Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Virðulegi forseti. Út af ummælum hv. þm. Geirs Haarde vil ég vekja athygli á því að þau lán sem kunna að hafa verið veitt úr sjóðnum áður en svo færi e.t.v. að það ákvæði eða lögin yrðu felld hér á Alþingi eru í fullu gildi. En vitanlega mundi slíkum lánveitingum þar með ljúka.
    Ég vil sérstaklega þakka fyrir síðustu orð hv. fyrirspyrjanda. Ég er tilbúinn að eiga viðræður við þá þingmenn sem þess óska, eins og t.d. Kvennalistans, um þetta mál.