsmiðlunum Facebook, Instagram og X. Samfélagsmiðlum Alþingis er haldið úti af samfélagsmiðlateymi skrifstofu Alþingis, í umboði forseta Alþingis og framkvæmdastjórnar skrifstofunnar.
Samfélagsmiðlar Alþingis eru ekki á vegum þingmanna, stjórnmálaflokka eða ríkisstjórnar. Öllum fyrirspurnum sem snúa að stefnu og störfum þingmanna og þingflokka skal beint til þingmannanna sjálfra eða starfsfólks þingflokka.
Formleg erindi og fyrirspurnir sem notendur síðunnar vilja beina til Alþingis skal senda á netfangið [email protected].
Markmið Alþingis með þátttöku á samfélagsmiðlum eru tvíþætt:
Fræðsla
- Að fræða almenning um hlutverk þingsins og dagleg störf
- Að auka skilning almennings á störfum þingsins
Stuðningur við lýðræðið
- Að auka gegnsæi og sýnileika Alþingis út á við
- Að vekja athygli á lýðræðislegum rétti borgaranna
- Að vekja áhuga á stjórnmálum
- Að auka áhuga almennings á þinginu
Ábyrgð og persónuvernd
Skrifstofa Alþingis fagnar allri málefnalegri umræðu á miðlunum en áskilur sér rétt til að fjarlægja meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli úr athugasemdakerfum miðlanna.Alþingi er ábyrgðaraðili efnis sem birtist á samfélagsmiðlum þess. Allt efni sem sett er inn af öðrum en skrifstofu Alþingis er á ábyrgð viðkomandi einstaklings.
Notendur eru hvattir til að kynna sér persónuverndarstefnur miðlanna:
Einungis samfélagsmiðlateymi skrifstofu Alþingis getur sett inn stöðuuppfærslur á miðlana. Þannig geta utanaðkomandi aðilar aðeins skrifað athugasemdir við færslur sem samfélagsmiðlateymi setur inn, líkað við þær og deilt þeim. Miðlarnir eru vaktaðir reglulega á virkum dögum frá kl. 9 til 16 og lögð er áhersla á að bregðast fljótt við þeim athugasemdum sem berast.
Skrifstofa Alþingis
- er eingöngu ábyrg fyrir því efni á samfélagsmiðlum Alþingis sem skrifstofan setur sjálf þar inn
- hvetur þau sem tjá sig um efni á samfélagsmiðlum Alþingis til að virða skoðanir annarra, forðast gífuryrði og leggja ekki öðrum orð í munn
- líður ekki persónulegar árásir né misnotkun á samfélagsmiðlum Alþingis
- fjarlægir af miðlunum athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklinga eða hópa, efni sem ljóslega er ætlað að ögra einstaklingum eða hópum, sem brjóta gegn góðu siðferði eða efni sem er augljóslega ætlað til auglýsingar
- áskilur sér rétt til að loka á notendur sem brjóta ítrekað gegn þessum samskiptareglum og til að vísa til lögreglu máli þegar athugasemdir geta talist brjóta gegn lögum. Notandi verður látinn vita áður en til lokunar kemur.